Fréttablaðið - 26.11.2014, Síða 26
FÓLK|FERÐIR
Evran verður tekin í notkun um áramótin í Litháen og verður þá síðasta skrefið stigið í því að landið verða fullgild Evrópuþjóð.
Ferðalög um landið verða auðveldari þegar kemur
að rafrænum greiðslum og minna mál að fara á
milli Eystrasaltsríkjanna þar sem bæði Lettar og
Eistar nota nú þegar evru.
TÖFRANDI BORG
Litháen hefur upp á margt að bjóða og geta flestir
fundið þar eitthvað sér til skemmtunar. Höfuðborg-
in Vilníus er borg sem hefur mikið aðdráttarafl,
ekki aðeins vegna sérstæðs arkitektúrs heldur líka
vegna menningar hennar. Í hjarta hennar er gamli
bærinn sem er í barokkstíl og er hann talinn svo
dýrmætur að hann er á Heimsminjaskrá UNESCO.
Óteljandi kirkjuturnar setja svip sinn á borgina
ásamt steinlögðum strætum, töfrandi útsýni af
hæðum og hólum, gömlum byggingum og verk-
stæðum listamanna. Á heimsmælikvarða er borgin
samt svo lítil að á stundum minnir hún á þorp en
þar býr um hálf milljón manna.
Í Vilníus hafa hlutirnir ekki alltaf verið góðir og
fallegir. Þar má líka finna minjar um sorg og sárs-
auka frá þeim hryllingstíma þegar KGB réð ríkjum
og pyntaði gyðinga sem margir hverjir bjuggu í
miðborginni. Þrátt fyrir slæma tíma í stríðum sigr-
aði andi frelsis og mótspyrnu og nú er borgin kom-
in með nýja ásýnd þar sem nýir tímar renna saman
við þá eldri. Framtíðarsýnin felur í sér alþjóðlega
matseld, næturlíf í mikilli þróun og glansandi, nýja
skýjakljúfa.
HVAÐ Á AÐ GERA Í VILNÍUS?
Á flestum listum yfir það hvað helst ætti að gera
í höfuðborg Litháen er heimsókn á Safn fórnar-
lamba þjóðarmorða (Museum of Genocide Vict-
ims). Safnið er til húsa í fyrrverrandi höfuðstöðv-
um sovésku leyniþjónustunnar, KGB, og er tileink-
að þeim þúsundum Litháa sem voru teknir af lífi,
fangelsaðir eða vísað úr landi af sovéskum yfir-
völdum frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar til
sjöunda áratugarins.
Vilníus er byggð á hinni 48 metra háu Gedimina-
hæð og þar trónir efstur frá því á þrettándu öld,
Gedimino-turn. Útsýnið af hæðinni er stórbrotið og
mælt með að fara upp að turninum og líta borgina
augum ofan frá. Þar stendur einnig höllin Valdov-
ürumai sem lokið var við að endurbyggja árið 2009.
Annað kennileiti höfuðborgarinnar er sjónvarps-
turninn sem er 326 metra hár og er í dag ákveðið
tákn um styrk Litháa. Þann 13. janúar 1991 voru
fjórtán manns myrtir í turninum af sovéskum sér-
sveitum en starfsfólk litháíska sjónvarpsins hélt
áfram að senda út allt þar til hermennirnir komu
inn um dyrnar á turninum. Trékrossar hafa verið
settir upp til að minnast fólksins og 13. janúar ár
hvert koma hundruð manna og kveikja á kertum
við turninn. Fyrir jólin eru svo hengd jólaljós utan
á hann þannig að þau mynda risastórt jólatré.
VERSLAÐ Í VILNÍUS
Það er gaman að versla í Vilníus og ákveðnar vöru-
tegundir, einkum litháískt áfengi, sígarettur og
hlutir úr rafi, eru miklu ódýrari en í vesturhluta
Evrópu. Helstu verslunarsvæði borgarinnar eru
annars vegar í gamla bænum þar sem aðallega má
finna antíkmuni, bækur og listmuni og hins vegar í
fínasta hluta borgarinnar, Gedimino, þar sem gott
er að kaupa merkjavöru, síma og fleiri bækur.
Markaðir borgarinnar eru einnig vel þess virði
að heimsækja þótt ekki sé til annars en að fá
stemninguna í æð. Auk þess eru nokkrar stórar
verslunarmiðstöðvar í borginni.
BORÐAÐ OG DRUKKIÐ
Fjöldi kaffihúsa og veitingastaða er í borginni og
bjóða þeir upp á allar stefnur og strauma í matseld.
Heimamenn mæla með að allir gestir prófi þrjá
hluti sem eru einkennandi fyrir Litháen, litháískan
bjór, hvítlauksbrauð og „šaltibaršiai“ sem er köld
rauðrófusúpa. ■ liljabjork@365.is
VINSÆLA VILNÍUS
ÁHUGAVERÐ BORG Vilníus, höfuðborg Litháens, er ein mest heimsótta borg
Austur-Evrópu. Evra verður tekin upp í landinu eftir áramót þannig að líklegt
er að ferðamönnum fjölgi enn frekar. Vilníus hefur upp á margt að bjóða.
VIÐSKIPTAHVERFIÐ Hér sést yfir við-
skiptahverfi borgarinnar. Áin Neris rennur
í gegnum borgina.
GEDIMINO-TURN Vilníus er byggð á
Gediminas-hæð þar sem Gedimino-turn
trónir.
JÓLALEGT Sjónvarpsturninn í Vilníus sem
er 326 metrar á hæð er fallega skreyttur
fyrir jólin og minnir á risastórt jólatré.
TÖFRANDI Séð yfir gamla bæinn í Vilníus ofan af Gediminashæð. Bærinn er byggður í barokkstíl. NORDICPHOTOS/GETTY
Fáanlegt í 5 bragðtegundum:
Hindberja, bláberja, ferskju og apríkósu,
kirsuberja og án bragðefna.
Really Not Dairy
Sojajógúrt
Einstaklega bragðgott með þétta og
silkimjúka áferð.
Inniheldur ekki:
Mjólk, Glúten,
Soja og er 100%
vegan.
Sætt með
ávaxtasa
fa
Fæst í Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Melabúðinni og Nettó.