Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 33
 33Helgarblað 12.–14. október 2012 kíló af kókaíni missti Stephen nokkur Brown í hafið fyrir utan strend- ur Cork á Írlandi árið 2007. Stephen hafði ásamt áhöfn sinni hugsað sér að koma fíkniefnunum í land á Írlandi en tókst ekki betur til en svo að gúmmíbátur sem hann hugðist nota til verksins sökk til botns með farm- inn. Nýlega fékk hinn óheppni smyglari 20 ára dóm fyrir tilraunina.1.500 R óbert Alton Harris fæddist 15. janúar 1953 í Fort Bragg í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, fimmta barn af níu. Foreldrar hans voru Kenneth, liðsforingi í banda- ríska hernum, og Evelyn Harr- is. Kenneth og Evelyn voru bæði áfengis sjúklingar og fæddist Ró- bert tveimur mánuðum fyrir tím- ann í kjölfar þess er Kenneth, sem hlotið hafði viðurkenningar fyrir framgöngu sína í seinni heimsstyrj- öldinni, sparkaði í kvið Evelyn. Talið er að Róbert hafi fengið áfengiseitr- un í móðurkviði. Hann ku hafa sætt ofbeldi í bernsku, einkum og sér í lagi af hálfu föður síns sem trúði að Róbert væri ávöxtur framhjáhalds Evelyn. Kenneth Harris hefur greini- lega ekki verið merkilegur pappír því árið 1963, eftir að hann var brottskráður úr hernum, var hann dæmdur til eins og hálfs árs fang- elsisvistar og aftur, 1964, til enn lengri fangelsisvistar. Báðir dómar voru tilkomnir vegna kynferðislegs ofbeldis sem hann hafði beitt dætur sínar. Á meðan Kenneth var á bak við lás og slá lifði fjölskylda hans hálfgerðu flökkulífi í grennd við San Joaquin-dalinn. Dæmdur fyrir manndráp Um tíu ára aldur lenti hann í úti- stöðum við laganna verði og þremur árum síðar var hann dæmdur til fjögurra mánaða dvalar í fangelsi fyrir unglinga fyrir bílþjófnað. Þegar Róbert var á fimmtánda ári yfirgaf móðir hans hann og hann lagði land undir fót og fór til Oklahoma þar sem bróðir hans og systir bjuggu. Skömmu síðar var hann aftur kominn í unglingafang- elsið, enn og aftur fyrir bílþjófn- að en var sleppt þegar hann náði nítján ára aldri. Þegar Róbert losn- aði virtist sem hann hefði róast heldur, hann fékk sér vinnu og síð- ar gekk hann í hjónaband og eign- aðist son, Róbert ungri, með spúsu sinni. En 1975 hljóp snurða á þráð- inn en um það leyti bjó fjölskyld- an í hjólhýsagarði í Imperial-sýslu. Róbert banaði herbergis félaga bróður síns með barsmíðum. Hann fullyrti að það hefði hann gert til að vernda eiginkonu fórnarlambs- ins. Síðar kom í ljós að Róbert hafði enga ástæðu haft til barsmíðanna og var hann dæmdur til fangelsis- vistar fyrir. Róbert sat inni um þriggja ára skeið og notaði eigin- kona hans tækifærið og sótti um skilnað. Róbert fékk reynslulausn í janúar 1978. Bankarán með meiru Um mitt ár 1978 fékk Róbert, þá 25 ára, yngri bróður sinn Daníel, 18 ára, til liðs við sig vegna bankaráns. Daníel stal tveimur byssum frá ná- granna sínum í Visalia í Kaliforníu 2. júlí og þá nótt óku bræðurnir til San Diego. Næstu tvo daga keyptu þeir skotfæri og æfðu bankarán í dreifbýli skammt frá Miramar-vatni. Hinn 5. júlí rákust bræðurnir á tvo sextán ára drengi, John Mayeski og Michael Baker, sem sátu í mestu makindum í grænni Ford-bif- reið á bílastæði í