Fréttablaðið - 26.11.2014, Síða 25
Jólahlaðborð hlaðið kræsingum á aðeins 1.990 kr. ætti að hljóma vel í eyrum flestra. Mínir menn, veislu-
þjónusta Magnúsar Inga Magnússonar,
veitingamanns á Sjávarbarnum, hefur
sett saman einfalt en einstaklega girni-
legt hlaðborð á þessu verði fyrir hópa
og fyrirtæki sem er upplagt í jólagleðina
á vinnustaðnum, í veislusal eða heima.
Þar er byggt á langri reynslu Magnúsar
Inga sem séð hefur um veislur af öllum
stærðum og gerðum af ólíkum tilefnum í
gegnum árin.
„Þetta er klassískt heitt og kalt
jólahlaðborð,“ segir Magnús Ingi. „Við
vitum hvað fólk er sólgnast í og veljum
réttina eftir því. Þetta hlaðborð var
mjög vinsælt þegar við byrjuðum með
það í fyrra og það er mikið búið að
panta fyrir þessi jól, enda er verðið
sanngjarnt.“
Á jólahlaðborðinu er karrísíld og
rauðrófusíld, djúpsteiktar rækjur,
kjúklingur, purusteik og hangikjöt. Með-
lætið er ríkulegt; heit sósa, brúnaðar
kartöflur, kartöflujafningur, fjölbreytt
grænmeti, ferskt salat og kaldar sósur.
Lágmarksfjöldi er 10 manns og Magnús
Ingi og hans fólk mætir á staðinn með
veisluföngin ef fjöldinn nær þrjátíu eða
fleirum.
Ef óskað er eftir annars konar sam-
setningu á jólaborðið eða meira úrvali
er það lítið mál. Nánari upplýsingar er
að finna á Facebook og vef Sjávarbars-
ins, sjavarbarinn.is.
Magnús Ingi var að senda frá sér mat-
reiðslubókina Eldhúsið okkar – Íslensk-
ur hátíðamatur. Fyrr á árinu kom út
eftir hann sambærileg bók um íslenskan
heimilismat, Eldhúsið okkar – Íslenskar
hversdagskræsingar, sem fengið hefur
frábæran hljómgrunn. Boðið er upp á
fría heimsendingu en allar upplýsingar
um bækurnar er að finna Facebook-síð-
unni Eldhúsið okkar.
JÓLAHLAÐBORÐ Á
AÐEINS 1.990 KR.!
MÍNIR MENN KYNNA Veisluþjónusta Magnúsar Inga Magnússonar, Mínir
menn, býður upp girnilegt heitt og kalt jólahlaðborð heima, í veislusal eða á
vinnustaðnum.
NÝ METSÖLUBÓK?
Magnús Ingi sendi frá
sér matreiðslubókina
Eldhúsið okkar – Ís-
lenskur hátíðamatur
fyrir skömmu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
FAGMENN
„Við vitum hvað fólk
er sólgnast í og veljum
réttina eftir því,“ segir
Magnús Ingi Magnús-
son, veitingamaður á
Sjávarbarnum.
MYND/K.MAACK
ÍSLAND Í UPPÁHALDI
Ísland lenti í efsta sæti í árlegri könnun bresku
blaðanna Guardian og Observer á uppáhalds
Evrópu landi lesenda þeirra. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Ísland er efst á blaði í þessari könnun,
landið hlaut titilinn árin 2003, 2005 og 2012.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
One Week Flat
Minnkar þembu og Vindgang
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Igennus Pharmepa endurstillir
hlutfallið af Omega 3 EPA og
Omega 6 og dregur úr
bólgumyndun í líkamanum
sem er undirliggjandi þáttur
varðandi þróun á mörgum
lífsstílssjúkdómum.
Ég er allt annar maður eftir að ég fór
að taka inn Pharmepa Omega 3 EPA
frá Igennus og er miklu fljótari að jafna
mig eftir æfingar og lengri sund.
Auk þess finn ég fyrir mun meiri
orku og einbeitingin er betri.
Árni Þór Árnason, 44 ára
afreksmaður og sjósundkappi
Pharmepa
Fæst í Heilsuhúsinu, Lyfjaveri, Heilsuveri, Lyfsalanum, Árbæjarapóteki,
Urðarapóteki, Heilsutorginu Blómavali, Lyfjavali ogApóteki Suðurnesja
Þvílíkur árangur!
“
”