Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 56
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins. Fy ri rs æ ta : E lín M et ta J en se n ne m an di í M R Tvöfaldur skolli hjá Nubo? Jón Jónsson fær samning n Tónlistarmaðurinn, knattspyrnu maðurinn og rit- stjórinn Jón Jónsson er gjarnan með mörg járn í eldinum. Nú er hann kominn með plötusamning við útgáfufyrirtæki sem tilheyr- ir Sony-samsteypunni. Sjálfur L.A. Reid, sem meðal annars er einn dómaranna í X Factor, heillaðist af Jóni á fundi í New York í sumar og bauð honum í kjölfarið samn- ing hjá útgáfunni. „Lukkudísirnar voru svo sannarlega hliðhollar mér í þetta sinn,“ seg- ir tónlistarmað- urinn í samtali við Fréttablaðið, sem greindi frá samningnum á fimmtudag. Barnalán á Stöð 2 n Mikið barnalán leikur við starfsmenn fréttastofu Stöðvar 2 þessa dagana, hvort sem það er í formi barna eða barnabarna. Freyr Einarsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, á nú von á sínu fyrsta barnabarni, en dóttir hans Kassandra Líf á von á sér í apríl. Fréttamaðurinn knái Breki Logason á von á sínu öðru barni ásamt eiginkonu sinni Védísi Sig- urðardóttur og eins og DV hefur áður greint frá á Andri Ólafsson, fréttamaður Stöðvar 2 von á afkvæmi í lok ársins. Ekki hægt að baka í rigningu n Sigurveig Káradóttir, matgæð- ingur og eiginkona sjónvarps- mannsins Egils Helgasonar, kvartaði sáran yfir úrhelli á höf- uðborgarsvæðinu á Facebook- síðu sinni. „Farðu nú að stytta upp! Það er fólk þarna úti sem vantar makkarónurnar sínar og þær er ekki hægt að baka í rign- ingu,“ skrifaði Sigurveig og út- skýrði nánar að makkarónur þyldu hvorki raka né lægðir. „Er búin að læra að storka ekki náttúruöflun- um með því að reyna að baka í rigningu eða í ein- hverju stressi.“ V ið erum búnir að hlæja að þessu síðan þessar pæl- ingar komu fyrst fram,“ segir Ólafur Þór Ágústsson, fram- kvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði, aðspurður hvernig honum lítist á þau áform kínverska fjárfestisins Huangs Nubo að byggja golfvöll á Grímsstöðum á Fjöllum, líkt og kemur fram í drögum að samningi sveitarfélaga á Norðurlandi við fyrir- tæki Nubos. Það mun eflaust reynast þrautin þyngri að berjast við náttúruöflin þegar kemur að því að hafa golfvöll á þessu svæði sem er í 400 metra hæð yfir sjávarmáli og því gætir sumarhita þar afar lítinn hluta sumars og hefur mælst þar einn mesti kuldi á Íslandi. Ef golfvöllurinn á að standast þær kröfur sem gerðar eru til nútíma- golfvalla þá gæti kostnaðurinn við framkvæmdir á hverri braut numið að lágmarki 20 milljónum króna að mati Ólafs, sem hefur mikla reynslu af rekstri golfvalla á Íslandi. Ef Nubo ætlar sér því að gera 18 holu golfvöll á Grímsstöðum þá myndi kostnað- urinn einungis við lagningu vallar- ins nema að lágmarki 360 milljónir króna. Það er fyrir utan kostnað við klúbb – og áhaldahús, vélakost og rekstur vallarins. „Opnun á svona golfvelli yrði kannski mesta lagi í þrjá mánuði á ári þarna. Það þarf ekki rosa- lega kláran viðskiptamann til að sjá að þetta myndi aldrei ganga upp. Nema hann fljúgi Kínverjum þangað í þot- um og þeir borgi 100 þúsund kall fyrir hringinn. Þessi völlur yrði aldrei fyr- ir Íslendinga vegna verðlagningar,“ segir Ólafur en dýrasti golfhringurinn á Íslandi í dag kostar um 9.000 krón- ur. Ólafur telur það nánast útilokað að lagðar verði hitalagnir á svæðinu. „Sú tækni er í rauninni ekki til fyrir golf- velli. Þegar menn eru að segja að það sé lagður hiti í fótboltavelli á Englandi og annars staðar þá er það ekki í gróður legum tilgangi.“ birgir@dv.is Völlurinn varla fyrir Íslendinga n Golfvöllur Nubos á Grímsstöðum fjarstæðukennd hugmynd Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 12.–14. oKtÓBER 2012 118. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Mikill kostnaður Það myndi kosta Huang Nubo 360 milljónir að gera golfvöllinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.