Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Page 18
RÁÐHERRA
SLÆR Í GEGN
n Árni Páll Árnason félags-
málaráðherra er á góðri leið
með stimpla sig rækilega inn
sem leiðtogaefni Samfylkingar.
Hann kallaði
forsvarsmenn
bílalánaokur-
fyrirtækjanna til
sín fyrir helgi og
boðaði að lánin
yrðu skorin
niður í upphæð
sem yrði nálægt
markaðsvirði.
Brugðust menn
fölir og fáir við þess. Hinn breiði
hópur skuldara fagnar ógurlega.
Svo eru aðrir sem telja að ráðherr-
ann sé að lýðskrumast og muni
ekki standa við áformin.
EYÞÓR BÆJAR
STJÓRAEFNI
n Eyþór Arnalds má glaður una
við yfirburðasigur sinn í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Árborg. Fyrir
síðustu kosningar glansaði hann
einnig inn en
dró sig í hlé sem
oddviti eftir
frægt mál og
talaði hjarta sitt
hreint. Nú hafa
kjósendur veitt
honum nýtt og
sterkt umboð
og fortíðin er að
baki. Mikið verk
er fyrir höndum í Árborg þar sem
skuldir sliga íbúana eftir óheppi-
lega fjármálastjórn undanfarin ár.
Ekki er ólíklegt að Eyþór gæti orðið
bæjarstjóri eftir kosningar.
ÍSÓLFUR VILL HEIM
n Hinn glaðbeitti Framsóknar-
maður og fyrrverandi þingmaður,
Ísólfur Gylfi Pálmason, liggur
nú undir þykkum feldi og íhugar
hvort hann
bjóði sig fram
í oddvitasæti
hjá Framsókn
á Hvolsvelli.
Þingmaðurinn
fyrrverandi er
sveitarstjóri í
Hrunamanna-
mannahreppi
en er greinilega
að íhuga að færa sig um set.
Hann staðfesti við Dagskrána að
hugur hans stefndi í Rangárþing
eystra og vísar til átthaga sinna
og ættartölu sinnar þar um slóðir.
Hann er því á heimleið. Lýkur þá
væntanlega löngu ferðalagi hans
sem hófst þegar hann var kjörinn
á þing og sat þar um skeið með
systur sinni, Ingibjörgu.
SVEITARSTJÓRI
BRÁÐNAR
n Kjarnakonan Andrea Róberts
unir hag sínum hið besta í
Hálsakoti í Kjósinni. Þar er sum-
arhúsabyggð en
Andrea óskaði
eftir því á sínum
tíma að fá að
skrá húsið sem
heilsárshús
og þar með
lögheimili.
Þessu mun hafa
verið hafnað af
sveitarstjórn. En
Andrea, sem er ein fegursta kona
Íslands, sá við yfirvöldum. Hún
lagði að sögn leið sína á kontór
sveitarstjórans. Hann stóðst ekki
nærveru hennar og skrifaði undir
þá pappíra sem þurfti.
Bankamenn eru rannsóknar-efni. Þeir eru menn sem gefa skuldugum ekkjum engan
séns en veita helsekum útrásarvík-
ingum sérstaka þjónustu. Ef útrásar-
víkingar skemma eitthvað, til dæmis
fyrirtæki, koma bankamennirnir
hlaupandi á eftir þeim og bjóða þeim
að eignast það með afslætti. Ef ekkja
lendir í vandræðum er svarið einfalt:
Borgaðu allt!
Ef slíkur maður fer í sálfræðimat er niðurstaðan einföld. Hann er andfélagslegur siðblind-
ingi. En Svarthöfða grunar samt að
bankamenn skilji siðblindingjann
eftir í vinnunni þegar þeir fara heim.
Enda eru þeir ekki vondir í sjálfu sér.
Þeir eru bara tannhjól í kerfi sem
leiðir núna nánast alltaf til ósann-
gjörnustu niðurstöðunnar. Skylda
sérhvers bankamanns er að
hámarka arð bankans
af hverjum viðskipta-
vini. Ef bankamað-
ur er góður við við-
skiptavin er það til
þess að hámarka
heildararðinn til
langs tíma. Þá er
hann að koma í
veg fyrir að við-
skiptavinurinn fari
annað.
