Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 21
ÆTTFRÆÐI 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 21 Páll Óskar Hjálmtýsson SÖNGVARI, PLÖTUSNÚÐUR OG LAGASMIÐUR Páll Óskar fæddist í Reykjavík, ólst upp í Vesturbænum og hefur ver- ið þar búsettur alla tíð. Hann var í Vesturbæjarskóla, Hagaskóla og stundaði nám við MH. Palli vann á unglingsárunum m.a. við að skúra Kringluna, ný- byggða, vann við iðjuþjálfun á geð- deild Landspítalans um skeið og starfaði við Aðalvídeóleiguna við Klapparstíg þar sem hann þró- aði fyrstu kúltúrvídeóleiguna hér á landi, m.a. með áður ófáanleg- um myndum frægra leikstjóra og gömlum, klassískum myndum. Palli stjórnaði útvarpsþættinum Sætt og sóðalegt á Aðalstöðinni og Dr. Love, á Mónó, þar sem fjallað var hispurslaust um kynlíf og ásta- mál. Hann var dómari í Idol-sjón- varpsþáttunum og X-Factor, og hefur séð um Eurovision-þættina Alla leið á RÚV sl. tvö ár. Palli er sjálfmenntaður söngv- ari og hefur unnið sem slíkur frá barnsaldri. Hann var tíu ára er hann söng hlutverk Hans í Hans & Grétu á Söngævintýraplötu Gylfa Ægissonar. Síðar hljóðritaði hann nokkur lög fyrir Gylfa, s.s. Blindi drengurinn sem var í raun fyrsti hittari Palla, enda spilað í spað í Óskalögum sjúklinga. Á mennta- skólaárunum vann hann að upp- setningu Rocky Horror Show í MH. Hinn fullorðni Páll Óskar hefur verið áberandi sem ein skærasta poppstjarna þjóðarinnar og eftir hann liggja fjölmargar upptökur á hljómplötum, sólóplötur og sam- starfsverkefni með öðrum tónlist- armönnum. Síðustu misseri hefur hann verið einn eftirsóttasti plötu- snúður landsins. Hann er einn af fáum íslenskum tónlistarmönn- um sem er jafnvígur á stuðtónlist og ballöður. Ferill hans skiptist í tvennt: diskóplöturnar og dans- verkefnin á móti ballöðuplötun- um og hörpuplötunum. Páll Óskar hefur unnið með latínhljómsveit- inni Milljónamæringunum, keppti í Eurovision 1997 og hefur unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir plötur sínar og söng. Af sólóplötum hans má nefna Stuð, 1993; Palli, 1995; Seif, 1996; Deep Inside, 1999, Ef ég sofna ekki í nótt, 2001 og Ljósin heima, 2003, sem hann gerði ásamt Moniku Abendroth, hörpuleikara. Hann gerði plöturnar Milljón á mann, 1994, og Þetta er nú meiri vitleys- an, 2001, ásamt Milljónamær- ingunum, og Stereo, 1998, ásamt hljómsveitinni Casino. Sólóplatan Allt fyrir ástina, 2007, varð svo einn stærsti popp- smellur íslenskrar tónlistarsögu. Hún var lofsungin af gagnrýnend- um, elskuð af fjöldanum og seldist í bílförmum. Hún innihélt smellina Allt fyrir ástina; Betra Líf, Inter- national og Er þetta ást?, en lang- vinsælast varð þó lagið Þú komst við hjartað í mér, í flutningi Hjalta- lín. Nýjasta afurð Páls Óskars er safnplatan Silfursafnið, 2008, sem seldist sömuleiðis í rúmlega 15.000 eintökum. Páll Óskar hefur unnið ötul- lega að réttindabaráttu samkyn- hneigðra, en hann hefur m.a. set- ið í undirbúningsnefnd Gay Pride – Hinsegin daga hátíðarinnar frá upphafi. Fjölskylda Systkini Páls Óskars eru Ásdís, f. 21.8. 1954, matreiðslukona, bú- sett í Reykjavík; Sigrún, f. 8.8. 