Fréttablaðið - 26.11.2014, Qupperneq 24
| 6 26. nóvember 2014 | miðvikudagur
Við höfum
alltaf horft
á þetta til
lengri tíma
og lagt upp
úr því að
byggja upp
samfélag
sem getur
vaxið í stað
þess að
koma inn
með auglýs-
ingar sem
byggja á
óhóflegum
tilraunum
til að ná
peningum
af fólki og
geta pirrað
notendur.
Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi og
forstjóri Plain Vanilla, ætlar að kynna
nýja uppfærslu spurningaleiksins
QuizUp í byrjun næsta árs. Leikurinn
mun þá á vissan hátt breytast í sam-
félagsmiðil, sem á að keppa við Face-
book og Twitter, sem hægt verður
að nota í fl estöllum snjalltækjum og
vefvöfrum.
„Við horfum því ekki lengur á Qui-
zUp sem snjallsímaleik heldur sam-
félagsnet sem geti haft áhrif á líf
fólks um allan heim og skapað fyrir-
tækinu meiri verðmæti,“ segir Þor-
steinn.
Fyrirtæki hans vinnur nú einnig að
þróun nýs gjaldmiðils fyrir QuizUp.
Gjaldmiðillinn á að auðvelda Plain
Vanilla að afl a tekna með vörusölu.
Tekjur fyrirtækisins eru ekki enn
farnar að standa undir kostnaði þrátt
fyrir að um 30 milljónir snjalltækja-
eigenda hafi náð í QuizUp frá því
spurningaleikurinn kom út fyrir ári.
Áhugamálin brjóta ísinn
Uppfærslan hefur verið í þróun síðan
í sumar og að sögn Þorsteins unnin í
góðu samstarfi við Apple og Google.
Hann segir hugmyndina hafa komið
upp þegar starfsmenn Plain Vanilla
fóru að fá tölvupóst frá notendum
QuizUp með reynslusögum af því
hvernig leikurinn hefði leitt saman
notendur með sameiginleg áhugamál.
„Það er svo tryllt að vara sem við
bjuggum til geti haft þessi áhrif á
líf fólks og jafnvel leitt til þess að
notendur frá ólíkum heimshornum
fi nni ástina í gegnum leikinn okkar.
Ástæðan fyrir því að þetta er að
gerast er sú að QuizUp, ólíkt fl estum
öðrum leikjum, býður upp á um þús-
und mismunandi spurningafl okka og
vettvang sem tengir fólk saman. Við
erum því að bjóða upp á þessa teng-
ingu en á Facebook á fólk til dæmis
aðallega í samskiptum við notendur
sem það þekkir þegar úr raunveru-
leikanum. Það er mikið af einmana
fólki í heiminum og að tengja fólk
saman í gegnum sameiginleg áhuga-
mál er nokkuð sem engum sam-
félagsmiðli hefur tekist að gera svo
vel sé.“
Þorsteinn segir það hafa komið sér
á óvart hversu fl ókin tæknin að baki
nýju uppfærslunni er. Hann hafi séð
ýmislegt þegar fyrirtækið vann að
gerð QuizUp en að þróun samfélags-
hlutans slái öll fyrri met.
„Það er bara gaman og ég held að
það verði erfi tt fyrir aðra að leika
það eftir að tengja saman spurninga-
Breytingarnar eiga að auka tekjur
leik eins og þennan við samfélagsmið-
il,“ segir Þorsteinn.
„En við erum ekki að byrja frá grunni
heldur eru um 30 milljónir notenda af
QuizUp. Ég er því með fi ðrildi í mag-
anum yfi r því að kynna vöruna fyrir
heimsbyggðinni.“
Spurður hversu margir af þessum 30
milljónum notenda séu virkir notendur í
dag segir Þorsteinn fyrirtækið ekki gefa
upp slíkar upplýsingar.
„En við erum alltaf að vaxa og það
bætast við 30 þúsund nýir notendur á
dag.“
Vörusala og auglýsingatekjur
Þorsteinn segir fyrirtækið horfa til
tveggja tekjuöfl unarleiða. Annars vegar
sé í þróun áðurnefndur gjaldmiðill, sem
hefur ekki enn fengið nafn, sem á að
gera Plain Vanilla kleift að selja vörur
innan QuizUp.
„Svo eigum við talsverða möguleika
í samstarfi við fyrirtæki sem tengjast
viðfangsefnum leiksins,“ segir Þor-
steinn. Hann bætir við að Plain Vanilla
hafi áður kynnt samstarf sitt við fyrir-
tæki á borð við Google og Coca Cola sem
hafi ákveðið að styrkja vissa spurninga-
fl okka Quizup um ákveðinn tíma. Þannig
hafi auglýsendum verið gefi n tækifæri
til að koma skilaboðum sínum áleiðis.
„Án þess að það séu einhverjar óþol-
andi vefborðaauglýsingar að poppa upp
í leiknum. Við teljum að nýja uppfærslan
verði betur til þess fallin að vinna með
svona samninga og þetta er tekjuöfl un
sem við erum mjög spennt fyrir,“ segir
Þorsteinn.
