Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 20
HVAÐ VEISTU?
1. Skopmyndateiknari Morgunblaðsins hefur verið sjanghæjaður yfir á
Fréttablaðið. Hvað heitir hann?
2. Dæmt var í mansalsmálinu svokallaða á dögunum. Hvað fengu hinir
sakfelldu langan dóm?
3. Menningarverðlaun DV fyrir árið 2009 voru afhent í síðustu viku. Hver
fékk heiðursverðlaunin?
Á MÁNUDEGI
20 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FÓKUS
TANGÓ GEGN
KRABBAMEINI
Tangófélagið efnir til veglegs tangó-
maraþons um næstu helgi til styrkt-
ar átaki Krabbameinsfélags Íslands,
Karlmenn og krabbamein: Mottu-
mars. Maraþonið verður haldið í
Iðnó og í Ráðhúsi Reykjavíkur og
verða þar plötusnúðar frá Svíþjóð,
Danmörku og Íslandi. Þeir sem ekki
hafa mikla reynslu af tangódansi en
eru áhugasamir geta mætt í kynn-
ingartíma í húsi Krabbameinsfélags-
ins í dag (kl. 17.30) og á miðvikudag-
inn (kl. 18). Aðgangseyrir er 3.500
krónur en fyrir þann pening fæst
kennsla og aðgangsmiði á maraþon-
ið sem er sérhannaður bolur.
SVALIR Í
FELLAHVERFI
Myndband Gus Gus við lagið Thin
Ice hefur nú verið sett á You Tube.
Lagið er önnur smáskífa 24/7,
breiðskífu sveitarinnar sem kom
út á síðasta ári. Myndbandið var
tekið upp í Fellahverfi í Breið-
holti og er leikstýrt af þeim Heimi
Sverrissyni og Jóni Atla Helga-
syni. Ekki verður annað sagt en að
myndbandið sé nokkuð undarlegt
og þarf líkast til að hugsa alldjúpt
til að fá samhengi í atburðarás-
ins. En það verður ekki af Gus Gus
tekið að þeir eru ávallt svalir. Leik-
stjórar myndbandsins eru Heimir
Sverrisson og Jón Atli Helgason
sem leikstýrðu einnig myndbandi
Gus Gus við Add This Song sem
frumsýnt var í fyrra.
STÓRTÓNLEIKAR
Í MAÍMÁNUÐI
Stórtónleikar verða haldnir í Laug-
ardalshöll í vor, nánar tiltekið dag-
inn fyrir uppstigningardag 12. maí.
Tónleikarnir eru opnunartónleikar
Listahátíðar í Reykjavík 2010. Fram
kemur hljómsveit Amadou & Mari-
am sem í tilkynningu er sögð án efa
eitt mest spennandi númer tónlist-
arheimsins í dag. Ferill hjónanna frá
Bamakó spannar yfir þrjá áratugi en
þau hafa á síðustu árum unnið með
fjölda listamanna og hljómsveita,
meðal annars Damon Albarn og
David Gilmour úr Pink Floyd. Þau
voru fengin til að semja þemalag
HM í fótbolta í Þýskalandi árið 2006
og hafa fengið fjölda verðlauna fyrir
lagasmíðar sínar og plötur. Miðasala
er hafin á listahatid.is og midi.is.
Svör: 1. Halldór Baldursson 2. Fimm ár 3. Jórunn Viðar, píanóleikari og tónskáld
Þroskasaga ungrar konu
Bókin Það sem ég sá og hvernig ég
laug kom út snemma á þessu ári og
hefur strax vakið athygli. Fyrir utan
að hafa hlotið verðlaun í Bandaríkj-
unum hefur hún rokið strax á vin-
sældalista hér á landi.
Sagan segir frá ungri stúlku, Ev-
elyn, sem fimmtán ára gömul upp-
lifir meiri hluti en hún skilur. Hana
langar til að fullorðnast fljótt þegar
hún upplifir fyrstu ástina og þeg-
ar hún fær tækifæri til þess í sög-
unni uppgötvar hún sannleikann
um fjölskyldu sína. Sannleika sem
þroskar hana á einu andartaki.
Bókin er afar aðgengileg. Káp-
an er það heillandi að mann lang-
ar að lesa bókina eingöngu hennar
vegna. Sagan er sögð frá sjónarhorni
aðalpersónunnar, lesandinn er inni
í huga Evelyn sem gerir það að verk-
um að maður á erfitt með að leggja
bókina frá sér. Hún hefur alltaf verið
mjög samrýnd móður sinni og þeg-
ar sagan hefst eru þær, ásamt stjúp-
föður hennar, á leið til Flórída í frí.
Frí sem breytist í vettvang glæps.
Evelyn verður hrifin af manni
sem tengist stjúpföður hennar á
þann hátt sem hún vissi ekki. Að
lokum gerist hræðilegur atburður
sem verður til þess að hún þarf að
velja á milli þess að standa með fjöl-
skyldu sinni eða segja frá sannleik-
anum. Það reynist
henni erfitt.
Þegar kemur að
plottinu er ekki kaf-
að mjög djúpt. Ást og
glæpir eru sívinsælt
og grípandi viðfangs-
efni og á þessi bók
heima í þeim flokki.
