Fréttablaðið - 14.11.2014, Page 54

Fréttablaðið - 14.11.2014, Page 54
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 34 BAKÞANKAR Kolbeins Tuma Daðasonar „Ég myndi segja að tónlistarsenan í Þórshöfn sé mjög lík þeirri reykvísku, bara í smærra sniði,“ segir færeyski tónlistarmaðurinn Marius Ziska. „Það búa kannski tíu sinnum fleiri í Reykjavík heldur en í Þórshöfn en það er sami fílingurinn. Allir þekkja alla og allir hafa unnið saman á einhverjum tíma- punkti.“ Maríus er staddur hér á landi ásamt hljómsveit sinni til að leggja lokahönd á nýja plötuna sem kemur út í mars á næsta ári. „Platan er tilbúin en Addi 800 er að hljóðblanda hana núna,“ segir Marius, sem hóf Litla Íslandstúrinn með Svavari Knúti í gær í Kefla- vík. Kapparnir halda síðan til Hafnarfjarðar, Akur- eyrar og Akraness en þeir hafa tekið upp lagið Tokan saman. Lagið verður á hinni nýju plötu Maríusar. Maríus er vonarstjarna í færeysku tónlistarsen- unni en hann fór til dæmis í Evróputúr ásamt hinni þjóðkunnu Eivöru Pálsdóttur, sem syngur líka dúett með honum á nýju plötunni. - þij Það búa kannski tíu sinnum fleiri í Reykjavík heldur en í Þórshöfn en það er sami fílingurinn. Reykingafasistinn ★★★ ★★ Grafir & bein Leikstjóri: Anton Sigurðsson Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Elva María Birgisdóttir, Gísli Örn Garðarsson Hryllingsmyndir hafa því miður verið af mjög skornum skammti í íslenskri kvikmyndasögu, rétt eins og aðrar „genre“-myndir eða greinamyndir. Því var Grafir & bein kærkomin viðbót en þetta er fyrsta verk hins unga leikstjóra Antons Sigurðssonar. Myndin fjallar um hjónin Gunn- ar og Sonju sem hafa aldeilis séð tímana tvenna. Gunnar er útrás- arvíkingur sem féll í ónáð en ofan í það hafa hjónin misst sitt eina barn. Þegar bróðir og starfsfélagi Gunnars fremur sjálfsmorð ásamt eiginkonu sinni halda Gunnar og Sonja upp í sveitahús hjónanna látnu til að huga að Perlu, dóttur þeirra. Skrýtnir og óhugnanlegir atburðir fara að hrannast upp og brátt kemur í ljós að ekki er allt með felldu þar í sveitinni. Grafir & bein er ágætis skemmtun og býður upp á góð bregðuatriði. Myndatakan er mjög flott og skotin eru oft vel útpæld. Handritið er hins vegar ansi þunnt en það eru helst gapandi holur í plottinu sem angra. Snún- ingarnir í plottinu ganga einfald- lega ekki upp. Þá byrjar mynd- in á því að byggja upp spennu sem nær síðan ekki jafn ærandi hápunkti og maður hefði viljað. Draugarnir eru ógnvænlegir en frekar hlutlausir – maður hefði viljað fá miklu meira frá þeim. Myndin gerir í því að „íslenska“ bandarískar hryllingsmyndaklisj- ur; ískrandi róla í garðinum, barn sem tengist andaheiminum, sveit- ungur sem varar fáfróða borgar- fólkið við draugagangi. Þetta er allt gott og blessað og gaman að fá séríslenska útgáfu af þessu, en frumlegt er það ekki. Myndin er sæmilega gerð þó hún sé greinilega ekki svaka dýr, tæknibrellurnar eru góðar fyrir utan atriðið í hápunkti myndarinn- ar. Leikararnir standa sig sæmi- lega, sérstaklega Nína Dögg þó karakter hennar sé frekar flatur. Þó er alltaf sama vesenið á íslensk- um kvikmyndum – talmálið. Sam- ræðurnar eru stirðar og óþjálar og það vantar eitthvað upp á að þær hljómi raunverulega. Ég ímynda mér að þetta sé leikhúsveiran sem smitast yfir í kvikmyndirnar, þar sem leikarar læra að tala hátt og skýrt þannig að fólkið aftast í saln- um geti heyrt. Eins og hver sem hefur horft á íslenska kvikmynd veit þá er þetta leikhúseinræðu- vesen eitt stærsta vandamálið við íslenskar myndir. Það er svo oft eins og leikararnir lesi upp text- ann í staðinn fyrir að segja hann á sannfærandi hátt. Sem forfallinn hryllingsmynda- aðdáandi myndi ég alveg mæla með Grafir & bein