Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 19
„Yrsa Sigurðardóttir.“
SIGRÍÐUR JÓNA EGGERTSDÓTTIR
51 ÁRS STARFSMAÐUR HJÁ LÖGREGLUNNI Í
REYKJAVÍK
„Ég las Íslandsklukkuna eftir Halldór
Laxness, hún var fín. En ég held að það
sé samt Arnaldur Indriðason.“
AGNES HAFSTEINSDÓTTIR
19 ÁRA NEMI
„Ég held ég verði að segja Illugi Jökuls-
son. Hann er eiginlega tengdapabbi
minn.“
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
30 ÁRA NEMI
„Halldór Kiljan Laxness, að sjálfsögðu.“
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
55 ÁRA FYRRVERANDI RÁÐHERRA
„Ég les ekki íslenskar bækur.“
KAREN RUT ÆGISDÓTTIR
19 ÁRA NEMI
HVER ER ÞINN UPPÁHALDS ÍSLENSKI RITHÖFUNDUR?
AUÐUNN JÓNSSON var aðalstjarna
Íslandsmótsins í kraflyftingum árið
2010 er hann lyfti 390 kílóum í
hnébeygju, 265 kílóum í bekkpressu
og 345 kílóum í réttstöðulyftu sem er
samanlagt heilt tonn.
VAR AÐ UPPGVÖTA
SIGUR RÓS
Flugumferðarstjórar boðuðu til verk-
falls og kröfðust 6% launahækkunar.
Flug til og frá landinu og innanlands
myndi liggja niðri þann tíma. Rík-
isstjórnin brást hratt við og ákvað
að setja lög til að stöðva verkfallið
nokkrum klukkustundum síðar.
Á sama tíma hafa tugir þúsunda
Íslendinga beðið eftir niðurstöðu
um lögmæti gengistryggðra lána,
þar sem fleiri hundruð milljarða eru
undir. Fjölskyldur hafa verið ofsóttar
af innheimtumönnum, bílar teknir
fjárnámi og heimili sett á nauðung-
aruppboð.
Hefði ekki mátt vænta sömu
kraftmiklu viðbragðanna frá ríkis-
stjórninni og við 4 klukkustunda
verkfalli flugumferðarstjóra? Jafnvel
enn kraftmeiri þar sem hagsmunirn-
ir eru svo miklir? Yfir 40 þúsund ein-
staklingar skulda bílalán, kaupleigu-
og rekstrarleigusamninga í erlendri
mynt og tæplega 7 þúsund einstakl-
ingar skulda fasteignalán í erlendri
mynt hjá stærstu innlánsstofnunum,
samtals að verðmæti 200-400 millj-
arða íslenskra króna.
Ólögmæti erlendra lána
Á næstu 6-12 mánuðum mun Hæsti-
réttur dæma í málum sem varða
lögmæti erlendra lána. Þegar hefur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt í
tveimur málum, og komist að tveim-
ur mismunandi niðurstöðum. Fyrri
dómurinn mat gengistryggingu lána
löglega, á meðan sá seinni komst að
þeirri niðurstöðu að hún væri ólög-
leg. Margir virtir lögmenn telja að
seinni dómurinn verði staðfestur af
Hæstarétti, þar sem hann hafi verið
mjög vel rökstuddur. Marinó Njáls-
son, bloggari og stjórnarmaður í
Hagsmunasamtökum heimilanna,
rifjaði nýlega upp umsögn Samtaka
banka og fjármálafyrirtækja (undan-
fara Samtaka fjármálafyrirtækja) frá
árinu 2001 um breytingar á lögum
um vexti og verðtryggingu. Í henni
er bent á að ef frumvarpið yrði að
lögum (sem það svo varð) yrði ólög-
legt að verðtryggja lán með öðru en
vísitölu neysluverðs og hlutabréfa-
vísitölu. Einnig yrði þá eina leiðin
til að veita erlend lán að lána lántak-
anda erlenda mynt og hann myndi
síðan skipta erlendu myntinni í ís-
lenskar krónur við móttöku lánsfjár.
Ekki verður nóg að dæma bara
í þessum tveimur málum, þar sem
lánasamningar eru mjög fjölbreyti-
legir og reyna verður á fjölmörg atriði
er varða lögmæti þeirra. Því þarf að
taka þó nokkur mál fyrir áður en skýr
fordæmi verða komin frá Hæstarétti.
Á þetta hefur m.a. efnahags- og við-
skiptaráðherra bent ítrekað á.
Á meðan bíður stór fjöldi ís-
lenskra heimila á milli vonar og ótta.
Alþingi getur, ef meirihluti þess
vill, samþykkt lög sem fresta nauð-
ungarsölum á grundvelli svokallaðra
erlendra lánasamninga og tryggt
flýtimeðferð mála fyrir dómstólum.
En hvar er viljinn?
Treysta kerfinu?
Þeir sem hvetja til þess að ekkert
sé gert, segja að kerfið muni sjá um
þetta. Treystum bara dómstólun-
um til að vinna vinnuna sína. En af
hverju ættu íslenskur almenningur
að treysta kerfinu, hvort sem það eru
dómstólar, ríkisstjórnin eða Alþingi?
