Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 53
Fólk 53Helgarblað 12.–14. október 2012
Þ
að er bara æðislegt að vera
á þessum tímamótum og
vera orðin amma og allt það.
Þetta er bara gaman,“ segir
Sigríður Lárusdóttir í Vogum sem
er sextug í dag, föstudag. Sigríður
ætlar að taka á móti gestum í kvöld
og bjóða upp á smurbrauð. Hún
segist ekki vera mikið afmælisbarn
en að hún fái yfirleitt gesti þennan
dag. „Við vorum að flytja þegar ég
varð fimmtug og ég hef ekki haldið
upp á afmælið mitt lengi. Ætli það
hafi ekki verið síðast þegar ég var
25 ára.“
Aðspurð segist Sigríður meta
lífið meira aldrinum. „Maður er
orðinn þroskaðri eða ætti allavega
að vera það. Strax eftir fimmtugt fer
maður að horfa öðruvísi á lífið og
metur það meira. Ég fékk krabba
mein sem varð til þess að ég fór að
hugsa og komst að því að ég gæti
málað. Ég varð mjög hissa að kom
ast að því en myndirnar mínar eru
alltaf að verða betri og betri. Það
eru ekki allir sem fá slíkt í vöggu
gjöf.“
É
g ætla bara að hafa kaffi fyrir
fjölskylduna. Þetta verður
eitthvað rólegt. Í mesta lagi
kíkir maður á pöbbinn,“ seg
ir Þuríður Kristjana Bæringsdóttir
í Búðardal sem verður þrítug í dag,
föstudag, en pöbbinn í Búðardal
heitir Bjarg og er allt í senn gisti
heimili, veitingastaður og pöbb.
Þuríður Kristjana stefnir svo að
því að halda veislu í næsta mánuði.
„Ég og bróðir minn ætlum að halda
upp á afmæli okkar saman en hann
verður fertugur þann 17. október.
Það eru miklar framkvæmdir í fé
lagsheimilinu í bænum og það
verður ekki strax tilbúið,“ segir hún
og bætir hlæjandi
við að það dugi
ekkert annað en
heilt félagsheimili
fyrir herlegheitin.
Hún segir þau
ekki hafa haldið
svo stóra veislu
saman áður en
enn fremur að
það sé afar fínt að
búa í Búðardal.
„Hér er mjög rólegt og hér þekkja
allir alla,“ segir hún og bætir að
spurð við að það sé í fínu lagi að
vera kominn á fertugsaldurinn. „Ég
finn engan mun.“
Metur lífið meira
Kíkir kannski á pöbbinn
Þuríður K. Bæringsdóttir þrítug í dag, föstudag
F
rostrósir virðast hafa skapað
sér fastan sess í jólaundir
búningi þúsunda lands
manna og tónlistarvið
burðurinn sagður einn sá
vinsælasti á Íslandi.
En hvað segja prestar um það
auglýsingaslagorð tónleikanna að
Frostrósir færi okkur jólin?
Séra Pétur Þorsteinsson í kirkju
Óháða safnaðarins varð fyrir svörum
og segir jólin orðin að einni allsherj
armarkaðsherferð.
„Jólin eru þá líklegast ekki
haldin nema þú farir á tónleika með
Frostrósum? Það eru nú fleiri tel ég
sem ég hlýða frekar á aftansönginn
á aðfangadag,“ segir Pétur og hlær.
„Markaðsfyrirtækin slá honum ekki
við.“
Búið að stilla upp jólamaltinu
„Menn eru byrjaðir að auglýsa ein
hverja jólaóróa strax í september,“
segir hann og segist nýkominn úr
Krónunni þar sem búið var að stilla
upp jólamaltinu. „Forðist frekar
jólaösina og komið í galdramessu
til mín á sunnudaginn,“ segir Pétur
glaðhlakkalegur.
Pétur er einn af stofnfélögum
Hins íslenska töframannagildis.
