Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 18
18 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað
R
íkissaksóknari mun ekki
ákæra lögreglumann í Vest
mannaeyjum fyrir brot
á dýraverndunarlögum,
þegar hann gerði mis
heppnaða tilraun til að aflífa læð
una Lolu í nóvember í fyrra.
DV greindi frá málinu á sínum
tíma eftir að í ljós kom að læðan
hafði lifað í tíu daga helsærð með
skotsár á höfði. Aðdragandi máls
ins var sá að eigandi Lolu sem var
eins árs sá sér ekki fært að eiga
læðuna lengur. Þar sem enginn
dýraspítali er í Vestmannaeyjum
og enginn dýralæknir að jafnaði,
fór eigandinn með Lolu á lögreglu
stöðina. Að sögn lögreglumanns
ins sem tók að sér að aflífa læðuna
gekk eigandinn hart að honum og
vildi ekki bíða eftir að dýralækn
irinn kæmi til Eyja.
Skilur ekki niðurstöðu
saksóknara
Árni Stefán Árnason, lögfræðingur
og sérfræðingur í dýrarétti, sagði í
frétt DV að hegðun lögreglumanns
ins væri ámælisverð og kærði málið
til lögreglunnar fyrir hönd Kattavina
félagsins.
Árni Stefán furðar sig á þeirri
ákvörðun ríkissaksóknara að ákæra
ekki í málinu, og segir skýrt að dýra
verndunarlög hafi verið brotin. Ég er
lögmaður Kattavinafélagsins og ég
lagði mikla vinnu í að fara yfir þetta
mál. Ég get ekki séð hvernig ríkis
saksóknari kemst að þessari niður
stöðu, þrátt fyrir að ég sé að reyna að
skilja þennan rökstuðning hans. Það
kemur skýrt fram í lögum að dýra
læknar einir megi gera þetta, það
þýðir að það má enginn annar gera
þetta. Ég sé bara ekki hvernig er hægt
að hafna því að þarna sé um refsi
verðan verknað að ræða. Þetta svar
má túlka með þeim hætti að í raun sé
verið að gefa út „skotleyfi“ fyrir alla
sem vilja drepa gæludýr með þeim
hætti sem fólki dettur í hug.“
Árni Stefán segir að það kunni að
hafa haft áhrif að það var lögreglu
maður sem var kærður fyrir athæfið.
„Mín fyrsta hugsun var sú að þarna
væri bara þessi dæmigerða íslenska
samtrygging í gangi. Ég viðurkenni
að það var það fyrsta sem mér datt í
hug, að þeir væru bara að hlífa hver
öðrum.“
Málaflokkurinn hundsaður
Í rökstuðningi ríkissaksóknara
stendur meðal annars að orðalag í
þeirri grein dýraverndunarlaga sem
kæran byggði á væri óljóst og ekki
væri grundvöllur til ákæru. Stefán
segist ekki gera sér grein fyrir hvað
sé óljóst við orðalag greinarinnar.
„Ég skil ekki hvað hann á við því
mér finnst þetta orðalag mjög skýrt.
Að einungis dýralækni sé heimilt að
gera þetta og svo er vísað til refsi
ákvæðis aftast í reglugerðinni. Mér
finnst eins og ríkissaksóknari sé
að horfa fram hjá mjög skýru laga
ákvæði um hvernig hlutirnir eiga að
fara fram og ég skil ekki niðurstöð
una. Nú erum við bæði lögfræðingar
og tökum ólíkan pól í hæðina og
þetta er bara enn eitt dæmið um það
að þessi málaflokkur fær ekki neina
athygli hjá ríkisstofnunum.“
Reyndi að skjóta á
milli augnanna
Í samtali við DV í fyrra lýsti lögreglu
maðurinn því hvernig hann fór með
læðuna í kassa út í hraun. „Hún var
búin að setja hann í kassa fyrir mig
og ég spurði hana hvort hún væri
alveg viss um að hún vildi láta lóga
kettinum. Hún svaraði játandi og
sagðist ekki geta verið með köttinn
lengur.“ Hann fór því með köttinn út
í hraun í þeim tilgangi að taka lóga
kettinum. „Ég náði höfðinu á kettin
um út úr kassanum og reyndi að
skjóta hann á milli augnanna eins
og maður á að gera. Ég hleypti af
skoti og setti kassann niður og þá
hljóp kötturinn í burtu.“
Lögreglumaðurinn svipaðist um
eftir kettinum, en þetta var snemma
morguns og dimmt úti. „Ég náði
ekki kettinum. Ég sá hann ekki.“
Annað augað lá úti
Það fór því svo að tíu dögum síðar
birtist Lola við heimili sitt helsærð.
Annað augað lá úti og greinilegt
skotsár á höfði hennar. Hún var
mjög máttfarin vegna áverkanna og
tíu daga án matar, en vildi greinilega
komast inn í húsið. Vegna ástands
læðunnar var farið með hana aftur
á lögreglustöðina þar sem hún var
endanlega aflífuð. n
Sleppur við ákæru
fyrir að skjóta kött
n Ekki ákært í máli læðunnar Lolu n Lifði í tíu daga með skotsár á höfði „… verið
að gefa út
,,skotleyfi“ fyrir
alla sem vilja
drepa gæludýr
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ekki ákært Læðan Lola lifði af skot
í höfuðið og komst til síns heima,
helsærð, tíu dögum eftir að átti að
aflífa hana.
Vonsvikinn Árni Stefán Árnason, lög-
fræðingur og sérfræðingur í dýrarétti, furðar
sig á þeirri ákvörðun saksóknara að fella
málið niður.