1955, söngkona, búsett í Mosfells- bæ; Lucinda Margrét, f. 7.6. 1957, bankafulltrúi, búsett í Reykja- vík; Matthías Bogi, f. 25.5. 1959, húsasmíðameistari, búsettur í Reykjavík; Jóhanna Steinunn, f. 19.2. 1962, tækniteiknari, búsett í Reykjavík; Arnar Gunnar, f. 11.2. 1964, byggingaverkamaður, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Páls Óskars: Hjálm- týr E. Hjálmtýsson, f. 5.7. 1933, d. 12.9. 2002, bankastarfsmaður og söngvari í Reykjavík, og k.h., Mar- grét Matthíasdóttir, f. 10.1. 1936, d. 1.11. 1995, ritari. Ætt Hjálmtýr var sonur Hjálmtýs, kaupmanns í Reykjavík Sigurðs- sonar, á Stokkseyri Sigmundsson- ar. Móðir Hjálmtýs kaupmanns var Gyðríður Hjaltadóttir, b. í Skarðs- hjáleigu Hjaltasonar, b. þar Filipp- ussonar. Móðir Hjálmtýs bankastarfs- manns var Lucinda Fr. V. Hans- en, dóttir Ludvigs Hansen, dansks verslunarmanns í Reykjavík, og Marie Vilhelmsdóttur Bernhöft, bakarameistara á Bernhöftstorfu í Reykjavík Daníelssonar Bernhöft, bakara þar Joachimssonar Bern- höft, í Neustadt í Holtsetalandi. Móðir Marie Bernhöft var Johanne Otharsdóttir Bertelsen, skósmiðs á Helsingjaeyri. Margrét var dóttir Matthíasar, aðalvarðstjóra í Reykjavík Svein- björnssonar, í Reykjavík Erlends- sonar, b. á Hóli í Landsveit Svein- björnssonar. Móðir Matthíasar var Margrét Þorsteinsdóttir, b. í Arn- arbæli Vigfússonar. Móðir Mar- grétar var Margrét Eiríksdóttir, b. á Laugabökkum Þorsteinssonar og Ingibjargar Eiríksdóttur, ættföður Reykjaættar Vigfússonar. Móðir Margrétar var Sigrún Melsteð handavinnukennari, syst- ir Páls Melsteð stórkaupmanns. Sigrún var dóttir Bjarna Melsteð, b. í Framnesi, bróður Boga sagn- fræðings. Bjarni var sonur Jóns Melsteð, prófasts á Klausturhól- um, bróður Páls Melsteð sagn- fræðings, og bróður Ragnheiðar, ömmu Helga Pjeturs jarðfræð- ings og heimspekings, langömmu Brynjólfs Bjarnasonar, heimspek- ings og formanns Kommúnista- flokks Íslands, og langömmu Ástu, ömmu Davíðs Oddssonar Morg- unblaðsritstjóra. Jón var sonur Páls Melsteð, amtmanns í Stykk- ishólmi. Móðir Jóns var Anna Sig- ríður Stefánsdóttir, amtmanns á Möðruvöllum Þórarinssonar, ætt- föður Thorarensensættar Jóns- sonar. Móðir Stefáns var Sigríður Stefánsdóttir, systir Ólafs stiftamt- manns, ættföður Stephensen- sættar. Móðir Bjarna var Steinunn Bjarnadóttir Thorarensen, amt- manns og skálds á Möðruvöll- um Vigfússonar. Móðir Bjarna var Steinunn Bjarnadóttir, landlæknis Pálssonar og Rannveig Skúladótt- ir, landfógeta Magnússonar. Móðir Steinunnar Bjarnadóttur Thorar- ensen var Hildur, systir Brynjólfs, kaupmanns í Flatey, langafa Ás- laugar, móður Geirs Hallgríms- sonar forsætisráðherra. Hildur var dóttir Boga, fræðimanns á Staðar- felli Benediktssonar, og Jarþrúð- ar Jónsdóttur, pr. í Holti Sigurðs- sonar. Móðir Jarþrúðar var Solveig Ólafsdóttir, ættföður Eyrarætt- ar Jónssonar, langafa Jóns Sig- urðssonar forseta. Móðir Boga var Hildur Magnúsdóttir, systir Gunn- laugs, langafa Sigurðar landverk- fræðings, föður Gunnars Thor- oddsen forsætisráðherra. Móðir Sigrúnar handavinnukennara var Þórunn, systir Kristins, afa Errós. Þórunn var dóttir Guðmundar, b. á Miðengi Jónssonar, á Selfossi Einarssonar. 