Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 46
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
BÆKUR ★★★ ★★
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
VAKA HELGAFELL
Þótt Erlendur Sveinsson hafi geng-
ið inn í myrkrið í lok Furðustranda
og lesendur verið skildir eftir með
vangaveltur um hvort hann væri
lífs eða liðinn er hann enn spræk-
ur í Kamp Knox, nýj-
ustu skáldsögu Arn-
aldar Indriðasonar,
sagan fjallar sem sé
um hann á yngri árum
eins og síðustu bækur
Arnaldar. Hér er hann
33 ára gamall, nýskil-
inn, nýbyrjaður í rann-
sóknarlögreglunni og
vinnur þar undir hand-
arjaðri Marion Briem
sem einnig hefur geng-
ið í endurnýjun lífdaga
í undanförnum bókum.
Þeir félagar eru sjálf-
um sér líkir; Erlendur
hugsar um mannshvörf
og Marion heimsækir berklahælið
sem hann/hún dvaldi á í æsku, og
satt best að segja er þetta kombó
að verða heldur þreytt. Ekki bætir
úr skák að Arnaldur sjálfur virð-
ist vera orðinn frekar leiður á þeim
félögum og bætir svo sem engu við
sögur þeirra sem ekki var áður
vitað. Er ekki kominn tími til að
veita þeim hvíldina bara?
Málin sem eru til rannsókn-
ar í Kamp Knox eru tvö: annars
vegar morð á Íslendingi sem virð-
ist hafa verið framið í herstöðinni
á Keflavíkurflugvelli og hins vegar
hvarf ungrar stúlku í nágrenni við
Kamp Knox 25 árum fyrir raun-
tíma sögunnar sem er 1979. Hvor-
ugt málið er sérlega spennandi en
lýsingar Arnaldar á umhverfi og
lífi í herstöðinni á þessum tíma eru
skemmtilegar og áhugaverðar og
smá púður hleypur í þráðinn þegar
inn í fléttast grunsamlegar flug-
vélar sem þar lenda án vitneskju
íslenskra flugmálayfirvalda og
grunur vaknar um að þar séu geymd
kjarnorkuvopn. Sá þráður rennur
hins vegar hálfpartinn út í sandinn
og lesandinn er engu nær. En bráð-
skemmtilegar lýsingar á hallæris-
gangi Íslendinga í samskiptum við
herinn og fullkominni
fyrirlitningu hermann-
anna á íslenskri sveita-
mennsku lyfta frásögn-
inni í þeim köflum og
gera söguna skemmti-
legri aflestrar.
Nafn bókarinnar er
svolítið villandi. Það er
dregið af þeirri athuga-
semd Erlendar að Kan-
arnir líti á Ísland sem
eitt stórt Kamp Knox
en kampurinn sem
slíkur kemur sáralítið
við sögu. Málið sem
honum tengist, hvarf
ungu stúlkunnar, reynist ekki hafa
neitt með Kamp Knox að gera og
kampurinn sjálfur auðvitað liðinn
undir lok á sögutímanum.
Það sem gerir það að verkum
að bókin heldur athygli lesand-
ans, þrátt fyrir allt, er eingöngu
færni Arnaldar í frásögn og plott-
vafi. Hann kann þetta upp á sína
tíu fingur og gerir vel að vanda, en
mikið væri nú skemmtilegt að fá
frá honum bók sem ekki væri bund-
in melankólíum þeirra Erlendar og
Marion. Við lifum í þeirri von til 1.
nóvember á næsta ári.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Hefðbundin en heldur
daufleg saga úr flokknum um lögreglu-
mennina Erlend og Marion. Vel skrifuð
og plottuð en ansi þunn í roðinu.
Erlendur og Marion
á bömmer – aft ur!
ARNALDUR INDRIÐASON „Hvorugt málið er sérlega spennandi en lýsingar
Arnaldar á umhverfi og lífi í herstöðinni á þessum tíma eru skemmtilegar og
áhugaverðar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÓNLIST ★★ ★★★
Ísland. Meditations
& Arrangements.
Icelandic Folksongs
Þórarinn Stefánsson
POLARFONIA
Við fyrstu sýn er geisladiskur
Þórarins Stefánssonar píanóleik-
ara áhugaverður. Á honum eru
hvorki meira né minna en fimm-
tán útsetningar og hugleiðingar
um lagið Ísland, farsælda frón
eftir mismunandi tónskáld. Auk
þess eru á geisladiskinum önnur
lög í svipuðum stíl.