Hún skilur ekki meira
eftir sig. Það sem veg-
ur upp á móti er að höf-
undi tekst að koma með
ferskan blæ og nálgast
efnið frá öðru sjónar-
horni en vanalega. Og
að flétta því snilldarlega
saman. Titillinn passar
við söguna og sagan passar við káp-
una. Alveg eins og góð skáldsaga á
að vera. Og textinn er auðlesinn.
Ég naut þess að
lesa Það sem ég sá og
hvernig ég laug. Bók-
in er einlæg, hrein-
skilin, áhugaverð,
spennandi og hug-
ljúf. Þetta er bók
sem maður hugsar
um þegar maður er
ekki að lesa hana.
Bók sem segir frá
þrám, draumum
og þroska. Þetta
er bók sem segir
líka frá dökkum
hliðum persónu-
leikans, flótta frá
raunveruleika og leyndum ástum.
Fjölbreytt og skemmtileg.
Ásdís Björg Jóhannesdóttir
ÞAÐ SEM ÉG SÁ
OG HVERNIG ÉG LAUG
Höfundur: Judy Bludell
Þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Mál og Menning
BÆKUR
Flöt Lísa í þrívíðu
Alice Kingsleigh er orðin nítján ára
gömul í útfærslu leikstjórans Tims
Burton af hinni sígildu sögu af Lísu
í Undralandi. Lísa stendur frammi
fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að þurfa
að trúlofast aðalsbornum pilti til að
bjarga framtíð sinni, þegar hún enn
á ný ráfar í Undralandið sem hún
eitt sinn heimsótti í æsku en hafði
bælt sem slæmar martraðir með
aldrinum. Hefst þá sagan á nýjan
leik.
Tim Burton er svo óumdeildur
snillingur að myndir hans eiga nán-
ast hver ein og einasta óhaggandi
stað á lista margra yfir uppháhalds
myndir þeirra. Mikil eftirvænting
ríkti fyrir hver hans sýn á ódauð-
lega sögu Lewis Carroll yrði. Burton
kemur hvergi á óvart og skilar sínu
hefðbundna dagsverki. Að því leyt-
inu til að hann ljáir myndinni, sem
hægt er að sjá í bíósölum bæði í þrí-
vídd og venjulega, sínum dásamlega
undarlega blæ. Johnny Depp er allt-
af Johnny Depp og leitun að misstigi
hans í hlutverkavali síðustu 15 árin.
Helena Bonham Carter og hann fá
nánast sjálfkrafa hlutverk í myndum
hans enda eru þau frábærir leikarar
sem henta hans svarta, skrítna stíl.
Undirritaður fór með vissar
væntingar á myndina. Þær voru
miklar. Burton, Depp og Carter, að
Anne Hatheway viljandi undanskil-
inni, hvernig gat þetta klikkað?
Það var því með talsverðum von-
brigðum sem ég sat í bíósal, horfði
á Alice in Wonderland og upplifði
hana sem flata og bragðdaufa. Þrátt
fyrir þrívíddargleraugun. Ég segi hér
og nú að ef sú tækni verður lenskan
í framtíðinni þá sný ég mér aftur að
BetaMax-spólunum.
Sagan er sú sama þótt Lísa sé
orðin eldri og leikin af hinni sykur-
sætu Wasikowska. Með smá útúr-
dúrum þó er þetta í grunninn sama
gamla sagan. Lísa minnkar, hún
stækkar, hún fer í teboðið og berst
við Hjartadrottninguna sem alla
vill afhausa. Carter leikur hana af
stakri prýði. Johnny Depp leikur út-
brunna útgáfu af Hattaranum brjál-
aða óaðfinnanlega. Eilítið fastur í
Willy Wonka-hlutverkinu þó í túlk-
un sinni.
Anne Hathaway sem Hvíta
drottningin er ósannfærandi.
Frammistaða hennar er meira pirr-
andi en tyggjóklessa í bíósætinu
sem ekki uppgötvast fyrr en maður
stendur upp í hléi.
Fyrir minn smekk virðist Burt-
on ekki hafa áttað sig á að á mynd-
ina yrði horft með þrívíddargler-
augum, sem í raun eru sólgleraugu
þegar maður situr í dimmum bíósal.
Þrívíddarmöguleikarnir skiluðu sér
illa og voru vannýttir við hin ýmsu
tækifæri í myndinni sem virkaði allt
of dökk fyrir „sólgleraugun“. Ég stóð
mig ítrekað að því að gægjast yfir
gleraugun til að sjá hvað væri að ger-
ast. Afskaplega klénn þessi þrívídd-
arfídus sem öllu tröllríður um þess-
ar mundir.
Mér fannst ég hafa séð þetta allt
saman áður, og það hafði ég í raun
gert. Mér þótti myndin flöt þrátt fyrir
að vera ágætis afþreying. Bætti litlu
við Undralands-veldið og skilur enn
minna eftir. Sigurður Mikael Jónsson
ALICE IN
WONDERLAND
Leikstjóri: Tim Burton
Aðalhlutverk: Mia Wasikowska, Johnny
Depp, Helena Bonham Carter, Anne
Hathaway
KVIKMYNDIR