30 ÁRA n Karol Eryk Calus Viðarási 99, Reykjavík n Aneta Barbara Kusmierczyk Erluási 76, Hafnarfirði n Kata Gunnvör Magnúsdóttir Tjörn, Stokkseyri n Andrea Eiríksdóttir Brunnstíg 3, Reykjanesbæ n Sigríður Dögg Sigmarsdóttir Sandavaði 5, Reykjavík n Ingvar Már Leósson Móabarði 36, Hafnarfirði n Gunnur Sveinsdóttir Furubergi 3, Hafnarfirði n Agnes Björk Helgadóttir Gulaþingi 10, Kópavogi n Sólveig Jónsdóttir Borgarholtsbraut 27, Kópavogi 40 ÁRA n Tsering Gyal Tómasarhaga 47, Reykjavík n Henrik Schjellerup Nielsen Urðarbraut 19, Blönduósi n Sigfús Scheving Sigurðsson Fagrahjalla 34, Kópavogi n Sæþór Gunnsteinsson Presthvammi, Húsavík n Birkir Söebeck Viðarsson Lyngholti 16, Húsavík n Valgeir Matthías Baldursson Brúnási 5, Garðabæ n Jón Einar Jóhannsson Ránargötu 5, Akureyri n Sigrún Grendal Jóhannesdóttir Löngulínu 9, Garðabæ n Thelma Ómarsdóttir Hillers Sæviðarsundi 58, Reykjavík n Eiður Guðni Eiðsson Espilundi 8, Akureyri n Pálína Jörgensdóttir Hofsstöðum, Borgarnesi 50 ÁRA n Kristjana Halldórsdóttir Teigaseli 5, Reykjavík n Þorgeir Ingólfsson Hrísmóum 2b, Garðabæ n Níels Ólason Lundarbrekku 10, Kópavogi n Árni Jónsson Rofabæ 45, Reykjavík n Óttar Ægir Baldursson Valsheiði 6, Hveragerði n Gunnar Theodór Gunnarsson Melgerði 7, Reyðarfirði n Óðinn Kristmundsson Sandholti 9, Ólafsvík n Birna Ólafía Jónsdóttir Þrastarhólum 10, Reykjavík n Sigurbjörg H Magnúsdóttir Brekkustíg 12, Reykjavík n Nökkvi Bragason Móaflöt 18, Garðabæ n Aðalheiður L Gunter Langholtsvegi 26, Reykjavík 60 ÁRA n Andrew Scott Fortune Grettisgötu 90, Reykjavík n Sigmundur Felixson Gilsbakka 34, Hvolsvelli n Steinunn Viðarsdóttir Espigerði 6, Reykjavík n Kristján G Ragnarsson Baughúsum 21, Reykjavík n Valur S Kristinsson Gyðufelli 16, Reykjavík n Stefán Steingrímsson Eyjabakka 20, Reykjavík n Brynjúlfur Erlingsson Logafold 65, Reykjavík n Sigrún Stefánsdóttir Rauðagerði 53, Reykjavík n Benedikt Eggertsson Barðastöðum 51, Reykjavík 70 ÁRA n Einar Benediktsson Hringbraut 63, Reykjavík n Helga S Pétursdóttir Hringbraut 54, Reykjanesbæ n Jóhanna Óskarsdóttir Fannafold 161, Reykjavík n Þórir Roff Freyjugötu 45, Reykjavík n Haraldur Hansson Kópavogsbraut 67, Kópavogi n Friðrika Rósa Sigurbjörnsdóttir Starrahólum 8, Reykjavík 75 ÁRA n Davíð Gunnarsson Sólbrekku 16, Húsavík n Sólveig Ástvaldsdóttir Hjallabraut 33, Hafnarfirði n Þorsteinn Sæmundsson Bólstaðarhlíð 14, Reykjavík n Unnur María Figved Garðastræti 43, Reykjavík 80 ÁRA n Hörður Stefánsson Álfsstétt 5, Eyrarbakka n Stefán Kristinn Teitsson Jaðarsbraut 25, Akranesi n Guðjón Pétursson Tindaflöt 8, Akranesi 85 ÁRA n Erla Bjarnadóttir Aflagranda 40, Reykjavík n Vilhelmína K Magnúsdóttir Safamýri 13, Reykjavík n Guðbjörg Ámundadóttir Minna-Núpi, Selfossi 90 ÁRA n Jóhannes Arason Þórsgötu 25, Reykjavík n Aðalbjörg Guðmundsdóttir Lindarseli 7, Reykjavík 40 ÁRA Á MORGUNTIL HAMINGJU INGJU AFMÆLI 15. MARS 2010 TIL HAMINGJU AFMÆLI 16. MARS 2010 30 ÁRA n Kanjananoot Bookathum Þórufelli 6, Reykjavík n Przemyslaw Jan Karakuszka Veghúsum 9, Reykjavík