Sagt er að viðskiptavin-urinn sem skuldi bankanum milljón sé eign bankans, en sá
sem skuldi bankanum milljarð eigi
bankann. Þetta er ekki alveg rétt. Sá
sem er í persónulegum ábyrgðum
fyrir skuldinni er eign bankans. Sá
sem skuldar í gegnum einkahlutafé-
lag á bankann. Hann getur hvenær
sem er, virðist vera, farið í kennitölu-
hopp.
Sævar Jónsson, fyrrverandi knattspyrnumaður hjá Val og fleiri liðum, hefur tæklað sín-
ar aðstæður á athyglisverðan hátt.
Vegna yfirvofandi gjaldþrots síns
ákvað hann að færa skartgripaversl-
unina sína, sem hann átti með helstu
forsprökkum Baugs, yfir á eiginkonu
sína. Í samtali við DV útskýrði hann
aðstöðu sína svona: „Ég er búinn að
missa húsið og ég hef engan áhuga á
því að missa fleira. Ég átti raunveru-
lega engan annan kost.“
Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi eigandi Lands-bankans, hefur misst allt. En
ekki alveg. Hann er blessaður með
framúrskarandi eiginkonu. Og húsið
þeirra og bíllinn eru skráð á hana.
Því er hann ekki alveg á flæðiskeri
staddur, þrátt fyrir gjaldþrot.
Nú er komið í ljós að Sævar missti eitt hús,
en er að byggja annað
miklu stærra. Það er
skráð á eiginkonuna,
eins og skartið. Ólíkt
venjulegum Íslend-
ingum á Sævar fjár-
hagslegt framhaldslíf.
Fyrir nokkrum mán-uðum vofði gjald-þrotið yfir Bjössa í
World Class. Hann flutti rekstur
sinn á milli kennitalna með hjálp
bankans. Á sama tíma var hann
að byggja veglegan sumarbústað
við Þingvallavatn.
Þetta á sér ekki orsök í því að bankarnir og bankamenn-irnir séu vondir menn, heldur
að yfirvöld gerðu reglurnar þannig
að bankinn hagnast á því að níðast á
ekkjum og hygla fjárglæframönnum.
Yfirvöld gerðu það þannig að fólk
fær húsnæðislán með veðsetn-
ingu í sér sjálfu, en ekki
húsnæðinu. Maður
getur ekki lagt niður
sjálfan sig, eins og
athafnamenn-
irnir leggja niður
eitt fyrirtæki og
stofna annað.
Orðið „Av-atar“ úr sanskrít
merkir „form af
sjálfi“. Einkahlutafélög útrásarvík-
inga voru þeirra Avatarar. Rétt eins
og í kvikmyndinni Avatar gátu þeir
athafnað sig án áhættu fyrir sjálfa sig
með því að nota Avatarinn. Avatar
er eins og klón, nema í þeirra tilfelli
er það fjarstýrt. Svarthöfði hefur sem
sagt leitað allra leiða til að útskýra og
skilja ranglætið í íslensku samfélagi.
Kannski þrífst ranglætið ein-faldlega vegna þess að yfir-völd komu því á og viðhalda
því. Og á meðan það borgar sig að
níðast á ekkjum, en hygla siðblind-
ingjum, verð-
ur níðst á
ekkjum og
siðblind-
ingjum
hyglað.
AVATAR ÍSLANDS
„Það var eins og
ummyndast,“
segir Kristján
Árnason,
þýðandi og
bókmenntafræð-
ingur, sem í
síðustu viku fékk
Menningarverð-
laun DV fyrir
þýðingu sína á
bókinni
Ummyndanir eftir rómverska skáldið
Óvíd. Þegar Kristján sá nafn sitt á
forsíðu DV út af tilnefningunni til
verðlaunanna hélt hann um stund að
hann væri kominn í hóp útrásarvík-
inga.
HVERNIG VAR AÐ VERA
ÚTRÁSARVÍKINGUR ?
