Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 6
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver er framkvæmdastjóri Tulipop? 2. Hvað er vikublaðið Bæjarins besta á Ísafi rði gamalt? 3. Hvað veitti Miðstöð íslenskra bók- mennta marga þýðingarstyrki í ár? SVÖR: 1. Helga Árnadóttir. 2. 30 ára. 3. 80. UMHVERFISMÁL Verndarsjóður villtra laxastofna, (NASF), hefur fengið liðsauka í baráttunni gegn gegndarlausri netaveiði á laxi við strendur Noregs. Norskir neta- bændur veiða lax á gönguleið hans á hrygningarstöðvar í ám í Rúss- landi, Bretlandi og Írlandi auk laxa úr eigin ám. Viðurkennt er að veið- arnar ógna viðkomu laxastofna í mörgum gjöfulustu ám þessa heimshluta. Orri Vigfússon, formaður NASF, segir að náttúruverndarsinninn Ilya Sherbovich, sem einnig hefur umsjón með hinni frægu laxveiðiá á Kólaskaga Ponoi, hafi veitt NASF stórt fjárframlag til að berjast gegn atvinnuveiðum á laxi á göngu- leiðum í hafinu við Noreg. Orri bendir á að netalagnirnar, aðallega við strendur Norður-Nor- egs, girði fyrir gönguleiðir laxa sem snúa til baka úr Norðaustur- Atlantshafi eftir þriggja til fjög- urra ára vist í hafinu. „Þetta er rausnarleg gjöf til allra sem unna þessum einstöku stofnum,“ segir Orri en bendir á að stjórnvöld í Noregi virðist ætla að gera gangskör í því að stöðva veiðarnar. „Margra ára barátta og gagnrýni virðist hafa skilað hugar- farsbreytingu hjá norskum stjórn- völdum. Í síðustu viku var haldinn fundur stjórnvalda og veiðimanna í Kirkenes þar sem kom fram að veiðiréttindin væru í endurskoðun, enda krefðust Rússar þess að Norð- menn virtu alþjóðleg lög og reglur þar sem er skýrt bann við veiðum á göngufiski,“ segir Orri. - shá Orri Vigfússon, formaður NASF, fær liðsauka í baráttunni gegn laxadrápi Norðmanna í hafi: Vilja uppræta laxadráp við strönd Noregs Í PONOI Netaveiði Norðmanna hefur verið Rússum þyrnir í augum um langt skeið. MYND/NASF ORKUMÁL Álagsprófanir á svæð- iskerfinu á Vestfjörðum aðfara- nótt miðvikudags lofa góðu. Landsnet telur að markmið fyrir- tækisins og Orkubús Vestfjarða náist og takist að stytta verulega straumleysistíma á Vestfjörðum með tilkomu nýju varaaflsstöðv- arinnar í Bolungarvík. Prófanirnar náðu til norðan- verðra Vestfjarða en í nótt og næstu nótt verður látið reyna á samrekstur varaaflsstöðvarinnar og Mjólkárvirkjunar. Markmiðið er að tími straum- leysis áður en varaaflsstöðin tekur við verði innan við ein mín- úta, sem er nú talið raunhæft. - shá Rafmagnsleysið stytt mikið: Álagsprófanir vestra lofa góðu VIÐ STÖRF Prófanirnar eru viðamiklar og mikilvægar. MYND/LANDSNET ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn- laugsson sagði í munnlegri skýrslu sinni um skuldaleiðréttingu ríkis- stjórnarinnar að það væru gleðitíð- indi að fá að ræða við stjórnarand- stöðu um skuldamál heimilanna, nú þegar leiðréttingin hefði verið birt landsmönnum. Þó þurfti að fresta umræðunni stuttu seinna vegna þess að forsætisráðherra var ekki viðstaddur umræðuna. „Oft er bæði ánægjulegt og áhugavert að taka þátt í umræðum hér á Alþingi, þar sem skipst er á skoðunum um lífsins gagn og nauðsynjar. Af mörgum skemmti- legum stundum hér á þingi með stjórnarandstöðunni þykir mér lík- legt að þessi mun standa upp úr. Aldrei hefur verið jafngaman að ræða um skuldamál heimilanna og einmitt nú þegar leiðrétting verð- tryggðra húsnæðislána hefur verið birt landsmönnum. Ég hlakka til fleiri slíkra stunda,“ sagði