En gamanið kárnar þegar
geisladiskurinn er settur á fón-
inn. Ísland, farsælda frón er ekki
beint skemmtilegasta lag í heimi,
og þrátt fyrir að innan um séu
fallegar útsetningar, þá er heild-
arsvipurinn óttalega grár. Þór-
arinn spilar samt ágætlega, en
hann er dálítið skaplaus. Aðal-
vandamálið er þó fyrst og fremst
hljómurinn á diskinum. Þórarinn
hefur valið þá leið að taka disk-
inn upp í stofunni heima hjá sér.
Hann leikur á sinn eigin flyg-
il, sem er örugglega hin fínasta
stofu græja, en býr ekki yfir mik-
illi breidd. Upptakan sjálf er ekki
heldur góð. Satt að segja er hún
afar flatneskjuleg. Styrkleika-
brigðin eru nánast engin.
Fyrir bragðið gerist ekkert í
lögunum. Þar er ekki að finna
neina snerpu, ekki neitt líf,
engin litbrigði eða drama – ekki
neitt. Tónlistin bara líður áfram
í skelfilegri ládeyðu.
Þetta er synd, því eins og áður
sagði eru ágæt verk á diskinum.
Útsetningar Kolbeins Bjarnason-
ar og Ríkarðs Arnar Pálssonar
eru fallegar. Hugleiðing Olivers
Kentish um gamalt stef er líka
hrífandi. En það dugar ekki til.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Vel spilaðar en
misskemmtilegar útsetningar sem í
þokkabót hljóma illa.
Mætti hljóma betur
„Gælunafnið á þessum tónleikum
er Valdatónleikar því þeir sameina
tónlist Sigvalda Kaldalóns og Þor-
valds Gylfasonar.“ Þannig byrjar
Jón Stefánsson, stjórnandi Kórs
Langholtskirkju, þegar hann er
beðinn að segja stuttlega frá tón-
leikum kórsins á sunnudaginn.
„Heildarútgáfa á verkum Sig-
valda Kaldalóns er í undirbún-
ingi, við tókum að okkur kórlög-
in og sjáum nú fyrir endann á
því verkefni,“ heldur Jón áfram.
„Þetta er rosalegt magn, næstum
50 lög og við ætlum að flytja úrval-
ið af þeim, til dæmis Þótt þú lang-
förull legðir, Ísland ögrum skor-
ið og Ave María. Mér finnst Ave
Marían hans Kaldalóns ein sú fal-
legasta af öllum Ave Maríum sem
samdar hafa verið. Hún hefur
verið útsett fyrir einsöngvara og
kór og það var voða lítið mál fyrir
mig að breyta henni alfarið í kór-
verk. Við flytjum nefnilega tvö
lög úr Dansinum í Hruna, annað
þeirra fjallar um það þegar kirkj-
an sekkur, þess vegna fannst mér
við verða að enda á Ave Maríu og
bætti henni því við en hún er ekki
á upptökunum.“
Jón segir Þorvald Gylfason svo
hafa gaukað að honum sjö sálmum
við texta eftir Kristján Hreinsson
og kórinn ætlar að frumflytja þá.
„Þorvaldur er gríðarlega aktífur,
alltaf að semja músík og er kom-
inn í um 70 tónverk – fer að nálg-
ast Kaldalóns,“ segir hann. „Mér
finnst gaman að tefla saman því
nýjasta í tónlistinni og því sígilda.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 17
á sunnudag. Tómas Guðni Eggerts-
son leikur á píanó. Miðasala fer
fram á vefnum tix.is og almennt
miðaverð er 2.000 en 1.500 fyrir
félaga í Listafélagi Langholts-
kirkju og eftirlaunaþega.
gun@frettabladid.is
Tefl ir saman nýrri
tónlist og sígildri
Kórlög eft ir Sigvalda Kaldalóns og sjö ný sálmalög eft ir Þorvald Gylfason við
sálma Kristjáns Hreinssonar verða fl utt á tónleikum Kórs Langholtskirkju á
sunnu daginn. Stjórnandinn, Jón Stefánsson, kallar þá Valdatónleika.
STJÓRNANDINN
„Mér finnst Ave
Marían hans
Kaldalóns ein
sú fallegasta af
öllum Ave Maríum
sem samdar hafa
verið,“ segir Jón
Stefánsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þorvaldur er gríðar-
lega aktífur, alltaf að
semja músík og er
kominn í um 70 tónverk.
– RÖP, Mbl.
Fimmstjörnu-kvöld í Íslensku óperunni.
Hver stórsöngvarinn toppar annan í
glæsilegri og þaulunninni sviðsetningu.
Kristinn rís bókstaflega í
shakespearskar hæðir í nístandi og
hrollvekjandi túlkun sinni …
– Jón Viðar Jónsson
Glæsileg uppfærsla
– Jónas Sen, Fbl.
Aukasýning annað kvöld kl. 20
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
MENNING