Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 38
Fjarlæg ást
Ekkert sjónvarp fyrir börnin
n Sjónvarpsgláp getur skaðað lítil börn
æ
fleiri breskir sérfræðingar
benda nú á að það sé lík
lega ekki svo góð hug
mynd að planta ungum
börnum fyrir framan sjónvarp eða
tölvuskjá. Hópur barnalækna skrif
aði grein í virt breskt læknatímarit í
vikunni þar sem lagt var til að lækn
ar og yfirvöld settu tímamörk á áhorf
barna á skjái, allt frá sjónvarpsskjá
um til farsímaskjáa. Hópurinn vill að
börn, yngri en þriggja ára, horfi alls
ekkert á sjónvarp. Þetta kemur fram
í Guardian. Slíkar leiðbeiningar eru
til í Bandaríkjunum, Kanada og
Ástralíu en ekki í Bretlandi.
Í rannsókn sem sérfræðinga
hópurinn framkvæmdi kom í ljós
að ef ung börn eyða of miklum tíma
fyrir framan skjáinn geti það haft
alvarleg áhrif á andlegan og jafn
vel líkamlegan þroska þeirra og
aukið líkur á offituvandamálum og
hjartasjúkdómum. Í niðurstöðum
rannsóknarinnar kom fram að
börn undir þriggja ára aldri væru
sérstaklega viðkvæm þar sem
heili þeirra væri enn á mikilvægu
þroskastigi. Hópurinn vill tak
marka áhorf krakka yngri en sextán
ára við tvo tíma á dag. n
38 Lífsstíll 12.–14. október 2012 Helgarblað
1 segðu það sem þér ligg-
ur á hjarta Mak
inn heyrir það á þér
þegar þér liggur eitt
hvað á hjarta. Ef þú
útskýrir ekki hvað það
er sem plagar þig máttu
vera viss um að maki, sem sér þig
ekki og getur ekki lesið í líkams
tjáningu þína, telur oft að hann eða
samband ykkar sé vandamálið. Það
er líka ekkert skemmtilegt að eiga í
sambandi við dularfullan og kvíð
inn maka. Tjáðu þig og segðu hvað
er að angra þig, alveg sama hversu
heimskulegt það kann að hljóma.
Ekki láta misskilning ganga af
sambandinu dauðu.
2 skipulegðu heimsóknir Ertu mikið fyrir
óvæntar uppákom
ur? Það er í góðu
lagi að koma mak
anum á óvart með
óvæntri heim
sókn en mundu að
skipulagðar heim
sóknir eru líka af hinu
góðu. Það er alltaf gott að hafa eitt
hvað til að hlakka til auk þess sem
vitneskjan um að þið munið sjást
innan tíðar gerir kveðjustundina
mun auðveldari. Svo er auðvit
að miklu ódýrara að kaupa
farmiða fram í tímann.
3 gerið eitthvað saman þótt þið
séuð aðskilin Þið þurf
ið ekki að vera í sama póst
númerinu til að skemmta ykkur
saman. Búið til dæmis til reglu um
að hringjast alltaf á eftir uppáhalds
þáttinn ykkar eða horfið á bíómynd
saman þótt þið séuð hvort á sínum
staðnum í veröldinni. Það er alltaf
jákvætt að hafa eitthvað fleira að
tala um en bara hversu mikið þið
saknið hvors annars. Þannig verða
samtölin innihaldsríkari og eðli
legri.
4 Ekki vera afbrýðisamur/söm Einn af fáum
kostum við fjarsam
band er að þú hef
ur meiri tíma fyrir
vinina. Ekki láta
afbrýðisemina
ná tökum á þér;
jafnvel þótt
maki þinn
eyði
sínum
frítíma í
hópi fólk sem
þú þekkir lítið sem ekk
ert og jafnvel af gagn
stæðu kyni. Ef þú treystir
ekki maka þínum hefur hann
enga ástæðu til að treysta þér og þá
er grundvöllurinn fyrir sambandinu
brostinn. Og mundu að það er ekk
ert til sem heitir „það er ekki fram
hjáhald ef þú ert í öðru póstnúmeri“.
5 talið saman með myndavélum Og ekki bara
kynlífsins vegna. Notaðu tæknina,
sama hvort hún heitir Face Time,
iChat, Google Chat eða Skype. Að
geta horft á hvort annað á meðan
þið ræðið um vinnuna, vinina og
fjölskylduna byggir upp sterkari
og nánari tengsl á milli ykkar.
Ef þið eruð eitthvað ósátt við
hvort annað er mun betra
að ræða málin í gegn
um Skype
held
ur en
þurfa
að
giska í
þögnina
í gegnum
símann. n
n 5 góð ráð til að koma í veg fyrir að fjarlægðin gangi af ástarsambandinu dauðu
„Og mundu
að það er
ekkert til sem
heitir „það er ekki
framhjáhald ef
þú ert í öðru
póstnúmeri
Mikil fjölgun í hópi 55 ára
sjúklinga og yngri:
Yngra fólk
fær heila-
blóðfall
Tíðni yngri sjúklinga sem fá
heilablóðfall hefur stóraukist ef
marka má nýja rannsókn. Vís
indamenn, sem byggðu rann
sókn sína á bandarískum gögn
um, komust að því að frá árinu
1993 til ársins 2005 hafði meðal
aldur sjúklinga sem höfðu feng
ið heilablóðfall lækkað úr 71
ári niður í 69 ár. Einnig kom í
ljós að einstaklingar undir 55
ára aldri væru nú fimmtungur
þeirra sem fá heilablóðfall.
Vísindamenn telja að ástæð
una megi rekja til hækkandi
tíðni sykursýki, offitu og of hás
kólesteróls í blóði og að ein
hverju leyti hafi betri grein
ingaraðferðir áhrif. „Hins
vegar er ljóst að hærri tíðni
á meðal yngri hópa er mikið
áhyggjuefni,“ sagði taugasér
fræðingur við USA Today. „Ef
einstaklingurinn er kominn á
gamalsaldur erum við líklegri til
að uppgötva að um heilablóð
fall er að ræða. En bæði læknar
og sjúklingar hafa alltaf fyrirvar
ann á ef um ungan einstakling
er að ræða. Hins vegar verðum
við öll að þekkja einkennin.“
Stubbastund
Sérfræðingahópur-
inn vill takmarka
sjónvarpsáhorf
yngstu barnanna.