n Magdalena Agnieszka Brzozowska Eskivöllum 1, Hafnarfirði n Mary Grace Cervantes Gapasin Skólavörðustíg 44, Reykjavík n Helga Arnardóttir Leirubakka 30, Reykjavík n Kristinn Óskar Haraldsson Höfðagötu 5, Hvammstanga n Sindri Birgisson Vindási 4, Reykjavík n Andrzej Baginski Garðarsbraut 83, Húsavík n Rannveig Þorvaldsdóttir Þórðarsveig 24, Reykjavík n Jóhann Helgi Aðalgeirsson Víkurbraut 54, Grindavík 40 ÁRA n Eva Camilla Robertsdóttir Höfðahúsum, Fáskrúðsfirði n Andrei Buhhanevits Týsgötu 8, Reykjavík n Árni Þór Þorbjörnsson Ljósalandi 11, Reykjavík n Brynhildur Magnúsdóttir Norðurbyggð 13, Þorlákshöfn n Páll Óskar Hjálmtýsson Sörlaskjóli 80, Reykjavík VIP n Gústaf Þórarinn Bjarnason Þrastarási 21, Hafnarfirði n Sjöfn Vilhelmsdóttir Auðarstræti 7, Reykjavík n Guðmundur Jón Arnkelsson Hamarstíg 16, Akureyri n Arndís Magnúsdóttir Glitvöllum 1, Hafnarfirði n Geir Magnússon Helluvaði 1, Reykjavík n Jónas Sigþór Þórisson Skólabraut 5, Selfossi n Rakel Arnfjörð Haraldsdóttir Hrauntungu 47, Kópavogi n Guðmundur R Matthíasson Spóahólum 14, Reykjavík n Eyjólfur Jarl Einarsson Kirkjuteigi 33, Reykjavík n Anna Sigríður Magnúsdóttir Langeyrarvegi 15, Hafnarfirði 50 ÁRA n Ryszard Ciapa Birkihvammi 8, Kópavogi n Patrice Ouellet Andrésbrunni 8, Reykjavík n Gunnlaug Helga Einarsdóttir Skeiðarvogi 83, Reykjavík n Helga Jóhanna Hrafnkelsdóttir Andrésbrunni 7, Reykjavík n Einar Magnússon Engjavegi 6, Mosfellsbæ n Hreinn Halldórsson Staðarhrauni 45, Grindavík n Valentínus G Baldvinsson Njálsgötu 86, Reykjavík n Arnheiður Anna Ólafsdóttir Nýlendugötu 23, Reykjavík 60 ÁRA n Christopher Ronald Bowen Melabraut 13, Seltjarnarnesi n Elín Skúladóttir Skálateigi 1, Akureyri n Tryggvi Ingólfsson Hvolsvegi 11, Hvolsvelli n Gunnhildur Óskarsdóttir Hveralind 7, Kópavogi n Sveinbjörn Sveinbjörnsson Hraungerði 1, Akureyri n Magnús Þórisson Drekavöllum 26, Hafnarfirði n Hafsteinn Jónsson Krókabyggð 17, Mosfellsbæ n Geoffrey M Pettypiece Asparfelli 8, Reykjavík 70 ÁRA n Ásmundur Sigurðsson Hraunbæ 82, Reykjavík n Pétur Björgvinsson Fellsenda dvalarh, Búðardal n Ása Jónsdóttir Miðtúni 16, Tálknafirði n Sigríður Viggósdóttir Hólabrekku, Varmahlíð n Andrés J Ólafsson Smáratúni 24, Reykjanesbæ n Bjarnfríður Haraldsdóttir Ásfelli 3, Akranesi n Anna Luckas Ásbúð 96, Garðabæ 75 ÁRA n Guðrún Hall Fögrubrekku 3, Kópavogi n Agnes Aðalsteinsdóttir Laugarásvegi 34, Reykjavík 80 ÁRA n Kristbjörg Halldórsdóttir Lækjargötu 7, Akureyri n Þórður Þorgrímsson Þorláksgeisla 23, Reykjavík n Sigríður Theodóra Erlendsdóttir Bergstaða- stræti 70, Reykjavík n Ingunn Norðdahl Kópavogsbraut 1b, Kópavogi n Erna Guðbjörg Benediktsdóttir Garðabraut 16, Akranesi n Gróa Sigfúsdóttir Núpalind 8, Kópavogi n Jónína Sigurjónsdóttir Glósölum 7, Kópavogi n Páll Ólafsson Brautarholti 1, Reykjavík n Þorleifur Sigurlásson Hólagötu 41, Vestmannaeyjum 85 ÁRA n Skafti Benediktsson Geitlandi 12, Reykjavík n Guðný Jónsdóttir Miðstræti 6, Neskaupstað n Ingólfur Ingvarsson Frumskógum 6, Hveragerði 90 ÁRA n Fanney Halldórsdóttir Fellsmúla 9, Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.