Aðspurður hvaða fyrirtæki Plain Van-
illa eigi nú í viðræðum við segir Þor-
steinn að hann geti ekki tjáð sig um það
en bætir við að fjölmargir samningar
séu í skoðun. Hann nefnir þó sem dæmi
að samstarfi Plain Vanilla og íþróttamið-
ilsins ESPN á Indlandi hafi verið hleypt
af stokkunum síðastliðinn mánudag.
„Við höfum alltaf horft á þetta til
lengri tíma og lagt upp úr því að byggja
upp samfélag sem getur vaxið í stað
þess að koma inn með auglýsingar sem
byggja á óhófl egum tilraunum til að ná
peningum af fólki og geta pirrað notend-
ur. Við erum að græða á því núna þegar
við ætlum að opna þennan samskipta-
miðil,“ segir Þorsteinn og heldur áfram:
„En það er svolítið fyndið að þessi
spurning með tekjurnar hefur verið
háværust á Íslandi. Við erum hins vegar
að byggja fyrirtækið upp að bandarískri
fyrirmynd og ef þú horfi r á Facebook
eða Instagram þá eru þetta fyrir tæki
sem voru rekin án tekna fyrstu árin
en fjármögnuð af áhættufjármagns-
sjóðum eins og Plain Vanilla. Við erum
fjármögnuð að mestu af bandarískum
og kínverskum fjárfestingasjóðum sem
hafa gefi ð okkur það svigrúm sem við
þurfum til að geta þróað þessa vöru
áfram án þess að þurfa að skila hagnaði
frá mánuði til mánaðar.“
Rekstrarféð dugir en vantar Lay’s
Starfsmönnum Plain Vanilla hefur
fjölgað úr tólf í áttatíu á einu ári. Fyrir-
tækið hefur verið áberandi í fjölmiðl-
um og fréttir af þeim fríðindum sem
fylgja starfi hjá Plain Vanilla hafa vakið
athygli sem og lífl egt félagslíf starfs-
manna. Þessi mynd af fyrirtækinu
styrktist enn frekar hjá undirrituðum
þegar hann sat í nokkrar mínútur á bið-
stofu Plain Vanilla og beið eftir Þor-
steini. Gekk þá ónefndur starfsmaður
fyrirtækisins að móttökuborðinu og
spurði hver sæi um að panta Lay’s-
snakkið. Það væri nefnilega búið sem
væri leiðinlegt því það væri í uppáhaldi
hjá mörgum starfsmönnum.
„Okkur hefur gengið vel að ná í
rjómann af tæknimenntuðu fólki hér á
Íslandi. Þar að auki höfum við fengið
frábært fólk erlendis frá. Það fólk er nú
hér í skammdeginu og það kom kannski
sumum þeirra á óvart hvernig það fór
allt saman,“ segir Þorsteinn og hlær.
Hlutafé Plain Vanilla var aukið um
22 milljónir dollara á síðasta ári og sú
hlutafjáraukning tryggði fyrirtækinu
nauðsynlegt rekstrarfé. Stærstu eig-
endur fyrirtækisins eru fjárfestinga-
sjóðirnir Tencent Holdings og Sequoia
Capital. „Við höfum samtals safnað rétt
undir 30 milljónum dollara en okkar
stærstu fjárfestar eru enn Sequioa og
Tencent. Þeir hafa verið mjög sterkir
aðilar og hafa hjálpað okkur mikið á
þessari vegferð. Við sjáum ekki fram á
að þurfa að fara í neina hlutafjáraukn-
ingu á næstunni. En þessi heimur hreyf-
ist mjög hratt og þegar við komum út
með okkar vöru í byrjun næsta árs þá
mun árangur hennar hafa mikil áhrif á
það hvernig við horfum á okkar áfram-
haldandi vöxt og fjárþörf. Við gætum
þurft að halda áfram að vaxa hratt og
þá gæti vel verið að við þyrftum að
skoða þessi mál.“
Nokkur yfirtökutilboð
Um mánuði eftir að QuizUp var kynntur
til sögunnar gerði bandaríska tölvu-
leikjafyrirtækið Zynga tvö yfi rtökutil-
boð í Plain Vanilla.
Á þeim tíma greindi vefritið Kjarninn
frá tilboðunum og fullyrt var að hlut-
VIÐTAL
Haraldur Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
Ný uppfærsla Plain
Vanilla á spurninga-
leiknum QuizUp
verður kynnt í byrjun
næsta árs. Leikurinn
verður þá hluti af
nýjum samfélags-
miðli sem er ætlað að
keppa við Facebook
og Twitter. Fyrirtækið
vinnur einnig að
þróun nýs gjaldmiðils
fyrir QuizUp sem á að
auka vörusölu Plain
Vanilla. Tekjurnar
standa ekki enn undir
kostnaði.
FORSTJÓRINN
Þorsteinn B.
Friðriksson segir
fyrirtækið nú
horfa til tveggja
tekjuöflunar-
leiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM