Fréttablaðið - 26.11.2014, Síða 30
KYNNING − AUGLÝSINGKaffi og heitir drykkir MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 20144
BRAGÐGÓÐIR SÚKKUL
AÐIDRYKKIR
Það er fátt notalegra en að ylja
sér á heitum súkkulaðidrykk á
köldu vetrarkvöldi. Þótt heima-
gert heitt súkkulaði bragðist
yfirleitt best má stundum stytta
sér leið og nota kakómalt eða
annað súkkulaðiduft. Þá er um
að gera að nota ýmis bragðefni
til að hressa upp á drykkinn
og fjölmargt spennandi er í
boði annað en sykurpúðar og
þeyttur rjómi.
Skeið af karamellusósu frískar
heilmikið upp á súkkulaðidrykk-
inn. Passið bara að hræra vel svo
hún blandist súkkulaðinu vel.
Skeið af uppáhaldsísnum út í
könnuna gerir drykk-
inn rjómakenndari
og þykkari og
mjög ljúffengan.
Nokkrar þunnt
skornar ræmur af
appelsínuberki
gefa heitum
drykknum
bæði gott
bragð og ekki
síður góðan
keim. Mörgum
finnst gott að setja
teskeið af espressó
eða hefðbundnu kaffi
út í súkkulaðidrykkinn. Til að
spara tíma má auðvitað nota
skyndikaffi. Rauður og hvítur
piparmyntustafur
gefur gott bragð
og dásamlegan
ilm. Einnig má
nota pipar-
myntubrjóst-
sykur. Kókos og
súkkulaði fara vel
saman og því er
upplagt að prófa
að skipta út fjórð-
ungi af mjólkinni
fyrir kókosmjólk.
Suðræn og
seiðandi blanda
sem gaman er
að prófa. Þeir
sem eru aðeins
ævintýragjarnari
geta sett eina til
tvær teskeiðar af
hnetusmjöri út í
drykkinn. Passið
bara að hræra vel
þar til það leysist
upp.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ÓVENJULEGAR TETEGUNDIR
Ógrynni heitra drykkja er á markaði, við könnumst öll við þá hefð-
bundnu; kaffi, heitt súkkulaði og te.
Te fæst hins vegar í alls kyns útfærslum og flestir hafa gengið fram hjá
hillum stórmarkaða sem geyma tugi ólíkra tetegunda. Vanillu, súkkulaði,
allar berjategundir sem til eru, allir ávextir í heimi og mynta eru allt teg-
undir af tei sem auðvelt er að finna. Svo eru til aðrar bragðtegundir sem
fæstir vita af; tómat-mynta, gulrótar-karrí, spínat-graslaukur, fennel-krydd,
brokkólí-kóríander og rófu-kál eru allt te sem fyrirtækið Numi Organic Tea
framleiðir. Nöfnin eru ekkert sérstaklega spennandi og hljóma kannski
frekar eins og súpur en ekki te. Ef til vill eru þau nógu skrítin til að vera
góð á bragðið og eflaust ástæða til að safna kjarki og smakka á einu slíku
í stað þess að vera alltaf í því sama.