Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 25
Jólahlaðborð hlaðið kræsingum á aðeins 1.990 kr. ætti að hljóma vel í eyrum flestra. Mínir menn, veislu- þjónusta Magnúsar Inga Magnússonar, veitingamanns á Sjávarbarnum, hefur sett saman einfalt en einstaklega girni- legt hlaðborð á þessu verði fyrir hópa og fyrirtæki sem er upplagt í jólagleðina á vinnustaðnum, í veislusal eða heima. Þar er byggt á langri reynslu Magnúsar Inga sem séð hefur um veislur af öllum stærðum og gerðum af ólíkum tilefnum í gegnum árin. „Þetta er klassískt heitt og kalt jólahlaðborð,“ segir Magnús Ingi. „Við vitum hvað fólk er sólgnast í og veljum réttina eftir því. Þetta hlaðborð var mjög vinsælt þegar við byrjuðum með það í fyrra og það er mikið búið að panta fyrir þessi jól, enda er verðið sanngjarnt.“ Á jólahlaðborðinu er karrísíld og rauðrófusíld, djúpsteiktar rækjur, kjúklingur, purusteik og hangikjöt. Með- lætið er ríkulegt; heit sósa, brúnaðar kartöflur, kartöflujafningur, fjölbreytt grænmeti, ferskt salat og kaldar sósur. Lágmarksfjöldi er 10 manns og Magnús Ingi og hans fólk mætir á staðinn með veisluföngin ef fjöldinn nær þrjátíu eða fleirum. Ef óskað er eftir annars konar sam- setningu á jólaborðið eða meira úrvali er það lítið mál. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook og vef Sjávarbars- ins, sjavarbarinn.is. Magnús Ingi var að senda frá sér mat- reiðslubókina Eldhúsið okkar – Íslensk- ur hátíðamatur. Fyrr á árinu kom út eftir hann sambærileg bók um íslenskan heimilismat, Eldhúsið okkar – Íslenskar hversdagskræsingar, sem fengið hefur frábæran hljómgrunn. Boðið er upp á fría heimsendingu en allar upplýsingar um bækurnar er að finna Facebook-síð- unni Eldhúsið okkar. JÓLAHLAÐBORÐ Á AÐEINS 1.990 KR.! MÍNIR MENN KYNNA Veisluþjónusta Magnúsar Inga Magnússonar, Mínir menn, býður upp girnilegt heitt og kalt jólahlaðborð heima, í veislusal eða á vinnustaðnum. NÝ METSÖLUBÓK? Magnús Ingi sendi frá sér matreiðslubókina Eldhúsið okkar – Ís- lenskur hátíðamatur fyrir skömmu. MYND/ÚR EINKASAFNI FAGMENN „Við vitum hvað fólk er sólgnast í og veljum réttina eftir því,“ segir Magnús Ingi Magnús- son, veitingamaður á Sjávarbarnum. MYND/K.MAACK ÍSLAND Í UPPÁHALDI Ísland lenti í efsta sæti í árlegri könnun bresku blaðanna Guardian og Observer á uppáhalds Evrópu landi lesenda þeirra. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ísland er efst á blaði í þessari könnun, landið hlaut titilinn árin 2003, 2005 og 2012. Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac One Week Flat Minnkar þembu og Vindgang Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is P R E N T U N .IS Igennus Pharmepa endurstillir hlutfallið af Omega 3 EPA og Omega 6 og dregur úr bólgumyndun í líkamanum sem er undirliggjandi þáttur varðandi þróun á mörgum lífsstílssjúkdómum. Ég er allt annar maður eftir að ég fór að taka inn Pharmepa Omega 3 EPA frá Igennus og er miklu fljótari að jafna mig eftir æfingar og lengri sund. Auk þess finn ég fyrir mun meiri orku og einbeitingin er betri. Árni Þór Árnason, 44 ára afreksmaður og sjósundkappi Pharmepa Fæst í Heilsuhúsinu, Lyfjaveri, Heilsuveri, Lyfsalanum, Árbæjarapóteki, Urðarapóteki, Heilsutorginu Blómavali, Lyfjavali ogApóteki Suðurnesja Þvílíkur árangur! “ ”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.