Engin þessara stofnana hefur reynst
sérstaklega traustverðug hingað
til. Meira að segja þegar talað er fyrir
réttarbót sem ætti ekki að kosta ríkið
neitt, gerist fátt. Nýlega lögðum við
Lilja Mósesdóttir, ásamt fleiri þing-
mönnum fram frumvarp til að koma
í veg fyrir að kröfuhafar gætu hund-
elt gjaldþrota fólk alla ævi. Lítill sem
enginn kostnaður er við slíka aðgerð
fyrir ríkisvaldið, heldur tryggir hún
að fólk sem hefur misst allar sínar
eignir við gjaldþrot geti snúið aftur
til samfélagsins að fjórum árum liðn-
um sem fullgildir þjóðfélagsþegn-
ar. Slík lög, ásamt lyklafrumvarpinu,
gætu gjörbreytt stöðu skuldara á Ís-
landi.
ASÍ virðist jafnvel vera búið
að gefast upp á ríkisstjórninni og
leggur fram sínar eigin tillögur um
bætt skuldaúrræði. Gjörbreyta
þarf greiðsluaðlögun ríkisstjórn-
arinnar, draga úr innheimtukostn-
aði, tryggja að skuldir falli niður
við gjaldþrot og að fólk sem misst
hefur húsnæði sitt fái að búa í því
áfram í allt að 12 mánuði. Eitt-
hvað sem meirihluti Alþingis gæti
afgreitt fljótt og vel, jafnvel á einni
kvöldstund, - bara ef viljinn væri
fyrir hendi.
En, nei. Ríkisstjórnin er víst of
upptekin við að setja lög á flugum-
ferðarstjóra.
Vilji er allt sem þarf
UMRÆÐA 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 19
1 SYNIR BALTASARS ORÐNIR VARGAR
Baltasar Kormákur nýtur lífsins með
fjölskyldu sinni á búgarði í Skaga-
firði og segir hann syni sína taka
sveitalífinu vel.
2 KÆRASTA KANYE WEST HÆTTIR EKKI AÐ KOMA Á ÓVART - MYNDIR
Amber Rose vakti athygli með
einkennilegum sólgleraugum.
3 EITT MESTA LEYNDARMÁL POPPSÖGUNNAR
Kenningar um uppruna lagsins
You’re So Vain eftir Carly Simon
dúkka enn upp.
4 MORÐ Í MYRKUM SKÓGI Djöfladýrkendur í Yaroslavl í
Rússlandi myrtu fjóra unglinga með
því að stinga þá 666 sinnum.
5 Í FANGELSI FYRIR AÐ KYSSAST Breskt par á yfir höfði sér fangelsis-
vist í Dubai fyrir kossaflens.
6 3D-ÆÐIÐ SKELLUR ÁVitjunartími þrívíddartækninnar er
loks kominn.
7 STARFSMENN MICROSOFT DULBÚA IPHONE SÍMANA SÍNA
Tíu prósent starfsfólks Microsoft
notar iPhone-síma frá Apple þvert
gegn stefnu Microsoft.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn? „Auðunn Jónsson.“
Hvaðan ertu? „Ég er fæddur og
uppalinn í Kópavoginum. Það er gott að
búa í Kópavogi.“
Hvað drífur þig áfram? „Í sportinu
er það er áhugi á æfingum og kröftum.
Mér finnst lífið ekki virka nema að vera
að æfa á fullu og vera í góðu formi. Svo
eru það náttúrlega börnin, ég á þrjár
yndislegar stelpur - það er náttúrlega
það sem keyrir mann áfram og það sem
lífið snýst um.“
Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
„Það eru félagarnir sem maður var með
sem gutti og öll prakkarastrikin okkar.“
Hvenær byrjaðir þú að lyfta? „Ég
byrjaði 12 ára gamall þannig að maður
er búinn að vera lengi að.“
Hver er þín fyrirmynd í sportinu?
„Þegar ég byrjaði að æfa 1984 var Jón
Páll sterkastur. Hann er náttúrlega
fyrirmyndin. Hjalti Úrsus og Magnús Ver
líka en það er bara einn Jón Páll - hann
var á efsta þrepi.“
Hver eru þín áhugamál fyrir utan
lyftingar? „Það er bara fjölskyldan,
vinnan og æfingar. Ég vinn á með-
ferðarheimilinu Stuðlum og búinn að
vera þar í 12 ár. Það sameinast vel með
æfingunum.“
Hvaða tónlist kemur þér í stuð?
„Það er alls konar. Ég er algjör alæta en
pínu á eftir í tónlist . Sigur Rós er í öllum
spilurum núna. Ég náði henni ekki fyrst
en hún er að koma sterk inn.“
Getur maður keyrt sig í gang með
Sigur Rós? „Já merkilegt nokk. En fyrir
æfingar hlusta ég líka á Iron Maiden og
Rammstein.“
Hvað hefur þú oft lyft heilu tonni
á móti? „Ég var að reyna að telja þetta
saman og þetta er í kringum annan
tuginn.Ég er ekki alveg viss. En þetta var
í 14. sinn sem ég varð Íslandsmeistari.“
Það eru Evrópumót og Heims-
meistaramót á árinu. Hvað þarftu
að lyfta mörgum kílóum þar til að
fá gull? „Evrópumótið í fyrra vannst á
1.022 kílóum. Mig vantar því nokkur kíló
í hverri grein. Þá er ég að keppast við að
komast á pallinn.“
MAÐUR DAGSINS
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
KJALLARI
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
alþingismaður skrifar
„Gjörbreyta þarf
greiðsluaðlögun rík-
isstjórnarinnar.“
Í hvarfi á Hverfisgötunni Þessi garður er að húsabaki á Hverfisgötunni í Reykjavík. Ætla mætti að einhver hefði látið sig hverfa
úr miðjum framkvæmdum þegar byrjaði að rigna. MYND RAKEL ÓSK