Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Qupperneq 84
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
skoða í samhengi við skýringarnar, enda sýnir
hún í rauninni allt meginefni þeirra.
Séu fullnægjandi upplýsingar fyrir hendi,
eru færslur ríkisreikninga og annarra heimild-
argagna flokkaðar þannig, að þær myndi hrein-
ar færslur í reikningakerfinu, með mótbókun
á ákveðna geira. Þessi skilyrði eru þó ekki
alltaf fyrir hendi, þannig að margar færslur
eru blandaðar, a. m. k. að því er mótaðila
snertir.
Reikningar raunvirðastraumanna eru þrenns
konar: framleiðslureikningar, tekju- og ráð-
stöfunarreikningar, og fjármagnsmyndunar-
reikningar.
Á framleiðslureikning ríkisins er færð í inn-
hlið öll notkun framleiðsluafla við starfsemi
ríkisins sjálfs, en í úthlið er fært mat starf-
seminnar til samneyzlu, auk seldrar þjónustu.
Til færslu í innhlið eiga að koma úr úthlið
töflunnar liðir III. Viðgerðir og viðhald og
IV. Onnur kaup vöru og þjónustu, þ. m. t.
laun ríkisstarfsmanna. Ekki er nauðsynlegt,
að allt viðhald komi á framleiðslureikning,
heldur aðeins það, sem er í þágu starfsdeilda
ríkisins. Viðhald til beinna almannanota, svo
sem vegaviðhald, má færa til samneyzlu beint
á tekjuráðstöfunarreikningi. Töfluliður III
inniheldur, auk vegaviðhalds, einkum viðhald
skipa landhelgisgæzlunnar og húseigna ríkis-
ins. Töfluliður IV nær yfir laun og annan
rekstrarkostnað ríkisstarfseminnar samkvæmt
þegar gefnum skilgreiningum. Kaup vöru og
þjónustu frá útlöndum eru að mestu leyti út-
gjöld vegna sendiráðanna erlendis.
í úthlið framleiðslureiknings kemur töflu-
liður innhliðar IV. Sala vöru og þjónustu.
Þessi liður skiptist í undirliði: 1. Til innlendra
fyrirtækja og einstaklinga, er í rauninni af-
gangsliður þess, sem fellur ekki undir 2. og 3.
lið, en það eru þóknanir og ómakslaun ým-
issa embætta og stofnana, leigutekjur skóla-
húsnæðis o. fl.; 2. Til útlanda, eru tekjur af
alþjóðaflugþjónustu og eitt árið, 1955, af efn-
istöku varnarliðsins; 3. a. og b. Til almanna-
trygginga og sveitarfélaga, felur í sér þjón-
ustu við þessa aðila: innheimtur fyrir Trygg-
ingastofnun ríkisins, aðstoð við útsvarsálagn-
ingu í Reykjavík og rekstur hegningarhúsa
og vinnuhæla að hluta fyrir Reykjavík.
Til greina kemur að færa afskriftir ríkisfjár-
muna og reiknaða vexti af virði þeirra á fram-
leiðslureikning. Þessir liðir eru ekki í töfl-
unni, en afskriftirnar hafa verið reiknaðar með
í töflunum um þjóðarframleiðslu. Mismunur
framleiðslureiknings ríkisins er talinn sýna
samneyzlu myndaða á þess vegum og færist
á tekjuráðstöfun.
Reikningur tekna og ráðstöfunar sýnir tekj-
urnar í úthlið, en ráðstöfunina í innhlið. Ráð-
stöfunin er í fyrsta lagi verðmæti, sem koma
inn til ríkisins og enda þar í samneyzlu á þess
vegum, í öðru lagi tekjutilfærslur til annarra
aðila og í þriðja lagi spörun ríkisins. í hvaða
skilningi eitthvað geti runnið til ríkisins móti
tilfærslum fjár til annarra aðila, leiðir of langt
að ræða. En tilfærslurnar eru að jafnaði
bundnar ákveðnum skilyrðum, og er hugsun
kerfisins sú, að tilfærslukrafan sé færð, er
hún myndast, þótt greiðsla í reiðu fé hafi ekki
farið fram.
í úthlið kemur framlag framleiðsluþátta,
sem aðeins getur verið fjármagnsþjónusta, og
allar tilfærslutekjur, sem svo til eingöngu eru
skattar, þar sem ríkið á í hlut. Töfluliður inn-
hliðar V. Eignatekjur færist hér allur, en til
frádráttar kemur sami liður úthliðar, vaxta-
gjökl, þar sem þau standa ekki í neinu beinu
sambandi við sjálfa ríkisstarfsemina. Fyrir
meðferð ríkisfyrirtækja hefur þegar verið gerð
grein.
Vaxtaupphæðirnar eru lágar, enda eru að-
eins færðir vextir þeirra skulda, sem ríkið er
beinn og endanlegur aðili að, en ekki af lán-
tökum ríkisins fyrir bankana, ríkisfyrirtæki o.
þ. h. stofnanir.
Rétt þykir að benda hér á, að í töflunni í 9.
hefti ritsins, bls. 19, víxluðust talnalínur vaxta
miðað við töflutexta. Efri talnalínan á að sýna
82