Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 44
44 Sport 12.–14. október 2012 Helgarblað n Farið yfir síðustu leiki Íslands, Sviss og Albaníu í undankeppnum Í slenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Albaníu á útivelli í þriðja leik sínum í undankeppni HM í kvöld, föstu- dag. Ljóst er að Ísland þarf nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á að blanda sér í bar- áttuna um efstu sæti riðilsins. Átta ár eru liðin síðan þessi lið mættust en það var einmitt í vináttuleik í Albaníu árið 2004 og fóru heimamenn með 2–1 sigur af hólmi. Þessi lið mættust síðast í undankeppni fyrir EM 1992; Ísland vann heimaleik sinn, 2–0, en Albanir unnu á sínum heimavelli, 1–0. Bæði lið eru með þrjú stig í E- riðli en Sviss, sem mætir á Laugar- dalsvöll á þriðjudag, er með sex stig á toppi riðilsins. Tortímandinn á miðjunni Þekktasti leikmaður albanska liðsins er án efa fyrirliðinn og harðjaxlinn á miðjunni, Lorik Cana. Cana, sem er 29 ára, leikur með Lazio á Ítalíu en hann á 62 landsleiki að baki fyrir Al- baníu. Það verður væntanlega mikil barátta á milli hans og Arons Einars Gunnarssonar á miðjunni en Cana þessi, sem gjarnan er kallaður tor- tímandinn, er þekktur fyrir að láta finna vel fyrir sér í leikjum. Albanska liðið er ágætlega mannað þrátt fyrir að sitja aðeins í 84. sæti á styrkleika- lista FIFA. Þeirra sterkasti og reynslu- mesti framherji er hinn 35 ára gamli Erjon Bogdani sem leikið hefur á Ítalíu óslitið frá árinu 2000. Hann leikur í dag með Siena í A-deildinni þar sem hann á fast sæti. Á löngum ferli sínum hefur Bogdani skorað 176 mörk í 393 leikjum með félagsliðum sínum og 17 mörk í 64 landsleikjum. Þá þarf íslenska liðið að hafa gætur á hinum unga og efnilega vængmanni, Odise Roshi, sem leikur með Frank- furt í Þýskalandi. Roshi, sem er 21 árs, á átta leiki að baki fyrir Albaníu en hann skoraði 7 mörk í 10 lands- leikjum með U21 árs liði Albana. Sterkir leikmenn Sviss Ísland mætir sem fyrr segir Sviss á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöld. Mikill uppgangur hefur verið í sviss- neska landsliðinu undanfarin ár og er liðið skipað fjölmörgum ung- um og efnilegum leikmönnum. U21 árs lið þeirra komst í úrslitaleik EM í fyrra en beið lægri hlut fyrir Spán- verjum í úrslitum. Skærasta stjarna liðsins er hinn ungi Xherdan Shaqiri sem leikur með Bayern München. Shaqiri, sem er 21 árs, sló í gegn með Sviss á EM U21 og vakti frammistaða hans þar athygli fjölmargra stórliða. Hann fór fyrir liði Basel sem komst í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar í vor og var seldur til Bayern í sumar. Fleiri ungir og efnilegir leik- menn eru í svissneska liðinu. Má þar nefna harðjaxlinn á miðjunni, Granit Xhaka, sem lék með Shaqiri hjá Basel áður en hann var seldur til Borussia Mönchengladbach. Liðið er einnig skipað reynsluboltum sem leika með stórum liðum í Evrópu. Fyrirliðinn Gökhan Inler leikur með Napoli eins og Valon Behrami, Tranquillo Barnetta leikur með Schalke í Þýska- landi og ekki má gleyma Arsenal- manninum Johan Djorou. Þá er mikill reynslubolti við stjórnvölinn hjá svissneska liðinu, Ottmar Hitz- feld, sem stýrði Bayern München og Borussia Dortmund með góðum ár- angri. n Síðustu leikir liðanna DV tók saman tölfræðiupplýsingar úr sjö síðustu leikjum Íslands, Sviss og Albaníu í undankeppnum. Upplýsingarnar eru byggðar á tölum sem eru aðgengilegar á vef Soccernet. Flestir leikjanna eru úr undankeppni EM 2012. Sviss hefur skorað flest mörk, eða ellefu talsins, og auk þess fengið á sig fæst, eða 5. Þeir eiga einnig flest skot að marki og á mark andstæðingsins að meðaltali. Íslenska liðið hefur aðeins skorað sex mörk í síðustu sjö leikjum sínum í undankeppnum en fengið á sig 9. Í töflunni hér að neðan eru birtar meðaltalstölur (% með bolta, skot á mark og að marki og brot). Skoruð mörk og mörk fengin á sig eru heildartölur. Sviss Mörk skoruð Mörk fengin % með bolta skot (á mark) brot Samtals: 11 5 51 11(6) 11 * Leikir gegn Albaníu, Slóveníu, Svartfjallalandi, Wales, Búlgaríu (x2) og Englandi Albanía Mörk skoruð Mörk fengin % með bolta skot (á mark) brot Samtals: 6 12 50 9(5) 11 * Leikir gegn Kýpur, Sviss, Hvíta-Rússlandi, Bosníu, Frakklandi (x2) og Lúxemborg Ísland Mörk skoruð Mörk fengin % með bolta skot (á mark) brot Samtals: 6 9 49 5(3) 14 * Leikir gegn Noregi (x2), Kýpur (x3), Danmörku og Portúgal. Spáir sigri og jafntefli Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu, spáði í spilin fyrir komandi leiki í miðvikudagsblaði DV. Hann spáði Íslendingum 2–0 sigri gegn Albönum og að leikurinn gegn Sviss á Laugardals- velli yrði jafntefli, 1–1. „Varnarleikurinn heldur í Albaníu og við vinnum 2–0. Leikurinn gegn Sviss verður gríðar- lega erfiður. Það er lykilatriði að halda þeim leik jöfnum eins lengi og við mögulega getum. Til að fá hagstæð úrslit verðum við að skora fyrsta markið. Ég segi 1–1,“ sagði Kristján. Ef þessi spá rætist ættu Íslendingar að geta vel við unað enda andstæðingarnir sterkir. Vissir þú … … að Albanía hefur ekki unnið 9 af síðustu 10 leikj- um sínum í undankeppni HM. … að Slóvenía, sem er með Íslandi í riðli, hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum í undankeppni HM. … að það hafa verið skoruð 7 mörk í síðustu 4 leikjum Íslands í undankeppni HM. … að Sviss hefur ekki tapað síðustu 10 leikjum sínum í undankeppni HM. … að síðasta tap Sviss í undankeppni HM kom á heimavelli gegn Lúxem- borg, 2–1, í september 2008. … að Albanía hefur tapað 2 af síðustu 6 heimaleikjum sínum í undankeppni HM, gegn Ungverjum árið 2008 og Portúgal árið 2009. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Tortímandinn Lorik Cana er stór og stæðilegur og tekur mikið til sín taka á miðjunni. Hér lætur hann Cristiano Ronaldo finna fyrir því í landsleik gegn Portúgal. Þrír góðir Xherdan Shaqiri, Granit Xhaka og Valon Behrami eru allir lykilmenn í svissneska landsliðinu. Myndir reuTerS Harðjaxlar og reynsluboltar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.