Mira Mesa. John og Michael voru bestu vinir og ætlun þeirra var að eyða deginum í stangaveiði til að fagna nýfengnu ökuleyfi John. Róbert tók bifreiðina traustataki og skipaði John að aka til Miramar- vatns, en Daníel elti á öðrum bíl. Róbert sagði drengjunum að hann hygðist nota bíl þeirra við banka- rán, en þeim yrði ekkert mein gert. Við Miramar-vatnið var drengj- unum skipað að fara á hnén sem þeir gerðu með bæn á vör. „Hættið þessum skælum og mætið dauða ykkar eins og karlmenni,“ sagði Róbert við drengina andartaki áður en hann dældi kúlunum í þá. Síðan snéru bræðurnir aftur í greni sitt í Mira Mesa, kláruðu hamborgara drengjanna á meðan Róbert gumaði af morðunum. Skammvinnur afrakstur Um klukkustund síðar létu bræð- urnir til skarar skríða í Trust and Savings-bankanum í Mira Mesa og komust undan með 2.000 Banda- ríkjadali, hvorki meira né minna. Vitni sá til kumpánanna og veitti þeim eftirför að aðsetri þeirra í Mira Mesa og hafði síðan samband við lögreglu. Innan við klukkutíma eftir bankaránið voru bræðurnir komn- ir í vörslu lögreglunnar. Fyrir kald- hæðni örlaganna var einn lög- reglumannanna sem handtóku þá Steven nokkur Baker, faðir Michael Baker. En á þeim tíma hafði hann ekki vitneskju um örlög sonar síns. Þegar upp var staðið sat Róbert Harris uppi með ákæru vegna bíla- þjófnaðar, mannráns, morðs og innbrots og var hann sakfelldur, þann 6. mars 1979, fyrir tvö morð og tvö mannrán og var dæmdur til dauða. Daníel Harris var sakfelldur fyrir mannrán og dæmdur til sex ára fangelsisvistar. Hann losnaði úr steininum árið 1983. Áfrýjanir um mildari dóm til handa Róbert Harris báru engan árangur og sagði þáverandi ríkisstjóri Kaliforníu að þó hann þrátt fyrir að hann fyndi til með Róbert vegna barnæsku hans gæti hann ekki afsakað eða fyrirgefið gjörðir hans sem fullorðins manns. Hinsta kvöldmáltíðin Róbert Alton Harris var tekinn af lífi 21. apríl, 1999, í gasklefa San Quentin- fangelsisins og um var að ræða fyrstu aftöku í Kaliforníu í aldarfjórðung. Síðasta máltíð hans samanstóð af 21 bita af Kentucky Fried-kjúklingi. tveimur stórum pítsum frá Domino‘s og sex dósum af Pepsi. Róbert tókst einnig að svæla í sig einn pakka af Camel-sígarettum áður en hann var leiddur í gasklefann. Aftöku Róberts Harris er einkum og sér í lagi minnst fyrir lokaorð hans sem voru fest á hljómband af fangaverði að nafni Daniel Vasques. Róbert umorðaði setningu úr bíó- myndinni Bill & Ted‘s Bogus Journ- ey: „You might be a king or a little street sweeper, but sooner or later you dance with the reaper.“ (Kóngur eða götusópari, fyrr eða síðar dansar þú við manninn með ljáinn). Lokaorð Róberts voru: „You can be a king or a street sweeper, but everybody dances with the grim reaper“, í lauslegri þýð- ingu: Þú getur verið kóngur eða götu- sópari, en allir dansa við manninn með ljáinn. Svo mörg voru þau orð. n Skammvinnur gróði„Hættið þessum skælum og mætið dauða ykkar eins og karlmenni n Bræðurnir Róbert og Daníel rændu banka n Myrtu tvo drengi fyrir bankaránið Robert Alton Harris Robert lét ekki yfirvof- andi aftöku eyðileggja fyrir sér matarlystina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.