Fréttablaðið - 22.12.2014, Page 12
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Hágæða LED
útiseríur
www.grillbudin.is
Frá Svíþjóð
120 ljós
180 ljós
40 ljós
80 ljós
120 ljós
200 ljós
240 ljós
300 ljós
1000 ljós
LED LED
VELDU
SEM END
AST
OG ÞÚ SPARA
R
JÓLAL
JÓS
Smiðjuvegi 2, Kópavogi | S. 554 0400 | Opið 11-16 laugardag og 13-16 sunnudag
LED 50 ljós
100 ljós
120 ljós
150 ljós
200 ljós
300 ljós
1000 ljós10 og 20 ljósGamaldags
Komdu og fáðu ráðleggingar
LÖGREGLUMÁL „Ég veit ekki alveg
út af hverju fréttamiðlar ættu að
hafa mikinn áhuga á þessu máli en
ég ætla að minnsta kosti ekki að
tjá mig,“ segir Marteinn Einars-
son, sem ákærður er vegna brot-
lendingar flugvélar við sumar-
húsabyggð í Langholtsfjalli.
Flugvélin TF-KEX lagði upp frá
Reykjavíkurflugvelli og brotlenti
í Langholtsfjalli 1. apríl 2010. Um
borð voru þrír farþegar auk Mar-
teins sem flaug vélinni. Marteinn
og einn farþeganna voru hvor í
sínu lagi að velta fyrir sér að taka
flugvélina á leigu og höfðu feng-
ið hana til prufuflugs. Hinir far-
þegarnir tveir voru á vegum Mar-
teins.
Fjallað var um niðurstöðu rann-
sóknarnefndar flugslysa í Frétta-
blaðinu 8. nóvember í fyrra:
„Flugmaðurinn flaug vél-
inni ítrekað lágt yfir sumarhús
í Heiðar byggð í Langholtsfjalli
nálægt Flúðum þar til hann fann
bústað sem ættingjar hans dvöld-
ust í og flaug beint yfir húsið. Er
hann hugðist taka U-beygju til
baka hrapaði vélin til jarðar og
brotlenti á mosavöxnum hrygg,“
sagði í Fréttablaðinu.
Sá sem ætlaði að prufufljúga
vélinni með Marteini hlaut brot á
lendarhryggjarlið, kona um borð
hlaut brot á brjóstlið og bringu-
beini og tognun á brjósthrygg og
hálshrygg og þriðji karlmaðurinn
tognaði í hálshrygg, brjósthrygg
og brjóstkassa.
Eftir rannsókn lögreglu á mál-
inu gaf ríkissaksóknari út ákæru
á hendur Marteini fyrir brot á loft-
ferðalögum og reglum með því að
hafa ekki gætt nægrar aðgæslu
við undirbúning og stjórn flugvél-
arinnar yfir sumarhúsabyggðinni.
Hann hafi enga reynslu af að fljúga
slíkri flugvél og ekki gert tilskylda
massa- og jafnvægisútreikninga.
Síðan hafi hann flogið „vélinni yfir-
hlaðinni, í lítilli hæð yfir sumar-
húsabyggðinni, á eða við ofrishraða,
í krappri beygju í sterkum hviðótt-
um vindi svo flugvélin missti hraða
og hæð og skall í jörðina með þeim
afleiðingum að farþegarnir þrír
slösuðust og flugvélin eyðilagðist“.
Hinn prufuflugmaðurinn, sem
Marteinn þekkti ekki fyrir flug-
ið, krefst einnar milljónar króna í
miskabætur frá Marteini. Ríkissak-
sóknari krefst þess að hann verði
dæmdur til refsingar.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Suðurlands á fimmtudag. Þar neit-
aði Marteinn sök. Hann hefur nú
frest út janúar til að skila greinar-
gerð í málinu. Að þeim tíma liðnum
verða skipaðir meðdómendur og
framhald málsins ákveðið.
gar@frettabladid.is
Flugmaður neitar sök vegna
brotlendingar við sumarhús
Marteinn Einarsson, sem ákærður er vegna brotlendingar flugvélar nærri Flúðum í apríl 2010, neitaði sök við
þingfestingu málsins hjá Héraðsdómi Suðurlands. Farþegi sem slasaðist krefst einnar milljónar í miskabætur.
