Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 24

Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 24
 | 6 26. nóvember 2014 | miðvikudagur Við höfum alltaf horft á þetta til lengri tíma og lagt upp úr því að byggja upp samfélag sem getur vaxið í stað þess að koma inn með auglýs- ingar sem byggja á óhóflegum tilraunum til að ná peningum af fólki og geta pirrað notendur. Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla, ætlar að kynna nýja uppfærslu spurningaleiksins QuizUp í byrjun næsta árs. Leikurinn mun þá á vissan hátt breytast í sam- félagsmiðil, sem á að keppa við Face- book og Twitter, sem hægt verður að nota í fl estöllum snjalltækjum og vefvöfrum. „Við horfum því ekki lengur á Qui- zUp sem snjallsímaleik heldur sam- félagsnet sem geti haft áhrif á líf fólks um allan heim og skapað fyrir- tækinu meiri verðmæti,“ segir Þor- steinn. Fyrirtæki hans vinnur nú einnig að þróun nýs gjaldmiðils fyrir QuizUp. Gjaldmiðillinn á að auðvelda Plain Vanilla að afl a tekna með vörusölu. Tekjur fyrirtækisins eru ekki enn farnar að standa undir kostnaði þrátt fyrir að um 30 milljónir snjalltækja- eigenda hafi náð í QuizUp frá því spurningaleikurinn kom út fyrir ári. Áhugamálin brjóta ísinn Uppfærslan hefur verið í þróun síðan í sumar og að sögn Þorsteins unnin í góðu samstarfi við Apple og Google. Hann segir hugmyndina hafa komið upp þegar starfsmenn Plain Vanilla fóru að fá tölvupóst frá notendum QuizUp með reynslusögum af því hvernig leikurinn hefði leitt saman notendur með sameiginleg áhugamál. „Það er svo tryllt að vara sem við bjuggum til geti haft þessi áhrif á líf fólks og jafnvel leitt til þess að notendur frá ólíkum heimshornum fi nni ástina í gegnum leikinn okkar. Ástæðan fyrir því að þetta er að gerast er sú að QuizUp, ólíkt fl estum öðrum leikjum, býður upp á um þús- und mismunandi spurningafl okka og vettvang sem tengir fólk saman. Við erum því að bjóða upp á þessa teng- ingu en á Facebook á fólk til dæmis aðallega í samskiptum við notendur sem það þekkir þegar úr raunveru- leikanum. Það er mikið af einmana fólki í heiminum og að tengja fólk saman í gegnum sameiginleg áhuga- mál er nokkuð sem engum sam- félagsmiðli hefur tekist að gera svo vel sé.“ Þorsteinn segir það hafa komið sér á óvart hversu fl ókin tæknin að baki nýju uppfærslunni er. Hann hafi séð ýmislegt þegar fyrirtækið vann að gerð QuizUp en að þróun samfélags- hlutans slái öll fyrri met. „Það er bara gaman og ég held að það verði erfi tt fyrir aðra að leika það eftir að tengja saman spurninga- Breytingarnar eiga að auka tekjur leik eins og þennan við samfélagsmið- il,“ segir Þorsteinn. „En við erum ekki að byrja frá grunni heldur eru um 30 milljónir notenda af QuizUp. Ég er því með fi ðrildi í mag- anum yfi r því að kynna vöruna fyrir heimsbyggðinni.“ Spurður hversu margir af þessum 30 milljónum notenda séu virkir notendur í dag segir Þorsteinn fyrirtækið ekki gefa upp slíkar upplýsingar. „En við erum alltaf að vaxa og það bætast við 30 þúsund nýir notendur á dag.“ Vörusala og auglýsingatekjur Þorsteinn segir fyrirtækið horfa til tveggja tekjuöfl unarleiða. Annars vegar sé í þróun áðurnefndur gjaldmiðill, sem hefur ekki enn fengið nafn, sem á að gera Plain Vanilla kleift að selja vörur innan QuizUp. „Svo eigum við talsverða möguleika í samstarfi við fyrirtæki sem tengjast viðfangsefnum leiksins,“ segir Þor- steinn. Hann bætir við að Plain Vanilla hafi áður kynnt samstarf sitt við fyrir- tæki á borð við Google og Coca Cola sem hafi ákveðið að styrkja vissa spurninga- fl okka Quizup um ákveðinn tíma. Þannig hafi auglýsendum verið gefi n tækifæri til að koma skilaboðum sínum áleiðis. „Án þess að það séu einhverjar óþol- andi vefborðaauglýsingar að poppa upp í leiknum. Við teljum að nýja uppfærslan verði betur til þess fallin að vinna með svona samninga og þetta er tekjuöfl un sem við erum mjög spennt fyrir,“ segir Þorsteinn. Aðspurður hvaða fyrirtæki Plain Van- illa eigi nú í viðræðum við segir Þor- steinn að hann geti ekki tjáð sig um það en bætir við að fjölmargir samningar séu í skoðun. Hann nefnir þó sem dæmi að samstarfi Plain Vanilla og íþróttamið- ilsins ESPN á Indlandi hafi verið hleypt af stokkunum síðastliðinn mánudag. „Við höfum alltaf horft á þetta til lengri tíma og lagt upp úr því að byggja upp samfélag sem getur vaxið í stað þess að koma inn með auglýsingar sem byggja á óhófl egum tilraunum til að ná peningum af fólki og geta pirrað notend- ur. Við erum að græða á því núna þegar við ætlum að opna þennan samskipta- miðil,“ segir Þorsteinn og heldur áfram: „En það er svolítið fyndið að þessi spurning með tekjurnar hefur verið háværust á Íslandi. Við erum hins vegar að byggja fyrirtækið upp að bandarískri fyrirmynd og ef þú horfi r á Facebook eða Instagram þá eru þetta fyrir tæki sem voru rekin án tekna fyrstu árin en fjármögnuð af áhættufjármagns- sjóðum eins og Plain Vanilla. Við erum fjármögnuð að mestu af bandarískum og kínverskum fjárfestingasjóðum sem hafa gefi ð okkur það svigrúm sem við þurfum til að geta þróað þessa vöru áfram án þess að þurfa að skila hagnaði frá mánuði til mánaðar.“ Rekstrarféð dugir en vantar Lay’s Starfsmönnum Plain Vanilla hefur fjölgað úr tólf í áttatíu á einu ári. Fyrir- tækið hefur verið áberandi í fjölmiðl- um og fréttir af þeim fríðindum sem fylgja starfi hjá Plain Vanilla hafa vakið athygli sem og lífl egt félagslíf starfs- manna. Þessi mynd af fyrirtækinu styrktist enn frekar hjá undirrituðum þegar hann sat í nokkrar mínútur á bið- stofu Plain Vanilla og beið eftir Þor- steini. Gekk þá ónefndur starfsmaður fyrirtækisins að móttökuborðinu og spurði hver sæi um að panta Lay’s- snakkið. Það væri nefnilega búið sem væri leiðinlegt því það væri í uppáhaldi hjá mörgum starfsmönnum. „Okkur hefur gengið vel að ná í rjómann af tæknimenntuðu fólki hér á Íslandi. Þar að auki höfum við fengið frábært fólk erlendis frá. Það fólk er nú hér í skammdeginu og það kom kannski sumum þeirra á óvart hvernig það fór allt saman,“ segir Þorsteinn og hlær. Hlutafé Plain Vanilla var aukið um 22 milljónir dollara á síðasta ári og sú hlutafjáraukning tryggði fyrirtækinu nauðsynlegt rekstrarfé. Stærstu eig- endur fyrirtækisins eru fjárfestinga- sjóðirnir Tencent Holdings og Sequoia Capital. „Við höfum samtals safnað rétt undir 30 milljónum dollara en okkar stærstu fjárfestar eru enn Sequioa og Tencent. Þeir hafa verið mjög sterkir aðilar og hafa hjálpað okkur mikið á þessari vegferð. Við sjáum ekki fram á að þurfa að fara í neina hlutafjáraukn- ingu á næstunni. En þessi heimur hreyf- ist mjög hratt og þegar við komum út með okkar vöru í byrjun næsta árs þá mun árangur hennar hafa mikil áhrif á það hvernig við horfum á okkar áfram- haldandi vöxt og fjárþörf. Við gætum þurft að halda áfram að vaxa hratt og þá gæti vel verið að við þyrftum að skoða þessi mál.“ Nokkur yfirtökutilboð Um mánuði eftir að QuizUp var kynntur til sögunnar gerði bandaríska tölvu- leikjafyrirtækið Zynga tvö yfi rtökutil- boð í Plain Vanilla. Á þeim tíma greindi vefritið Kjarninn frá tilboðunum og fullyrt var að hlut- VIÐTAL Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is Ný uppfærsla Plain Vanilla á spurninga- leiknum QuizUp verður kynnt í byrjun næsta árs. Leikurinn verður þá hluti af nýjum samfélags- miðli sem er ætlað að keppa við Facebook og Twitter. Fyrirtækið vinnur einnig að þróun nýs gjaldmiðils fyrir QuizUp sem á að auka vörusölu Plain Vanilla. Tekjurnar standa ekki enn undir kostnaði. FORSTJÓRINN Þorsteinn B. Friðriksson segir fyrirtækið nú horfa til tveggja tekjuöflunar- leiða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.