„Já, já, það er
verið að draga
elliheimilið
Fóstbræður á flot.“
n Fóstbróðirinn Þorsteinn Guðmundsson um
fyrirhugaða leiksýningu sem fer af stað í mars á
næsta ári. - Fréttablaðið
„... ég er ánægð-
astur með hvað
ég lít vel út.“
n Páll Óskar Hjálmtýsson um
það að verða fertugur. Hann segist
stefna á að verða 111 ára. - DV
„Hún var orðin
vandamál fyrir
aðra í kringum
mig.“
n Baltasar Kormákur um það af hverju hann
sagði skilið við áfengi. Baltasar hefur ekki
drukkið í ein átta ár eftir að hann ákvað að
hætta einn daginn. Engin meðferð, bara hætti.
- DV
„Hann er heillandi, flottur
og skemmtilegur en ég
held að ég sé ekki
ástfangin.“
n Fyrirsætan Kristrún Ösp
Barkardóttir um samband
sitt við fótboltastjörnuna Dwight
Yorke. Hann spilaði meðal annars með
Manchester United á sínum tíma. - DV
„... við erum ekkert að tala
um einhverja menn á
mótorhjólum.“
n Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um að
bregðast verði hratt og örugglega við því að
alþjóðleg glæpasamtök séu að reyna að skjóta
rótum hér á landi. - DV
Bubbi og Baugsfeðgar
Tónlistarmaðurinn og samfélags-rýnirinn Bubbi Morthens hefur aldrei farið troðnar slóðir. Þetta á við um tónlist hans jafnt og mál-
flutning um þjóðfélagsmál. Bubbi skrifaði
bloggpistil á Pressuna þar sem hann lýsti
þeirri afstöðu sinni að hrunið væri um að
kenna stjórnvöldum og þá helst Davíð Odds-
syni. Málflutningur Bubba er sá að ekki sé
hægt að kenna útrásarvíkingum einum um
það hvernig fór. Nefnir Bubbi sérstaklega
þá Baugsfeðga, Jóhannes Jónsson og Jón Ás-
geir Jóhannesson sem sitja gjarnan undir
þeim málflutningi að bera stærsta ábyrgð.
,,Þeir sem bera ábyrgð á hruninu eru gjör-
spillt embættismannakerfi og ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar sem lagði grunninn með
allsherjar spillingu sem og meðreiðarsvein-
arnir, Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórn
Geirs Haarde og meðreiðarsveinar hennar.
Jarðvegurinn fyrir hrunið var löngu plægð-
ur,“ skrifar Bubbi.
Rök Bubba eru ágæt. Reiði almennings
í garð útrásarvíkinga er þó eðlileg og skilj-
anleg. En jafnframt blindar hún fólki sýn
og það sér ekki heildarmyndina. Útilok-
að er að halda því fram að fámennur hóp-
ur manna hafi sett landið á hausinn. Stóra
myndin er sú að þeir sem kosnir voru til að
stjórna landinu og hinir sem ráðnir voru til
eftirlits brugðust algjörlega. Útrásarvíking-
ar geta ekki talist vera í aðalhlutverki þar
þótt það henti ákveðnum áróðursmönnum
að halda slíku fram til að varpa af sjálfum
sér sökinni. Íslendingar kusu aldrei Björgólf
Guðmundsson fremur en Jón Ásgeir. Þjóðin
kaus Davíð og Geir til að vaðveita fjöreggið.
Augljóst er að útrásarvíkingar gerðu
mörg og dýrkeypt mistök. Vandinn er hins-
vegar sá að Ísland hefur um áratugaskeið
verið rótspillt og þess vegna ákjósanleg-
ur jarðvegur fyrir það sem gerðist örlaga-
haustið 2008. Þjóðin verður að gera þessi
mál öll upp og setja ný viðmið hvað varðar
siðferði í viðskiptum og stjórnmálum. Það
verða fleiri útrásarvíkingar að stíga fram
eins og Pálmi Haraldsson í Fons gerði í helg-
arviðtali við DV. Pálmi lýsti þar af hrein-
skilni því siðleysi sem átti sér stað með-
an mesta útrásaræðið geisaði. Þegar allir
eru tilbúnir undanbragðalaust til að gera
upp sín mál myndast jarðvegur fyrir nýtt
Ísland. En meðan umræðan er lituð með
þeim hætti sem Bubbi bendir á í pistli sin-
um er engin von um siðbót.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Reiði almennings í garð útrásarvíkinga er þó eðlileg.
18 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA