Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 58
Byggingar á íslandi fullgerðar
árin 1954-1961
Grein pessi inn fullgerðar bijggingar árin 1954—1961, ásamt
samanburði við skýrslur um ftjrri ár, er tekin saman af Torfa
Asgeirssijni. Gunnlaugur Pétursson hefur haft með höndum
byggingarskýrslur Framkvæmdabankans, og áður Innflutnings-
skrifstofunnar. Hefur hann unnið töfluverkið eftir peim gögnum.
í júlí 1957 birti Framkvæmdabankinn í 4.
hefti þessa rits skýrslu um byggingar á Islandi
fullgerðar árin 1945—1955 og í desember 1958
viðbót við þá skýrslu, er sýndi byggingar full-
gerðar 1956 og 1957.
í formála við skýrslurnar 1945—1955 er gerð
ítarleg grein fyrir gögnum og aðferðum er
notaðar voru þá, og aftur voru notaðar óbreytt-
ar við viðbótarskýrslurnar.
Þessar fyrstu heildarskýrslur um byggingar-
framkvæmdir voru unnar úr sundurleitum og
fremur ófullkomnum gögnum, hvað viðvíkur
árunum 1945—1953. Árið 1954 urðu þátta-
skipti í þessari skýrslugerð, en það ár hóf
Innflutningsskrifstofan að gera skýrslur um
alla byggingarstarfsemi á landinu. Að vísu
lagði skrifstofan sérstaka áherzlu á að áætla
tilkostnað byggingarstarfseminnar, en lagði
minna upp úr mati á því, hvenær byggingum
væri lokið. Ennfremur voru byggingar aðeins
flokkaðar í fáeina flokka. Hins vegar er aðal-
tilgangur þeirra byggingarskýrslna, sem hér
eru birtar, sá að sýna lúkningu bygginga og til-
ætlaða notkun þeirra. Þurfti því að vinna upp
aftur skýrslur Innflutningsskrifstofunnar. Eftir
að Framkvæmdabankanum var falið með lög-
um nr. 30/1960 að annast þessa skýrslugerð,
hafa því frumgögn Innflutningsskrifstofunnar
fyrir árin 1954—1959 og samsvarandi gögn
Framkvæmdabankans fyrir árin 1960 og 1961
verið stokkuð upp þannig, að úr þeim mætti
vinna bæði mat tilkostnaðar og lúkningar hvert
ár. Skýrslur Innflutningsskrifstofunnar náðu
þó einnig til lúkningar íbúðarhúsa og útihúsa
í sveitum.
Skýrslur þær um fullgerðar byggingar árin
1954—1961, sem hér eru birtar, eru árangur
þessarar vinnu. Tölur þeirra eru að nokkru
frábrugðnar tölum eldri skýrslna, bæði um
rúmmál og kostnað. Eftirfarandi töflur sýna
þær breytingar, sem orðið hafa á mati Fram-
kvæmdabankans varðandi þau fjögur ár, er
tekin hafa verið til meðferðar bæði með eldri
og nýrri aðferðinni.
Fullgerðar byggingar árin 1954—1957
Samanburður á eldra og nýrra mati
1. Rúmstærð í 1000 m3.
a. íbúðarhús: 1954 1955 1956 1957
1. Eldri tölur .. 309.0 434.0 520.0 585.0
2. Nýrri tölur .. 306.8 426,0 521.5 586.2
Mismunur ............ 2.2 8.0 —1.5 —1.2
b. Útihús í sveitum:
1. Eldri tölur . .. 345.0 379.0 321.0 370.0
2. Nýrri tölur .. 331.2 367.7 308.6 353.8
Mismunur......... 13.8 11.3 12.4 16.2
56