DJÚP FÖR Greinileg ummerki voru um hvernig vélin þeyttist eftir jörðinni.
MYND/RANNSÓKNARNEFND FLUGSLYSA
TF-KEX Flugvélin eyðilagðist í óhappinu. MYND/RANNSÓKNARNEFND FLUGSLYSA
FLUGLEIÐIN Hér sést hvernig Cessna-vélinni TF-KEX var flogið fram og til baka yfir sumarhúsabyggðinni í hlíðum Langholtsfjalls á skírdag 2010 þar til hún brotlenti eftir
krappa beygju. MYND/RANNSÓKNARNEFND FLUGSLYSA
NOREGUR Norsk og hollensk yfir-
völd hafa skrifað undir sam-
komulag um að 242 norskir fang-
ar fái að afplána fangelsisdóma
í Hollandi.
Á fréttavef norska ríkisút-
varpsins er haft eftir Anders
Anundsen, dómsmálaráðherra
Noregs, að vonandi verði hægt að
byrja að senda fanga til Hollands
næsta sumar. Fyrst og fremst
sé um að ræða fanga með langa
fangelsisdóma. Einnig geti verið
um að ræða erlenda ríkisborgara
sem ákveðið hafi verið að vísa úr
landi.
Fangarnir eiga að afplána í
fangelsi í bænum Veenhuizen
samkvæmt norskum aðstæðum
og undir stjórn Norðmanns.
Dómsmálaráðuneytið í Noregi
hefur greint frá því að nú bíði
1.200 fangar eftir því að geta
afplánað dóma sína. Talið er að
þörf sé á 2.000 nýjum fangelsis-
plássum í Noregi fyrir árið 2040.
Dómsmálaráðherrann telur að
fjögur ný fangelsi þurfi til þess
að leysa vandann. - ibs
Norsk stjórnvöld semja vegna yfirfullra fangelsa:
200 Norðmenn afplána
í hollenskum fangelsum
FANGELSI Ila-fangelsið sögufræga í
Noregi. NORDICPHOTOS/AFP
FRAMKVÆMDIR Háskóli Íslands,
Félagsstofnun stúdenta og Reykja-
víkurborg ætla að undirrita vilja-
yfirlýsingu á morgun, mánudag-
inn 22. desember, um uppbyggingu
á allt að 650 nemendaíbúðum á
næstu fimm árum.
Áformað er að byggja 400 íbúðir
á svæði Háskólans en 250 á öðrum
þéttingarreitum nálægt miðborg-
inni og skólanum, samkvæmt til-
kynningu Reykjavíkurborgar.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
undirritar viljayfirlýsinguna fyrir
hönd borgarinnar. - hg
Undirrita viljayfirlýsingu:
Byggja um 650
nemendaíbúðir
SLYS Björgunarsveitir voru kall-
aðar út á öðrum tímanum í gær
til að sækja slasaðan göngu-
mann á Kerhólakamb á göngu-
leiðinni í Esju.
Maðurinn hrasaði er hann
var á ferð með félögum sínum
og var talið að hann hefði fót-
brotnað.
Töluverðan mannskap þurfti
í verkið enda nokkuð erfiður
burður niður af fjallinu í snjó og
hálku. Veðrið var þó með allra
besta móti fyrir slíkar aðgerðir,
lygnt og bjart. - jóe
Maður fótbrotnaði á Esju:
Sóttu slasaðan
göngumann
SVEITARSTJÓRNIR Tillaga M-lista
Íbúahreyfingarinnar um að ráðn-
ing lögmanns bæjarins verði á
borði bæjarstjórnar í stað bæjar-
stjóra var felld í bæjarráði Mos-
fellsbæjar.
Sigurður Snædal Júlíusson var
ráðinn lögmaður. „Hann mun að
hluta gegna störfum sem fram-
kvæmdastjóri stjórnsýslusviðs
gegndi áður,“ sagði fulltrúi M-
listans og vitnaði til laga um að
sveitarstjórn réði starfsmenn í
æðstu stöður. „Tillaga M-lista
gengur þvert gegn samþykktum
bæjarins og nýsamþykktu skipu-
riti bæjarins,“ sögðu fulltrúar
meirihlutans. - gar
Tillaga Íbúahreyfingar felld:
Bæjarstjórn
ráði lögmann
HARALDUR SVERRISSON Haraldur er
bæjarstjóri Mosfellsbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA