Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1909, Qupperneq 111
105
í dag, þá veilist mjer, eftir fyrirmælum hans, sá heiður, þegnsamlegast að tilkynna
Yðar Hátign, að sæsími íslands er fullgjör.
J ó li. J ó h a n n e s s o n
bæjarfógeti á Seyðisfirði«.
Svar konungsins hljóðaði svo:
»Bæjarfógeti Jóh. Jóhannesson.
Ánægður yfir því að vita að hraðskeytasamband við ísland er ákomið, þar
sem sæsíminn til Seyðisfjarðar er opnaður, sendi jeg nú þegar mína innilegustu kveðju
og óska af hjarta til hamingju, með sannfæringu um hina miklu víðtæku þj'ðingu,
er þetta samband mun hafa fyrir framfarir íslands eftirleiðis til lieilla og blessunar
fyrir oss alla.
F r e d r e k R.
Bernstorff«.
Með símskeyli þessu frá konunginum var shninn byrjaður að starfa, og bæj-
arfógetinn svaraði orðsendingu konungs aftur á þessa leið:
»Hans Hátign konungurinn
Bernstorff.
Eftir umboði stjórnarinnar er mjer sá heiður veittur, að þakka yðar Hátign
í nafni íslensku þjóðarinnar, fyrir liina óumræðilega hjarlanlegu kveðju lil þjóðar-
innar, og fyrir hinar lilýju óskir og björtu vonir um framtíð landsins, sem yðar
Hátign liefur látið í ljósi við þennan atburð, sem er svo þýðingarmikill fyrir landið,
og tekur þjóðin með einróma þakldæti undir þær óskir og vonir.
Guð verndi konunginn og konungsættina.
J ó h . J ó h a n n e s s o n.
Með þessu var ísland lcomið í símasamband við heiminn.
Ráðherrann sem hafði ætlað að verða sjálfur á Seyðisfirði, en liafði lafist
sakir ofviðra, hafði falið bæjarfógetanum að lilkynna konungi að sæsíminn gæti
byrjað að starfa. Pann 29. september tilkynnti liann konunginum, að síminn væri
þá kominn alla leið til Reykjavíkur og að símskeytasambandið milli Reykjavíkur og
útlanda væri þá komið á.
31. desember 1907 er landþráður kominn víða og starfrækslan orðin all-
mikið verk. Sæsíminn er á lengd milli Seyðisfjarðar og Thorshavn 318.5 enskar milur
mjlli Thorshavn og Eerwick.................................. 215.5 —»—
Alls 534.0 enskar mílur
Lengdin á stólparöðunum innanlands var þá orðin...................... 619.9 kílóm.
Sæsími (en innanlands) ........................................... 3.4 —
Alls... 623.3 kílóm.
Lengd símaþráða var við sömu árslok orðin:
Landsímar ............................................ 1506.6 kílóm.
Þræðir undir sjó (ávalt tvöfaldir).................. 6,9 — 1513.5 kílóm.
Að koma upp þessum landsímaþráðum koslaði samtals 588.200 kr.
Ritsímastöðvar voru alls 3 í árslokin 1907. Aðrar stöðvar voru 25
eða alls 28 stöðvar, lil þess að starfrækja símana voru alls 35 starfsmenn sem höfðu
að launum 20877 kr. 16 aura árið 1907.
I.HSK. 190S.
14