Fréttablaðið - 22.12.2014, Side 8
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Við
fjárhagsendur-
skoðun hjá
Vegagerðinni
vegna ársins
2013 gerði
Ríkisendur-
skoðun athugasemd við
nokkur tilvik.
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur.
Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano
fyrir Nespressovélar.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
J Ó L AT I L B O Ð
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
ENA MICRO 9 ONE TOUCH
Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar
voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato,
cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp.
Tilboð: ENA Micro 9 kr. 129.900
Tilboð: ENA Micro 1 kr. 95.920
FJÁRMÁL Hver sólarhringur sem
Reykjavíkurborg heldur úti öllum
sínum tækjum og mannskap við
snjómokstur kostar tíu til fimm-
tán milljónir króna. Strax í haust
var kostnaður vegna snjómoksturs
380 milljónir og er gert ráð fyrir
að árið kosti hálfan milljarð þegar
það verður gert upp.
Samkvæmt upplýsingum borg-
arinnar voru 35 bílar og vinnu-
vélar notaðar við snjóhreinsun og
hálkueyðingu á umferðar götum í
gær, og eru þá ótaldar vélar Vega-
gerðarinnar, sem sinnir snjó-
hreinsun á stofnbrautum að miklu
leyti. Heildarlengd gatna sem þarf
að hreinsa er 445 kílómetrar, og til
að ryðja öllum snjó þarf að þræða
þær ítrekað.
Á stígum og gangstéttum voru
þrettán sérútbúnar dráttarvélar
með plóga og sanddreifingarbúnað
á ferðinni. Heildarlengd stíga og
gangstétta sem falla undir vetrar-
þjónustu eru 687 kílómetrar.
Sérstakur hópur með sex trakt-
ors gröfur var einnig ræstur út en
hann sér um hreinsun á strætó-
biðstöðvum, sem og við leik-
skóla, grunnskóla, sundlaugar og
nokkrar stofnanir Reykjavíkur-
borgar. Þá er um 25 manna hópur
frá hverfastöðvunum sem sér um
mokstur á stöðum sem tæki kom-
ast ekki að.
- shá
Annadagar við snjómokstur í Reykjavík kosta allt að 15 milljónir króna:
Snjó mokað fyrir 500 milljónir
ANNATÍMI Fara þarf hverja leið ítrekað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNSÝSLA Vegagerðin hefur áður
fengið athugasemdir um fjölda til-
vika þar sem reglur um útboðs-
skyldu eða samþykktarferli reikn-
inga voru ekki virtar. Þetta segir
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Kastljós fjallaði ítarlega um brota-
lamir í útboðsmálum Vegagerðar-
innar í síðustu viku.
Ekkert formlegt eftirlit er með
útboðsmálum hins opinbera. Ný
tilskipun ESB tekur á þessum
vanda og skikkar aðildar lönd og
ríki innan EES að setja á stofn eft-
irlit með opinberum samningum.
Sveinn segir eftirlit Ríkisendur-
skoðunar tvíþætt, annars vegar
í gegnum reglubundna fjár hags-
endur skoðun og hins vegar með
stjórnsýsluúttektum. „Við fjárhags-
endur skoðun er jafnan kannað hvort
stofnanir noti rammasamninga
Ríkis kaupa og hvort fjárhæðir fara
yfir viðmiðunarmörk útboðsskyldu.“
„Við fjárhagsendurskoðun hjá
Vegagerðinni vegna ársins 2013
gerði Ríkisendurskoðun athuga-
semd við nokkur tilvik þar sem
reglur um útboðsskyldu eða sam-
þykktarferli reikninga voru ekki
virtar,“ segir Sveinn.
„Engin stofnun fer beinlínis
með það hlutverk að vakta opin-
bera samninga þannig að farið sé
að lögum um opinber innkaup við
meðferð opinbers fjár,“ segir Hall-
dór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkis-
kaupa. „Visst aðhald er þó að finna í
ákvæðum laga um opinber innkaup.
Þar er kveðið á um kærunefnd
útboðsmála og fjallað um gildi
samninga, óvirkni, önnur viður lög
og skaðabætur. Samkvæmt þess-
um ákvæðum er eftir litið í dag í
höndum fyrirtækja á markaði. Þá
einkum fyrirtækja sem taka þátt
í útboðum. Þeim fyrirtækjum eru
tryggð ákveðin úrræði með þeim,
svo sem að skjóta málum sínum
til kærunefndar útboðsmála. Þó
má segja að hlutverk Samkeppnis-
eftir litsins komi að vissu leyti inn
á þetta svið einnig.“
Halldór bendir á að á döfinni sé
lagabreyting sem muni binda enda
á þetta eftirlitsleysi. „Í nýlegum
samþykktum um opinber innkaup
eru sérstök ákvæði um vöktun opin-
berra samninga. Búast má við að
tilskipanir þessar verði innleiddar
í íslenska löggjöf árið 2017. Vonir
standa til að það verði fyrr.“
sveinn@frettabladid.is
VEGAGERÐ VIÐ REYKJANESBRAUT Stór hluti útgjalda Vegagerðarinnar er kaup á
verktakavinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Vegagerðin hefur áður
fengið athugasemdir
Við fjárhagsskoðun vegna ársins 2013 gerði Ríkisendurskoðun fjölda athugasemda
við verklag Vegagerðarinnar. Engin stofnun fer beinlínis með það hlutverk að
vakta opinbera samninga þannig að farið sé að lögum, segir forstjóri Ríkiskaupa.
VINNUMARKAÐUR Stjórn starfs-
endur hæfingarsjóðsins VIRK hefur
ákveðið að afþakka 200 milljónir
króna sem Alþingi veitti til starfs-
ins í fjárlögum fyrir árið 2015.
Lög um starfsendurhæfingu
voru samþykkt árið 2012. Markmið
þeirra laga var að setja á laggirnar
eitt heildarkerfi atvinnutengdrar
starfsendurhæfingar með jöfnum
aðgangi fyrir alla einstaklinga sem
þurfa á þjónustunni að halda.
Eygló Harðardóttir harmar að
VIRK hafni framlaginu. „Það er
ekki hlutverk
VIRK að safna
í sjóð heldur að
veita þjónustu
því fólki sem
lögin taka til.“
Hún segir að
falli VIRK ekki
frá ákvörðun um
að hafna fram-
laginu verði allt
kapp lagt á að tryggja fólki þá þjón-
ustu sem það þurfi hjá VIRK eða
eftir öðrum leiðum.
Hannes G. Sigurðsson, stjórnar-
formaður VIRK, segir ekki hafa
komið annað úr viðræðum við ráð-
herra og embættismenn en kröf-
ur um niðurskurð. Stjórn sjóðsins
segir óljóst hverju framlag ríkisins
breyti um réttindi skjólstæðinga
VIRK eða skyldur sjóðsins gagn-
vart þeim. „Þá verður ekki séð að
þær breyti neinu er varðar viðhorf
stjórnvalda til samstarfs við aðila
vinnumarkaðarins og lífeyris sjóði
um uppbyggingu á atvinnutengdri
starfsendurhæfingu.“ - sa
VIRK starfsendurhæfingarsjóður afþakkar 200 milljóna fjárframlag ríkisins:
Segja óvissu fylgja framlaginu
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR