Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 16
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 16 Í leiðara Fréttablaðsins tuttugasta þessa mánaðar fjallar Sigurjón, ritstjóri blaðsins, um siðferðilegt álitamál á þessa leið: „Trú- verðugleiki er stjórnmála- mönnum eflaust mikils virði. Þess vegna er klént að tala sig hásan um vond- ar aðgerðir í niðurfellingu skulda en fara samt í röð- ina í von um að fá sneið af hinni fordæmdu köku. Öll orð hér eftir, um þetta mál hið minnsta, verða að skoðast í því ljósi að orð og athafnir hafa stang- ast á.“ Þessa skoðun má ræða frá öðru sjónarmiði. Til dæmis með því að leita svara við spurningum sem þessum: Hvað felst í hugtakinu trúverðugleiki? Glata þeir sem gagnrýna lög sett af meirihluta á Alþingi trúverðugleika sínum við að nota réttindi sem þar eru veitt? Orðabækur skýra orðið trúverð- ugur með orðum eins og „áreiðan- legur“ og „sem trúa má“. Ádeila ritstjórans hvetur því eiginlega lesandann til að hætta að taka mark á þeim sem nota sér rétt sem þeim er gefinn með lögum sem þeir hafa gagnrýnt. „Öll gagn- rýnin, sem sett hefur verið fram, missir þar með marks,“ fullyrðir hann. Það fæ ég ekki séð. Þvert á móti finnst mér ástæða til að virða og taka mark á þeim sem gagnrýna lög þrátt fyrir það að geta grætt eitthvað á þeim persónulega. Flest- ir, sem hnossið hljóta, láta sem ekkert sé; una við sinn feng þótt hálfsannleikur um svigrúm og fé á lausu reynist blekking og háværir brestir í inn- viðum velferðarkerfisins skeri í eyrun. Gera engar athugasemdir við lög sem fela í sér varasama for- gangsröðun og margs konar mismunun, skilja t.d. eftir í óbættri stöðu þá sem hafa húsaskjól sem búseturétthafar eða leigj- endur. Þakkarvert er hins vegar dæmið af Pétri H. Blöndal alþingismanni sem segir í nefndaráliti: „Aðgerð- in mismunar lántakendum sem eru í svipaðri stöðu og hafa upplif- að sömu breytingar á verðlagi og þeir sem hafa tekið fasteignalán. Þar ber hæst verðtryggð náms- lán. Að auki nær aðgerðin ekki til lána sem veitt voru til leiguíbúða í félagslegum íbúðafélögum. Þau lán voru einkum veitt til sveitar- félaga vegna leiguíbúða og til hús- næðissamvinnufélaga, svo og til leiguíbúða námsmanna og sjálfs- eignarstofnana fatlaðra. Leiguverð þessara íbúða ræðst að mestu leyti af afborgun lána, þ.e. greiðslu af höfuðstól og vöxtum, sem frum- varpið nær ekki til. Slík mismun- un er óásættanleg“. Ég læt mig engu skipta hvort Pétur H. Blöndal eða einhverj- ir stjórnarandstöðuþingmenn hafa notfært sér rétt sem þeir hafa gagnrýnt. Þeir eiga þakk- ir skildar fyrir tilraunir til að gæta almannahags í landi þar sem valdhafarnir eru annað að sýsla og horfa framhjá hruni sem skekur undirstöður heilbrigðis- og menntakerfis þjóðarinnar. Hvað gerir stjórnmála- menn trúverðuga? Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um verslun með áfengi sem heimilar sölu áfengis í matvöruversl- unum. Flutningsmaður og fylgjendur frumvarpsins telja málið vera framfara- skref sem vert er að eyða tíma þingsins í. Fyrir hverja er þetta mál mikilvægt? Er það ekki skylda stjórnmálamanna að huga að velferð þegn- anna á öllum aldri? Er ekki eðlilegt að gera þá kröfu að mál af þessu tagi sé skoðað frá öllum hliðum? Greinargerð frumvarpsins fjallar aðallega um viðskiptahagsmuni og hugsanlega minna vöruúrval verði einkaleyfi á sölu áfengis afnumið. Einnig kemur fram að frjáls sala áfengis hafi í för með sér aukin áfengiskaup. Ekkert er fjallað um neikvæðar afleiðingar sem stórauk- ið aðgengi að áfengi hefur á áfeng- isneyslu og mögulegar neikvæðar félagslegar afleiðingar. Neikvæðar afleiðingar af því sölufyrirkomulagi sem frumvarpið gerir ráð fyrir hafa töluvert verið rannsakaðar og vekur það furðu að flutningsmenn virð- ast ekki hafa kynnt sér þær betur. Rannsóknir frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja-Sjálandi, Finnlandi og Svíþjóð sýna stóraukna áfengis- neyslu við að heimila matvöruversl- unum að selja áfengi (Wagenaar & Holder, 1995; Makela, 2002; Makela, Rossow & Tryggvesson 2002; Hill 2000; Flanagan, 2003; Trolldal, 2005). Að ótöldum þeim fjölmörgu rannsóknum sem sýna að aukin áfengisneysla hefur neikvæð áhrif á lýðheilsu og eykur heilbrigðisvanda. Því er ekki að undra að Emb- ætti landlæknis hafi þung- ar áhyggjur af frumvarp- inu og telur landlæknir að frumvarpið sé í beinni andstöðu við stefnu ríkis- stjórnarinnar um að efla lýðheilsu í landinu. Alþjóða- heilbrigðisstofnunin tekur í sama streng og lýsir þung- um áhyggjum af afleiðing- um frumvarpsins og bend- ir á að neysla muni aukast meðal ungs fólks og við- kvæmra einstaklinga. Að breyta fyrirkomulagi á sölu áfengis á Íslandi er líklegt til að hafa víðtæk neikvæð áhrif á velferð þjóðarinnar og þá ekki síst á börn og unglinga. Einnig er óljóst hvernig eftirlit með áfengiskaupaaldri yrði háttað í mat- vöruverslunum og ætla má að það verði ekki eins árangursríkt og hjá vínbúðunum þar sem starfsfólk matvöruverslana er að stórum hluta unglingar undir tvítugu. Áfengi er engin venjuleg neysluvara og því mikilvægt að áfengi verði áfram selt samkvæmt núverandi fyrir- komulagi, sem hefur hamlandi áhrif á aðgengið og um leið neysluna. Gegn stefnu í forvörnum Hafa ber í huga að aukin áfeng- isneysla foreldra og forsjáraðila getur raskað öruggu og barnvænu umhverfi. Frumvarpið ætti í raun að fara í áhættumat áður en það er lagt fyrir. Við sem vinnum að forvörnum í Reykjavík viljum vekja athygli á því að frumvarpið fer gegn stefnu Reykjavíkurborgar í forvörnum. Í henni er lögð áhersla á að taka tillit til allra þátta sem geta haft áhrif á líðan og hegðun barna og unglinga. Rannsóknir á áfengisneyslu meðal íslenskra ungmenna sýna fram á að við höfum náð góðum árangri og ölvunardrykkja meðal íslenskra ungmenna er lítil miðað við jafnaldra þeirra í Evrópu. Þessi árangur hefur náðst með samstilltu átaki foreldra, stofnana og félaga- samtaka, sem vinna með unga fólkinu og takmörkuðu aðgengi að áfengi. Er ekki mikilvægt að gera allt sem í okkar valdi stendur til að viðhalda þessum góða árangri? Það er sorglegt að á Íslandi komi fram frumvarp um frjálsa verslun með áfengi á sama tíma og áfeng- ispólitík annarra Evrópulanda ein- kennist af auknu aðhaldi (Karlsson & Österberg, 2001). Áfengissala í matvöruverslunum mun að sjálf- sögðu stjórnast af ýtrustu viðskipta- sjónarmiðum og má leiða líkur að því að í kjölfarið verði áfengisaug- lýsingar leyfðar. Uppeldisleg mark- mið samfélagsins eins og að standa vörð um æskuna og búa henni upp- byggilega umgjörð og heilbrigðar uppeldisforsendur er mun mikil- vægara viðfangsefni, en áfengissala í matvörubúðum. Styrkjum alla þá verndandi þætti sem við vitum að draga úr neyslu áfengis. Það mun spara samfélaginu mikla fjármuni sem er hægt að nýta í uppbyggileg verkefni og auka vel- ferð í samfélaginu. Við skorum á þingmenn að hafna frumvarpinu um frjálsa sölu áfengis á forsendum velferðar þjóðarinnar og lýðheilsumarkmiða. Forvörnum ógnað STJÓRNMÁL Hörður Bergmann kennari og rithöfundur SAMFÉLAG Baldur Örn Arnarson Hera Hallbera Björnsdóttir Hörður Heiðar Guðbjörnsson Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Trausti Jónsson Þórdís Lilja Gísladóttir forvarnafulltrúar Reykjavíkurborgar ➜ Hafa ber í huga að aukin áfengisneysla foreldra og forsjáraðila getur raskað öruggu og barnvænu um- hverfi .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.