Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Blaðsíða 39
Neyzla einstaklinga á vörum og
þjónustu árin 1957-1960
Skýrsla þessi um einkaneyzluna er samin af Eiríku Önnu Friðriks-
dóttur, í framhaldi af grein um sama efni í 10. hefti þessa rits.
(A) Útgjöld neytenda á markaðsverði hvers
árs.
I 10. hefti tímaritsins (desember 1961) birt-
ist ýtarleg grein um neyzlu einstaklinga árin
1957 og 1958. Taflan, sem hér er birt, sýnir
framhald rannsóknarinnar. Aðferðir og heim-
ildir fyrir árin 1959 og 1960 eru eins og skýrt
hefur verið frá áður. Tölur yfir árin 1957 og
1958 eru hér endurteknar til samanburðar (með
smávægilegum leiðréttingum).
(B) Útgjöld neytenda á markaðsverði
ársiris 1960.
Vörur og þjónusta hækkuðu töluvert í verði
árin 1957—1960. Til þess að gefa skýrari mynd
af þróun neyzlunnar var því reynt að færa
útgjöld áranna 1957—1959 til verðlags ársins
1960.
Hafi magn vara verið notað áður við út-
reikning á verðmætisupphæðum hvers árs,
var þetta magn margfaldað með einingarverði
ársins 1960. Slíkt einingarverð var einnig í
mörgum tilvikum notað við útreikning á virði
þjónustunnar.
Útgjaldaliðir, sem áður hafa verið reiknaðir
sem hreinar verðmætisupphæðir án magnupp-
lýsingar, voru flokkaðir niður í hópa. Akveðin
vörutegund var valin sem mælikvarði fyrir
hvern hóp og verðþróun hennar sérstaklega
athuguð. Verðvísitölur voru þá reiknaðar út
fyrir þessar völdu vörur. Gert var ráð fyrir, að
verðþróun annarra vara í sama flokki væri eins
og hjá „mælikvarðavörunni", og var verðmæti
þeirra á árunum 1957—1959 umreiknað eftir
vísitölu hennar til þess að færa verðmætið yfir
til verðlags ársins 1960.
(C) Magnvísitölur neyzlu einstaklinga,
1957—1960.
Þessi tafla sýnir þróun neyzlunnar eftir út-
gjaldaflokkum. Neyzla á markaðsverði ársins
1960 var tekin sem grundvöllur í hverjum
flokki fyrir sig.
PRÓUN NEYZLU EINSTAKLINGA 1957-1960
37