Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 19
Fréttir 19Helgarblað 12.–14. október 2012
F
erðamenn sem dvöldu á Ís-
landi á tímabilinu september
2011 til maí 2012 virtust afar
sáttir við dvöl sína á Íslandi
samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem Ferðamálastofa fékk
markaðsrannsóknafyrirtækið MMR
til að framkvæma. Þetta kemur fram
í tilkynningu sem Ferðamálastofa
sendi frá sér en athygli vekur að
flestir þeirra sem voru spurðir lýstu
yfir vilja sínum til að koma aftur til
landsins.
Íslandsferðin stóðst væntingar
95 prósenta svarenda og tæp 85 pró-
sent svarenda töldu líklegt að þeir
myndu ferðast aftur til Íslands. Í til-
kynningu frá Ferðmálastofu kemur
fram að langflestir sem hingað komu
hafi verið í fríi og var dvalarlengdin
að jafnaði um 6,6 nætur. „Fjölmargir
þættir höfðu áhrif á að Ísland varð
fyrir valinu þó svo náttúran, menn-
ingin eða sagan og gott ferðatilboð
hafi oftast verið nefnd. Dvöl svar-
enda var að stærstum hluta bund-
in við höfuðborgarsvæðið og voru
hópferðabílar sá samgöngumáti
sem mest var nýttur. Fimmtungur
vetrargesta hafði áður heimsótt
landið. Í átta tilfellum af hverjum
tíu var ferðalagið einungis bundið
við Ísland,“ segir í niðurstöðum
könnunarinnar.
Með könnuninni var aflað upplýs-
inga um erlenda ferðamenn á Íslandi,
aðdragandann að Íslandsferðinni,
ferðahegðun þeirra á Íslandi, eyðslu-
hætti og viðhorf þeirra til ýmissa
þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um
var að ræða framhald af netkönnun
sem framkvæmd var sumarið 2011
en netföngum var safnað með skipu-
lögðum hætti á komu- og brottfarar-
svæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á
tímabilinu 1. september 2011 til 31.
maí 2012. Úrtakið var 4.512 manns
og var svarhlutfallið 52,6 prósent. n
Ferðamenn almennt sáttir
n Könnun Ferðamálastofu á ánægju erlendra gesta
Sáttir ferðamenn 85 prósent ferða-
manna töldu líklegt að þeir myndu koma
aftur til Íslands. Mynd JG
Of margir
útlendingar
Fjöldi erlendra ferðamanna á Ís-
landi er orðinn alltof mikill að mati
þingmannsins Þórs Saari og seg-
ir hann fjöldann vera að skemma
landið. „Við ráðum ekki við þennan
fjölda. Hann er að skemma landið,“
sagði Þór í útvarpsþættinum
Reykjavík síðdegis og bætti við
að hugmyndir um fjölgun ferða-
manna gangi ekki upp, en hug-
mynd ferðaþjónustunnar er að ein
milljón ferðamanna sæki Ísland
heim árlega á komandi árum. „Ís-
lendingar sem fara niður í miðbæ á
sitt kaffihús, sem þeir hafa kannski
gert árum saman, komast ekki að
vegna þess að það er allt fullt af
einhverjum ferðamönnum,“ sagði
hann. Þór telur líka ferðaþjón-
ustuna skemma út frá sér, frekar en
vera Íslandi til góða. Hún svipti Ís-
lendinga því umhverfi sem þeir eru
vanir og segir hann útlendinga vera
truflandi á ferðamannastöðum.
Outlaws-liðar
lausir úr haldi
Tveir karlar og ein kona, sem
voru handtekin og úrskurðuð í
gæsluvarðhald í tengslum við
aðgerðir lögreglu gegn vél-
hjólagenginu Outlaws í síðustu
viku, eru laus úr haldi. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
lögreglunni sem send var út á
miðvikudag en þar segir einnig
að rannsókn málsins haldi
áfram og að henni miði ágæt-
lega. Fólkið var handtekið í víð-
tækum aðgerðum lögreglunnar
í síðustu viku. Aðgerðirnar eru
einhverjar þær umfangsmestu
sem lögreglan á Íslandi hefur
farið í, en rúmlega sjötíu lög-
regluþjónar tóku þátt í henni.
Framkvæmd var í húsleit í höf-
uðstöðvum Outlaws og á fleiri
stöðum. Fólkið er grunað um að
hafa skipulagt árásir á fjölskyld-
ur lögreglumanna og þá sjálfa.
Eru það grunað um að hafa ætl-
að að ráðast á heimili þeirra og
beita ofbeldi.
Skjálftar við
Grímsey
Nokkrir jarðskjálftar mældust
eftir hádegi á fimmtudag við
Grímsey. Einn jarðskjálftanna
var um þrjú stig á Richter að
stærð. Hinir skjálftarnir hafa
mælst á tvö til þrjú stig á skal-
anum. Í svörum Veðurstofu Ís-
lands við fyrirspurn RÚV kom
fram að algengt sé að jarðskjálft-
ar verði á svæðinu og þar hafi
verið skjálftahrinur undanfar-
ið. Ekki sé óeðlilegt að skjálftar
mælist á svæðinu og sé ekkert
sérstakt hægt að lesa í þá.