Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Qupperneq 16
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
1945 1950 1955 1960
Mynd 5
Til velferðarsamanburðar ætti helzt að deila
í neyzluna með reiknuðum neyzlueininga-
fjölda þjóðarinnar og í tekjurnar með sömu
tölu eða með heildarmannfjölda. Til afkasta-
samanburðar ætti að deila í framleiðslustærð-
irnar með fjölda vinnandi fólks. Utreikningar
hagdeildar Framkvæmdabankans á fjölda
starfandi fólks, byggðir á föstum hlutföllum
atvinnuþátttöku eftir kyn- og aldursskiptingu,
benda til þess, að starfandi fólki hafi fjölgað
um 8% minna að tiltölu en mannfjöldanum frá
1945—1959. En hlutföllin geta mjög vel hafa
breytzt frá 1950, en eftir þeim hlutföllum var
reiknað. Raunar hlýtur talsverð aðlögun af
því tagi að hafa átt sér stað. Þar sem úr-
vinnsla aðalmanntalsins 1960 hlýtur brátt að
varpa Ijósi á þetta atriði, þykir ekki rétt
að gera nú neina áætlun um fjölda starf-
andi fólks, heldur er deilt með heildar-
mannfjöldanum í nokkrar talnaraðir.
Niðurstöðurnar í vísitöluformi, standa
því fremur til hækkunar en lækkunar,
sé miðað við fjölda starfandi fólks.
Fjórum stærðum er deilt með meðal-
mannfjölda hvers árs: einkaneyzlu, neyzlu
alls, vergri þjóðarframleiðslu og hreinum
þjóðartekjum, öllum á verðlagi ársins
1954. Vísitölur þessara stærða liggja að
sjálfsögðu allar talsvert neðar en vísitöl-
ur hinna ódeildu heildarstærða. Neyzlan
virðist tæpast hafa aukizt nokkuð á mann
yfir tímabilið í heild, en verg þjóðar-
framleiðsla um 20%, þ. e. um 1.2% á
ári og hreinar þjóðartekjur um 13% eða
0.8% á ári.
Að því er varðar þessar stærðir, er
það þó svo greinilegt, að ekki verður
fram hjá komizt, að tímabilið skiptist
í a. m. k. tvö skeið, með skil um 1951—
1952. Frá 1952—1960 óx einkaneyzlan
á mann um 33%, eða 3.6% á ári, neyzlan
alls á mann um 34% eða 3.7% á ári, verg
framleiðsla á mann um 32%, eða um
3.5% á ári, og hreinar tekjur á mann um
39%, eða um 4.2% á ári.
Heimildir og áætlunaraðferðir
Þjóðartekjur.
Þjóðartekjur eru þær tekjur er stafa frá
hagrænni starfsemi einstaklinga, félagasam-
taka þeirra og hins opinbera. Þessar tekjur
eru vinnulaun og alls konar þóknun fyrir
vinnu, þar með talið framlag atvinnurekenda
til trygginga launþega og til sjóða, er á einn
eða annan hátt er ráðstafað í þágu launþega,
eignatekjur allar og allur ágóði fyrirtækja án
tillits til þess hvort þeim ágóða er úthlutað
eða varið til eignaaukningar.
Þjóðartekjurnar eru í kerfisbundnu sam-
14