upp á skemmt- anagildið. Hins vegar bíð ég spenntur eftir því að íslenskur leikstjóri sleppi því að horfa til vesturs eftir innblæstri og sæki frekar í íslenska sagnaarfinn, sem er svo stútfullur af skelfi- legum viðbjóði að það væri hægt að gera einhverjar áhrifaríkustu hryllingsmyndir samtímans ef það yrði gert rétt. Þá þurfa menn að huga að holum í söguþræðinum og leikarar þurfa í guðanna bænum að hætta að leika eins og þeir séu að lesa upp af blaði. thorduringi@frettabladid.is NIÐURSTAÐA: Ágætis byrjun hjá ungum leikstjóra fyrir utan holur í söguþræðinum. Þunn en skemmtileg GÓÐ BREGÐUATRIÐI Grafir & bein er fín skemmtun þótt ekki sé frumleikanum fyrir að fara. Færeyska senan lík þeirri íslensku Maríus Ziska frá Færeyjum hóf Litla Íslandstúrinn ásamt Svavari Knúti í gær. MARÍUS ZISKA Starfar með Svavari Knúti. F RÉ TT AB LA Ð IÐ /S TE FÁ N Ekki veit ég hvort það var uppeldið eða einhver skoðun sem ég ræktaði með mér. Það var allavega ekki slagar- inn hennar Ruthar Reginalds því aðeins klassísk tónlist heyrðist á heimili mínu þar til ég flutti að heiman. Sígarettur hafa einfaldlega alltaf verið „vondar“ í huga mér og skiptir þá engu í hvað átt er litið. Þær brenna peningum, lyktin af reyknum og reykingafólki getur verið hrikaleg og svo hin vel þekkta skaðsemi þegar kemur að heilsunni. Í fáum stéttum er jafnmikið reykt og hjá fjölmiðlafólki. Einhver blanda af hefð og stressi líklega en margt besta og skemmtilegasta fjölmiðlafólk lands- ins reykir. Hópferðirnar í reyk- ingaskúrinn hjá 365 eru stöðugar yfir daginn þar sem fólk slúðr- ar og deilir leyndarmálum sem ég fæ svo að heyra löngu síðar. Þegar þau eru ekki lengur leyndarmál. Líklega eina nei- kvæða hlið þess að standa utan við þennan sértrúarsöfnuð. EIN versta hlið reykinga er sóða- skapurinn og óvirðingin fyrir umhverf- inu sem sumt reykingafólk sýnir. Sígar- ettur, já og tyggjó, virðast vera þeir tveir hlutir sem stór hluti samfélagsins virðist samþykkja að megi henda hvert sem er. Nú síðast í vikunni mætti ég gesti á Ice- land Air waves-tónlistarhátíðinni á göngu upp Laugaveginn. Augu okkar mættust og um leið naut hann síðasta innsogsins áður en sígarettan fór sína leið á gang- stéttina. HVAÐ ég hefði viljað vera Michael Douglas í Falling Down á því augnabliki og missa mig. En hvers vegna er þetta svona? Af hverju eru örlög strætóskýla landsins að gegna hlutverki kirkjugarða fyrir sígarettustubba? Læðist sú hugsun aldrei að fólki, sem fleygir stubbunum sínum á jörðina, að um barnalega hegðun sé að ræða? BARNIÐ ég á enn eftir að taka minn fyrsta smók og ætli hann bíði ekki til sjötugs þegar ég fer „all in“ og prófa allt dópið sem ég hef farið á mis við. Það verð- ur alvöru partí. Ég lofa samt að taka tillit til umhverfisins og næsta manns. 4, 5, 8, 10:20 8, 10:30 10 6, 8 4-H.S. MBL -T.V. Bíóvefurinn.is 5% DUMB AND DUMBER KL.5.30 - 8 - 10.30 ST. VINCENT KL.5.30 - 8 - 10.20 NIGHTCRAWLER KL. 8 - 10.25 GRAFIR OG BEIN KL. 5.50 - 8 BORGRÍKI KL. 5.45 - 10.10 T.V. SÉÐ & HEYRT ÍSLAND HEFUR ALDREI LITIÐ BETUR ÚT Á HVÍTA TJALDINU EMPIRE NEW YORK POST TIME OUT LONDON VARIETY DUMB AND DUMBER KL.5.30 - 8 - 10.20 DUMB AND DUMBER LÚXUS KL.5.30 - 8 INTERSTELLAR KL 5.30 - 9 INTERSTELLAR LÚXUS KL. 10.25 GRAFIR OG BEIN KL. 5.45 - 8 FURY KL 8 - 10.50 BORGRÍKI KL 5.45 GONE GIRL KL.10.10 KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL. 3.30 SMÁHEIMAR ÍSL TAL 2D KL. 3.30 VINCENTST. MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS! KRINGLUNNI AKUREYRIKEFLAVÍK SPARBÍÓ ÁLFABAKKA EGILSHÖLL „BESTA SVEPPAMYNDIN TIL ÞESSA“ H.J. FRÉTTATÍMINN EMPIRE NEW YORK POST T.V. SÉÐ & HEYRT TIME OUT LONDON MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.