Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað
Meistaranám á sviði skapandi greina.
Nám í alþjóðlegum fagháskólum er einstakt tæki-
færi til að kynnast suðupotti hugmynda, með
stefnum og straumum víða að úr heiminum.
Í samstarfi við háskóla sem standa í fremstu röð á
sínu sviði getum við boðið hagnýtt nám, sem
sameinar frumkvæði, hugmyndir og tækni og er
jafnframt í náinni samvinnu við alþjóðleg fyrirtæki.
Nemendur hafa aðgang að vel búnum rannsóknar-
og vinnustofum og kennarar reyndir sérfræðingar
hver í sinni grein.
Nám erlendis í hönnun, sjónlistum, stjórnun, eða
tísku gefur einnig möguleika á að hitta rétta fólkið
og komast áfram á alþjóðlegum markaði.
Hönnun, Sjónlistir, Stjórnun og Tízka.
Interior Design • Food Design • Product Design • Sustainable
Architecture • Transportation Design • Yacht Design • Fashion
Communication / Stylist & PR • Fashion Marketing / Product
& Retail Management • Brand Management & Communication
Design Management • Visual Communications • Graphic
Design • Fashion Events & Public Relations • Arts Management
Luxury Marketing Management.
Borgir í boði; Milano, Roma, Firenze, Torino, Barcelona,
Madrid, Bournemoth, Glasgow, London.
Hægt er að hefja nám í
janúar, apríl, eða september 2013.
Kennt er á ensku.
ES
SE
M
M
0
9/
12
Vill gögn
um Guðlaug
Gunnar Andersen, fyrrverandi
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hef
ur farið fram á að saksóknari afli
upplýsinga um viðskipti Guðlaugs
Þórðarsonar, þingmanns Sjálf
stæðisflokksins við Landsbank
ann árið 2003. Á vef RÚV segir
að Gunnar segist ekki geta varið
sig fyllilega gegn ákæru nema
saksóknarinn komist yfir þessar
upplýsingar. Gunnar verst ákæru
vegna meints brots á þagnar
skyldu með því að koma upplýs
ingum um kaup Landsbankans á
umboði fyrir tryggingar Swiss Life
af félagi Guðlaugs, til DV. Kröfu
Gunnars um að ákærunni yrði
vísað frá var hafnað af dómara á
miðvikudagsmorgun en dómari
var ósammála honum að vara
ríkissaksóknari sem fer með málið
væri vanhæfur til þess.
Innheimta
sekta gengur
mjög illa
Ríkisendurskoðun lýsir áhyggj
um af því hve illa gangi að inn
heimta dómsektir vegna skatta
lagabrota hér á landi. Í frétt á vef
Ríkisendurskoðunar segir að lítið
hafi miðað í þessum efnum á síð
ustu árum og að stofnunin telji að
rýmka eigi heimildir stjórnvalda
til innheimtuaðgerða en takmarka
möguleika einstaklinga á að fulln
usta sekt sína með samfélagsþjón
ustu.
Enn fremur kemur fram að í
júní 2009 hafi Ríkisendurskoðun
birt skýrslu um hvernig staðið
hefði verið að því að innheimta
sektir og sakarkostnað sem dóm
stólar hér á landi úrskurðuðu á ár
unum 2000–2006.
Meginniðurstaða skýrslunn
ar var sú að mjög lítill hluti dóm
sekta umfram 8 milljónir króna
fékkst greiddur. Í öllum tilvikum
hafi verið að ræða sektir vegna
skattalagabrota og algengast var
að sektarþolar gerðu þær upp með
svokallaðri samfélagsþjónustu.
Heimilt er samkvæmt lögum að
fullnusta vararefsingu fésekta með
slíkri þjónustu.
V
ið vonumst í rauninni til
þess að geta fjármagnað
heilt stúdíó,“ segir Sindri
Freyr Steinsson, stuðnings
fulltrúi og ráðgjafi á endur
hæfingardeild fyrir ungt fólk með
geðrofssjúkdóma á Laugarásvegi.
Sindri Freyr og samstarfsfólk hans
vinna nú að því metnaðarfulla verk
efni að koma á fót allsherjartónlist
araðstöðu í húsnæði Landspítalans
í Víðihlíð.
Hugmyndin er sú að koma á fót
aðstöðu fyrir þjónustuþega til þess
að tjá sig í gegnum tónlist. Sindri
Freyr útskýrir í samtali við DV að
hugmyndin sé fengin frá Bretlandi,
en reynslan þar sýni að tónlistar
þerapía af þessu tagi geti reynst fólki
með geðrofssjúkdóma einstaklega
vel.
