Fréttablaðið - 13.11.2014, Page 8
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
KÍNA Samkomulag Kína og
Bandaríkjanna um að takmarka
útblástur gróðurhúsalofttegunda
þykir marka viss tímamót, bæði
í baráttunni við loftslagsbreyt-
ingar og í samskiptum Kína og
Bandaríkjanna.
Enn er þó óljóst með öllu
hvernig ríkin tvö ætla að fara að
því að ná þeim markmiðum, sem
að er stefnt.
Bandaríkin hafa lýst því yfir
að þau ætli að draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda um ríf-
lega fjórðung til ársins 2025, og
er þá miðað við árið 2005. Kín-
verjar hafa síðan heitið því að
árið 2030, eða fyrr, muni útblást-
ur þeirra ná hámarki. Eftir það
verði byrjað að draga úr honum.
Efnahagsumsvif Kínverja hafa
aukist hratt á síðustu árum og
áratugum. Mest þó frá síðustu
aldamótum. Þessu hefur fylgt
síaukinn útblástur gróðurhúsa-
lofttegunda og nú er svo komið
að Kína ber ábyrgð á nærri þriðj-
ungi alls koltvísýringsútblásturs
jarðarbúa.
Bandaríkin og Evrópusam-
bandið koma næst á eftir, og
samanlagt kemur rúmlega helm-
ingurinn af útblæstri koltvísýr-
ings frá þessum þremur risum
alþjóðasamfélagsins svonefnda.
Þar á eftir koma Indland, Rúss-
land og Japan.
Á vegum Sameinuðu þjóðanna
hefur áratugum saman verið
reynt að fá ríki heims til þess
að draga úr útblæstri til þess
að hægja á loftslagsbreytingum
áður en í óefni er komið.
Ekki síst hefur staðið á ágrein-
ingi milli auðugra Vesturlanda
annars vegar og fátækari þróunar-
ríkja hins vegar, þar sem þróunar-
ríkin hafa ekki viljað draga veru-
lega úr útblæstri nema auðugri
ríkin taki þátt í kostnaði við það.
Með samningnum við Banda-
ríkin, þótt óljós sé um margt,
hefur Kína í fyrsta sinn fallist á
raunveruleg markmið í þessari
baráttu.
Al Gore, fyrrverandi varafor-
seti Bandaríkjanna, hrósar Kín-
verjum í hástert og segir þenn-
an samning marka tímamót. Og
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hvetur öll
ríki heims til að feta nú í fótspor
Kína og Bandaríkjanna og kynna
markmið sín í loftslagsmálum
strax upp úr áramótum.
„Þetta markar mikilvæg
tímamót í samskiptum Kína og
Bandaríkjanna,“ segir Barack
Obama Bandaríkjaforseti. „Þetta
sýnir hvað er mögulegt þegar við
vinnum saman að brýnum heims-
málum.“
gudsteinn@frettabladid.is
Bandaríkin og Kína boða
útblásturstakmarkanir
Barack Obama Bandaríkjaforseti og Xi Jinping Kínaforseti gerðu með sér samkomulag um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Kínverjar hafa til þessa ekki fengist til að setja sér nein skýr markmið í baráttunni
gegn loftslagsbreytingum. Til samans bera þessi tvö lönd ábyrgð á nærri helmingi alls útblásturs í heiminum.
LEIÐTOGAR SKÁLA Barack Obama og Xi Jinping skáluðu í fyrrakvöld að loknum
kvöldverði leiðtoga Asíu- og Kyrrahafsríkja í Peking. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þetta markar mikil-
væg tímamót í samskipt-
um Kína og Bandaríkj-
anna. Þetta sýnir hvað er
mögulegt þegar við
vinnum saman að
brýnum heimsmálum.
Barack Obama
Bandaríkjaforseti.
© GRAPHIC NEWSHeimild: Global Carbon Project
Kína og Bandaríkin hafa kynnt
áform um að draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda.
Útblástur koltvísýrings
1960 70 80 90 00 2010
10
7,5
5
2,5
0
milljarðar tonna
Bandaríkin:
Hyggjast draga
úr útblæstri um
26–28% til ársins
2025, miðað við
árið 2005.
Kína
29% af
heims-
útblæstri
Banda-
ríkin
15%
ESB
10%
Rússland
5,3%
Indland
7,1%
Japan
3,7%
Kína og Banda-
ríkin bera
ábyrgð á nærri
helmingi heimsútblásturs
Kína:
Útblástur á
að ná hámarki
árið 2030.
SAMKOMULAGIÐ
LOTTÓ Eldri hjón, sem bæði eru
komin á eftirlaun, unnu tæpar 49
milljónir í Lottói um helgina.
Hjónin spila nánast alltaf með
í Lottó samkvæmt upplýsingum
frá Getspá en áttu bágt með að
trúa eigin augum þegar í ljós kom
að þau hefðu nú loks tekið stóra
vinninginn.
Þau segjast nú hafa tryggt
sér áhyggjulaust ævikvöld. Þau
hyggjast að auki gefa hluta fjár-
hæðarinnar til líknarmála þar
sem þau segjast þekkja af eigin
raun að þörfin sé víða mikil. - nej
Unnu 49 milljónir króna:
Eldri hjón með
allar tölur réttar
VEÐUR Samstarfssamningur
Veður stofu Íslands og dönsku
veðurstofunnar, DMI, var undir-
ritaður í gær.
Danska veðurstofan leitaði eftir
samstarfi við Veðurstofuna fyrir
um ári um rekstur á næstu ofur-
tölvu sinni sem spáir um veður af
meiri nákvæmni. Hún hefur tíu
sinnum meiri reiknigetu en núver-
andi tölva dönsku veðurstofunn-
ar en þarf mun meira rafmagn.
Með samstarfi Veðurstofunnar og
dönsku veðurstofunnar um rekst-
ur tölvunnar njóta Danir hag-
stæðra orkugjafa hér á landi. - aí
Ný og nákvæmari orkutölva:
Veðurstofur í
aukið samstarf
HANDSAL Marianne Thyrring, forstjóri
DMI, og Hafdís Karlsdóttir, staðgengill
forstjóra Veðurstofu Íslands, undirrita
samstarfssamning. MYND/VEÐURSTOFA ÍSLANDS
HEPPIN Hjónin segjast þekkja það af
eigin raun að víða sé þörf á peningum.