Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 31
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA
skap ríkis og sveitarfélaga hafa verið unnar
upplýsingar um þátt liins opinbera í eignatekj-
um og þar með í þjóðartekjum. Sérrannsóknir
hafa verið gerðar varðandi tekjur banka og
sparisjóða, skattfrjálsar tekjur samvinnufé-
laga, skattfrjálsa sjóðsmyndun tryggingarfé-
laga og varðandi ýmsar aðrar tekjur, er teljast
til þjóðartekna, en ekki eru taldar með tekj-
um fyrirtækja á skattskrám.
Frádráttarliðir vegna útreiknings þjóðartekna.
Þær leiðréttingar sem taldar eru í annarri,
þriðju og fjórðu línu yfirlitstöflunnar eru við-
bótarliðir við framtaldar nettótekjur til nálg-
unar við þjóðartekjur. En skattalög telja til
tekna ýmsar tekjur einstaklinga, sem ekki falla
undir skilgreiningu þjóðarteknanna. Tekjur
af tilfærslum, annaðhvort frá því opinbera eða
frá öðrum aðilum, stafa ekki frá hagrænni
starfsemi einstaklinganna og eru ekki hluti
þjóðarteknanna. Hér er því gerður frádráttur
vegna þeirra persónulegu tekna, er framtelj-
endur fá fyrir milligöngu hins almenna trygg-
ingarkerfis. Gjafir á milli einstaklinga falla
einnig í þennan flokk, en framtal slíkra til-
færslutekna mun vera sjaldgæft, þannig að
frádráttur af þessum orsökum hefur ekki verið
metinn hér.
Vinnutekjur erlendra manna hér á landi
teljast ekki til þjóðartekna, og er þessi liður
því metinn til frádráttar.
Viðbót vegna vanframtalinna tekna o. a.
Astæða þykir til að taka fram að hér er
ekki um að ræða mat á skattsvikum, sem geta
bæði verið minni og meiri en sú viðbót, sem
hér er gerð, heldur aðgerð til þess að sam-
ræma þau möt á þjóðartekjum sem fást með
því að fara tvær leiðir, báðar krókóttar og
torfamar.
Frádráttarliðir
Milljónir króna
1945 1946 1947 1948 1949 1950 1951 1952
1. Skattskyldar tilfærslutekjur, taldar í
nettótekjum 5.8 7.2 34.4 36.1 37.5 46.0 56.3 68.1
2. Vinnulaun til erlendra manna, áætlað - - - - - - - -
5.8 7.2 34.4 36.1 37.5 46.0 56.3 68.1
1953 1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960
1. Skattskyldar tilfærslutekjur, taldar í
nettótekjum 88.9 93.1 96.0 109.9 116.8 128.6 142.3 314.4
2. Vinnulaun til erlendra manna, áætlað - 2.7 15.1 26.3 33.5 31.7 18.4 29.0
88.9 95.8 111.1 136.2 150.3 160.3 160.7 343.4
Þjóðartekjurnar 1957—1960 eru metnar ann-
ars vegar frá tekjuframtalshliðinni sem:
1) Framtaldar nettótekjur + 2) Leiðrétting-
ar vegna lögleyfðs frúdráttar -f 3) Endurmat
þáttatekna -f- 4) Skattfrjálsar tekjur stofnana
og samtaka — 5) Frádráttarliðir + 6) Van-
framtaldar tekjur o. a. = Þjóðartekjur.
En hins vegar frá ráðstöfunarhliðinni sem:
1) Neyzla einstaklinga og samneijzia -f- 2)
Fjármunamijndun og birgðabreytingar + 3)
Útflutningur — 4) Innflutningur — 5) Óbeinir
skattar -f- 6) Framieiðslustijrkir — 7) Afskrift-
ir vegna siits og úreidingar fjármuna = Þjóð-
artekjur.
Það gefur auga leið, að slík möt, hve vel
sem þau eru unnin, verða alltaf óviss, og sú
29