Til þess að markmiðið náist þarf
fjármuni til kaupa á ýmsum græjum,
svo sem trommum, gítar, bassa og
mixer, svo eitthvað sé nefnt. Starfs
fólk endurhæfingardeildarinnar
býður nú svokallaða brospinna til
sölu en allur ágóði mun renna í verk
efnið.
Að frumkvæði starfsfólks
Starfsfólk og þjónustuþegar á endur
hæfingardeildinni hafa frá því í
sumar verið að taka til í Víðihlíðar
húsnæðinu, að sögn Sindra Freys.
„Húsnæðið var svona hálfpartinn
nýtt sem geymsla síðustu tvö árin en
við höfum verið að ryðja burt, laga
til og stilla upp. Núna vantar bara
pening til þess að kaupa allar þess
ar græjur og gera klárt,“ segir Sindri
Freyr sem er einn þeirra sem átti
frumkvæðið að því að farið var af
stað í þetta verkefni. „Þetta kemur frá
okkur þessi vilji, ekki frá stjórnend
um eða neitt slíkt,“ segir hann.
Sindri Freyr segir Víðihlíðarhús
næðið henta vel í verkefnið enda eigi
það sér merkilega sögu. „Í þessu hús
næði var löngum geðdeild en eins
og margir þekkja lá Megas meira að
segja þar inni og samdi lag.“ Auk þess
að koma á fót tónlistarstúdíói í hús
næðinu er hugmyndin að þar verði
lítið kaffihús, myndlistaraðstaða
sem og svið fyrir tónleika. „Þarna
verður bókakrókur og spil og von
andi svona félagsmiðstöðvafílingur
fyrir þjónustuþegana,“ segir Sindri
Freyr og bætir við að á efri hæðinni
sé stór fundarsalur en ætlunin sé að
nýta hann sem fyrirlestrarsal fyrir að
standendur.
Hópefli og gleði
En hvers vegna tónlist? Sindri Freyr
segir tónlistarsköpun geta hjálpað
fólki með geðrofseinkenni að tjá sig.
„Á ákveðnum stigum þessara geð
rofssjúkdóma þá er fólk mjög lokað
og á erfitt með að tjá sig en í gegnum
þessa tónlistarþerapíu fær fólk tæki
færi og tæki til þess að tjá tilfinningar
í tónlist sem það kemur ekki orðum
að. Það hefur sýnt sig að þetta bætir
líðan fólks.“
Sindri Freyr, sem er einmitt
tónlistarmaður sjálfur, segir hug
myndina vera að breskri fyrirmynd.
„Við fengum heimsókn í fyrra frá
þeim sem standa að þessu úti í
London. Þau komu og héldu svona
djammsessjón inni í stofu hérna á
Laugarásvegi og það var þvílíkt stuð
og partí.“ Hann segir hópeflið og
gleðina ekki hafa leynt sér í þeim
hópi.
Brospinnar
Frá árinu 2010 hafa starfsmenn
geðsviðs LSH farið í fjáröflun fyrir
geðdeildir Landspítalans, en félagið
hannaði og seldi svokallaða bros
pinna til þess að afla fjár. Starfsfólk
endurhæfingardeildar fyrir ungt fólk
með geðrofssjúkdóma hyggst næstu
misseri bjóða slíka brospinna til sölu
og rennur allur ágóði af sölunni í
þetta mikla tónlistarverkefni. Í til
kynningu frá hópnum eru fólk og
fyrirtæki hvött til þess að fjárfesta í
brospinnum: „Þetta er stórt og þarft
verkefni sem þarfnast mikilla fjár
muna. Við viljum að þjónustuþegum
okkar líði vel og að þeir fái krefjandi
verkefni til að ná enn betri árangri í
endurhæfingu.“
Sindri Freyr segir brospinnana
kosta 1.000 krónur og hægt sé að
kaupa þá beint af starfsfólki á Laugar
ásvegi 71 ásamt því sem bros pinnar
verði seldir í Mjódd fyrir deildina
dagana 12.–14.október. Þá sé einnig
hægt að senda tölvupóst á netfangið
johannaa@landspitali.is og tilgreina
fjölda brospinna og hvert óskað sé
eftir að þeir berist. Þá getur fólk milli
fært 1.000 krónur fyrir hvern bro
spinna á reikning 117526006812,
kennitala 6812100400 en nauðsyn
legt er að merkja slíkar færslur með
„ELR BROS“. n
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Víðihlíðarhúsnæðinu breytt í hljóðver að frumkvæði starfsfólks
Safna fyrir
hljóðfærum
Meiri tónlist Sindri Freyr Steinsson og Sigurður Sveinsson stuðningsfulltrúar stilltu sér upp fyrir framan Víðihlíð. Mynd eyþór árnAson
„Núna vantar bara
pening til þess
að kaupa allar þessar
græjur og gera klárt.