Sig- mundur Davíð. Fór forsætisráðherra ítar- lega yfir skuldaniðurfellinguna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum heimilanna og hvernig hún kemur við hina ýmsu tekju- og eignahópa. Í ræðu sinni boðaði forsætis- ráðherra að fleiri aðgerðir væru væntanlegar á kjörtímabilinu sem myndu breyta miklu í húsnæðis- málum landsmanna. Til að mynda boðaði forsætisráðherra að afnám verðtryggingar á húsnæðislán- um væri í farvatninu og myndi sú vinna líta dagsins ljós á kjörtíma- bilinu. Til stæði að afnema verð- tryggð húsnæðislán með afborg- unum til meira en 25 ára. Helgi Hjörvar, þingflokksfor- maður Samfylkingarinnar, sagði margt gott að finna í skuldaleið- réttingu ríkisstjórnarinnar. Hins vegar væru nokkrir hlutir sem vert væri að gagnrýna. Helgi sagði Samfylkinguna hafa viljað í síðustu kosningabaráttu rétta hlut þeirra sem voru með verðtryggð húsnæðislán og fagnaði hann þeim hluta aðgerðarinnar sem sneri að því. Hins vegar gagnrýndi Helgi að þessi ráðstöfun væri ekki það sem Framsóknarflokkurinn hefði lofað. Taldi hann þessa ráðstöfun ljósárum frá þeim kosningalof- orðum sem flokkurinn hefði flutt í síðustu kosningabaráttu. „Þetta er engin 20% niðurfelling, þetta er ekki þrjú hundruð milljarðar. Átta þúsund krónur á mánuði eru ekki leiðrétting á forsendubresti,“ sagði Helgi Hjörvar. Steingrímur J. Sigfússon tók í sama streng. Notaði hann ræðu sína til að gagnrýna reiknings- skil ríkisstjórnarinnar og hvern- ig skuldaleiðréttingin hefði verið framreidd í kynningu ríkisstjórn- arinnar. Taldi Steingrímur kynn- inguna ósvífna. Stuttu eftir framsögu forsætis- ráðherra hvarf hann af fundi. Steingrímur J. Sigfússon óskaði eftir því að forsætisráðherra yrði viðstaddur ræðu hans en varð ekki að ósk sinni. Eftir ræðu Stein- gríms komu meðlimir úr stjórnar- andstöðunni, hver á fætur öðrum, upp í pontu undir lið fundarstjórn- ar forseta og gerðu athugasemdir við fjarveru forsætisráðherra. Forseti og forsætisráðherra höfðu samráð um að leyfa Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að flytja ræðu sína og fresta síðan fundi til hálf þrjú í dag. sveinn@frettabladid.is Hlakkaði til umræðunnar en tók ekki þátt í henni Hún var stutt, umræðan um skýrslu forsætisráðherra um skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar. Forsætisráð- herra hvarf af fundi stuttu eftir flutninginn. Stjórnarandstaðan mótmælti því. Forseti sleit fundi stuttu síðar. GLEÐISTUND Sigmundur Davíð fór yfir skuldaleiðréttinguna. Taldi hann þetta mikla ánægjustund. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MARGT GOTT Helgi Hjörvar taldi margt ánægjulegt í skuldaleiðréttingu ríkis- stjórnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HEIMSKULEGT Guðmundur Steingríms- son taldi heimskulegt að halda umræðu áfram að forsætisráðherra fjarstöddum. KJARAMÁL Bandalag háskóla- manna (BHM) lýsti í gær yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu Félags prófessora við ríkishá- skóla. Í yfirlýsingunni var tekið fram að BHM teldi launakröfur prófessora sanngjarnar. „Stjórn BHM áréttar að öflug menntun er undirstaða framþró- unar á íslenskum vinnumarkaði og því afar brýnt að æðstu mennta- stofnanir landsins séu starfhæf- ar,“ sagði í tilkynningunni. Prófessorar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á prófatíma í byrjun desember. - nej BHM styður prófessora: Launakröfurn- ar sanngjarnar VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.