Hann segir að með sjónhverfingun
um vilji hann leggja áherslu á
boðunina – hann vill hafa þetta
sjónrænt til að það hafi meiri áhrif. Á
einni galdramessu galdraði Pétur lif
andi dúfu upp úr hatti og flaug hún
um kirkjuna. Hvað með viðbrögð
fólks við þessum kúnstum? „ Sumir
segja: Þetta er bara Pétur í Óháða
söfnuðinum,“ segir Pétur og hlær.
„Það er allt í lagi. Ég hef ákveðið
vörumerki og ég stend og fell með
því.“
Áhugasamir geta sótt galdra
messuna á sunnudaginn 14. október
klukkan 14.00. n kristjana@dv.is
Færa Frostrósir
okkur jólin?
n „Jólin orðin ein allsherjarmarkaðsherferð,“ segir séra Pétur„Menn eru
byrjaðir að
auglýsa einhverja
jólaóróa strax í
september
Heldur galdramessu
á sunnudaginn „Forðist
frekar jólaösina og komið
í galdramessu til mín á
sunnudaginn,“ segir Pétur
glaðhlakkalegur.
Mætir vopnaður á hlaðborðið
K
jartan Ingi Lorange ku vera hálfgerð
goðsögn í heimi skotveiðimanna. Það
orð fer af honum að hann sé lands
ins besti gæsaflautuleikari og heldur
hann reglulega námskeið í gæsaflautuleik.
Gestir á villibráðarhlaðborði á veitinga
staðnum Nítjándu munu mæta Kjartani
klyfjuðum skotvopnum sem hann sýnir
gestum, ásamt því að segja skemmtilegar
veiðisögur.
„Ég kem til með að mæta með einhver
djásn og leyfa gestunum að kynnast því
hvað þarf að hafa í höndunum til þess að
koma bráðinni á diskinn. Ég mun líka reyta
af mér veiðisögurnar fyrir þá sem vilja,“
segir hann.
En ætlar hann að spila á gæsaflautuna
fyrir gesti? Og er það mikil list? „Ég veit það
nú ekki, en ég tek hana með. List og ekki
list. Það er hægt að gera það vel og það er
hægt að gera það illa að blása í gæsaflautu.
Það er nú hægt að nota gæsaflautu til að
bjarga lífi þeirra,“ segir hann og hlær og
útskýrir að með illa ígrunduðu flauti fæli
maður frekar gæsirnar frá en að laða þær
að sér.
Kjartan segist greina aukinn áhuga hjá
almenningi um veiðar. „Vinsældirnar á villi
bráðarhlaðborðum eru miklar, fólk vill geta
sótt villibráðina sjálft. Við búum í landi þar
sem við búum við tiltölulegt sjálfræði og
styrka stofna að veiða úr. Ég vona að græna
herdeildin á þingi láti það síðan vera að
banna sölu á villibráð, það er engin ástæða
til að setja á slíkt bann.“
kristjana@dv.is
n Flautuleikari með haglabyssu
Ánægð með lífið Sigríður býr í Vogum
og ætlar að taka á móti gestum í kvöld.
Sigríður Lárusdóttir sextug í dag, föstudag
Lífið er of stutt
til að vera lítill
K
raftakarlinn Magnús Bess
Júlíusson, betur þekktur sem
Maggi Bess, fagnaði afmæli
sínu í vikunni. Maggi var
staddur í keppnisferð á Spáni þegar
stóri dagurinn rann upp en hann er
margfaldur sigurvegari í vaxtarrækt
og varð til að mynda Norðurlanda
meistari árið 2008. Í tilefni dagsins
fékk Maggi boli með áletruninni
M.BESS Life is to Short to be Small
eins og sjá má á þessari mynd sem
eiginkona hans, vaxtarræktarkonan
Katrín Eva Auðunsdóttir, smellti á
fésbókarsíðu þeirra hjóna.
Maggi Bess hélt upp á afmælið með því að keppa
Afmælisbarn Maggi fagnaði afmælinu
sínu með því að keppa í vaxtarrækt.