Fréttablaðið - 14.11.2014, Síða 34

Fréttablaðið - 14.11.2014, Síða 34
10 • LÍFIÐ 14. NÓVEMBER 2014 10 BÆKUR SEM GERA LÍFIÐ AÐEINS BETRA Fjöldinn allur af bókum hefur verið skrifaður um hamingjuna og leiðir til betri heilsu. Þær lofa hver af annarri töfralausn- um á örskotsstundu. Það hljómar afskaplega vel en er nú oftast ekki raunin við nánari skoðun. Hamingjan felst í ferðalaginu sjálfu, hugarfarinu gagnvart því og að gleyma ekki að njóta hvers augnabliks. Birtingur VOLTAIRE Bráðskemmtileg bók sem rituð var um miðja 18. öld af ritsnill- ingnum franska Voltaire og þýdd af Halldóri Laxness. Bókin er í rauninni háðsdeila á heimspeki- kenningar sem samtíðarmenn Voltaires settu fram og gerir á köflum grín að bjartsýni. Aðal- sögupersónan kemst þó að því í lokin að hver og einn skapar sína paradís með því að rækta garð- inn sinn og oftar en ekki þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna hamingjuna. Þessi bók er skyldulesning og einstaklega skemmtilega þýdd. Friðrika Hjördís Geirsdóttir Umsjónarkona Lífsins Dásamlegur andlitsskrúbbur fyrir viðkvæma húð. Auðvelt er að búa hann til og margir eiga hráefnin nú þegar til í eldhúsinu. HAFRA- OG HUNANGSSKRÚBBUR ½ bolli haframjöl 3 matskeiðar hunang 4 matskeiðar hrein jógúrt Byrjið á því að mylja haframjölið í matvinnsluvél. Blandið svo öllum hráefnunum saman og berið á and- lit með hringlaga hreyfingum. Leyfið skrúbbnum að liggja á húðinni í 20–30 mínútur. Hreinsið af með rökum þvottapoka. EFTIRFARANDI TÍU BÆKUR ENDURSPEGLA ÞESSA LÍFSSPEKI, ALLAR Á SINN HÁTT The How of Happiness SONJA LYUBOMIRSKY Höfundur bók- arinnar er há- skólaprófessor sem gert hefur þúsundir sál- fræðirannsókna . Bókin er afrakst- ur og samantekt úr þessum rann- sóknum og sýnir á einfaldan máta hvernig þú getur gert líf þitt hamingjuríkara með einföldum leiðum. How to Win Friends and Infl uence People DALE CARNEGIE Tilgangur þessarar bókar er að hjálpa lesandanum að leysa stærsta verkefni lífs síns: Að ná til og hafa áhrif á annað fólk. Bókin bend- ir á einfald- ar en áhrifa- ríkar leiðir til að efla hæfni í mannlegum sam- skiptum, vinna aðra á sitt band og hafa áhrif á umhverfið í einkalífi, félagslífi og starfi. Ein mest selda og áhrifaríkasta bók sinnar teg- undar frá upphafi. The Power of Now ECKHART TOLLE Höfundur bók- arinnar er einn fremsti lífsspeking- ur okkar tíma og hefur skrif- að fjölda bóka og haldið fyrir- lestra um mik- ilvægi þess að vera í núinu því þar sé hina sönnu hamingju að finna. Í bókinni deilir Eckhart Tolle ferðalagi sínu frá daglegum kvíða og þunglyndi að andlegum friði og hamingju. Mátturinn í núinu, eins og hún heitir upp á íslensku, hefur farið sigurför um heiminn og er Oprah Winfrey meðal allra mestu aðdá- enda Tolle en hann hefur margoft komið fram í þáttum hennar. Man’s Search for Meaning VIKTOR E. FRANKL Mögnuð bók þar sem höfund- ur hennar deil- ir reynslu sinni úr fangabúð- um Þjóðverja í seinni heim- styrjöldinni og þeirri leið hans til þess að finna jákvæðan punkt hvern dag í þess- um erfiðu að- stæðum. Bókin er mannbætandi og hefur verið valin ein af tíu áhrifa- mestu bókum Bandaríkjanna. The Art of Happiness DALAI LAMA Í þessari ein- stöku bók greinir Dalai Lama, einn fremsti andlegi leiðtogi heims, frá því hvern- ig hann öðlað- ist sálarró og sigrast á þung- lyndi, kvíða, reiði, afbrýði eða bara hversdagslegri geð- vonsku. Hann ræðir um mannleg samskipti, heilbrigði, fjölskyldu og vinnu og sýnir fram á að innri friður er öflugasta vopnið í bar- áttunni við dagleg vandamál. Bókin gefur glögga og raunhæfa mynd af því hvernig haga má líf- inu sér og öðrum til farsældar og öðlast varanlega hamingju. Bókin hefur verið þýdd á íslensku og kallast Leiðin til lífshamingju. Litli prinsinn ANTOINE DE SAINT-EXUPÉRY Bókin er eftir flugmanninn Antoine og er sögð vera inn- blásin af því þegar höfund- urinn brotlenti flugvél sinni í miðri Sahara- eyðimörkinni og kynnist þar ungum dreng. Í gegnum þessi kynni lærir hann að meta mikilvægi einlægra sam- skipta. Bókin er í raun falleg hug- leiðing um lífið og mikilvægi þess að týna ekki barninu í sjálfum sér. Alkemistinn PAUL COELHO Mjög skemmti- leg frásögn Pauls af sögu- hetjunni Sant- iago sem ferðast til Afríku í leit að fjársjóði. Á leiðinni lend- ir hann í spenn- andi ævintýr- um og kynnist litríkum ein- staklingum sem hafa áhrif á hann. Höfundurinn nær á áhrifaríkan hátt að flétta inn í söguþráðinn mikilvægi þess að fylgja draumum sínum og láta hjartað ráða för. Bókin er í vand- aðri þýðingu Thors heitins Vilhjálmssonar. Hamingjan efl ir heilsuna BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR Borghildur Sverrisdóttir sendi nýver- ið frá sér þessa áhugaverðu bók sem fjallar um mikilvægi jákvæðrar sál- fræði í daglegu lífi og upp- byggjandi áhrif hennar. Bókin sýnir lesendum einfaldar leiðir að því hvernig við getum skapað okkar eigin viðhorf og hugarfar. Add More -ing to Your Life GABRIELLE BERNSTEIN Gabrielle er einn heitasti andlegi og hvatningar- fyrirlesarinn í Bandaríkjun- um þessa dag- ana. Hún hefur skrifað fjölda bóka um það hvernig við getum lifað líf- inu til hins ýtrasta. Í þessari bók færir hún lesendum áhugaverða og nýja nálgun á lífið á skyn- samlegan hátt og það hvernig við getum orðið hamingjusamari dagsdaglega. Heilsuvísir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.