Fréttablaðið - 22.12.2014, Side 36
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Elskulegur pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
ÓSKAR HJARTARSON
frá Vestmannaeyjum,
bílstjóri og bifvélavirki,
Sæviðarsundi 100, Reykjavík,
lést 15. desember á hjartadeild
Landspítalans. Útför hans fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn
22. desember kl. 13.00.
Sigurborg Óskarsdóttir
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir Árni Árnason
Hrafnhildur Árnadóttir
Arngunnur Árnadóttir
Valgerður Árnadóttir
GUÐRÚN KRÜGER
Vesturgötu 7, Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
18. desember.
Haraldur Olgeirsson Margrét Hauksdóttir
Haukur Þór Haraldsson Bryndís Skúladóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Our beloved mother, mother in law,
grandmother and greatgrandmother,
THERESA OYINKWO IGBO
Smáratúni 22, Keflavík,
frá Nígeríu – from Nigeria,
lést þriðjudaginn 16. desember.
Útför hennar fer fram í hennar heimalandi, Nígeríu.
Fjölskyldan þiggur allan þann fjárhagslega stuðning sem vinir og
vandamenn gætu séð sér fært um til að styrkja flutning hennar
til Nígeríu.
passed away on the December 16.
Her funeral will be held in her home country Nigeria.
If anyone can help the family and support them to transfer the
remains to Nigeria it would be very much appreciated.
Kt. 221268-2539 0542-14-404234
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
On the behalf of the family,
Eucharia Amaoge Igbo Húbertson, Haraldur Húbertsson.
Innilegar þakkir fyrir samúð, vináttu
og alla þá ómetanlegu aðstoð sem okkur
hefur verið sýnd vegna andláts og útfarar
yndislegs eiginmanns og föður,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR.
Með ósk um gleðileg jól og farsæld á nýju
ári til ykkar allra.
Fríða Ragna, Elfa Rut, Katla Rut og Tinna Rut
MERKISATBURÐIR
1912 Lady Bird Johnson forsetafrú fæddist, en hún var eigin-
kona Lyndon B. Johnson sem varð forseti að John F. Kennedy
látnum. Hún lést árið 2007.
1962 Ralph Fiennes leikari fæddist. Hann hefur meðal annars leik-
ið í Schindler ś list, The English Patient og Maid in Manhattan.
1963 Skemmtiferðaskiptið Lakonía brennur um 290 kílómetrum
norður af eyjunni Madeira. Alls fórust 128 manns í slysinu.
1987 Ný lögreglusamþykkt fyrir Reykjavík gekk í gildi í stað ann-
arrar, sem var meira en hálfrar aldar gömul.
1990 Króatíska þingið samþykkir stjórnarskrá Króatíu.
1999 Flutningaflugvél á vegum Korean-Air hrapar fljótlega eftir
flugtak á London Stansted. Allir fjórir sem um borð voru fórust.
2010 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, undirritar ný lög
þar sem samkynhneigt fólk er ekki lengur útilokað frá banda-
ríska hernum.
Ion Iliescu tekur við embætti forseta
Rúmeníu eftir að Nicolae Ceaușescu, for-
seti í kommúnistastjórninni í Rúmeníu,
hrökklast frá völdum. Ceaușescu var aðal-
ritari Kommúnistaflokksins í Rúmeníu
frá árinu 1965-1989 og forseti landsins á
árunum 1967-1989.
Eftir nokkur ár við völd sýndi ríkis-
stjórn Ceaușescus sífellt meira harðræði.
Stjórnin hafði fullt vald yfir fjölmiðlum
landsins. Hún hélt líka úti ofbeldisfullri
öryggissveit Securitate sem sýndi borgur-
unum mikið harðræði.
Ríkisstjórn Ceaușescu féll eftir að hann
skipaði öryggissveitum sínum að skjóta
á mótmælendur úr röðum stjórnarand-
stæðinga í borginni Timișoara þann 17.
desember 1989.
Mótmælendur fóru til Búkarest og
mynduðu hreyfingu sem var kölluð
Rúmenska byltingin. Ceaușescu og Elena,
eiginkona hans, flúðu höfuðborgina í
þyrlu en vopnaðar hersveitir náðu þeim.
Á jóladag, þann 25. desember, voru þau
skotin til bana.
- jhh
ÞETTA GERÐIST: 22. DESEMBER 1989
Nýr leiðtogi stígur dagsins ljós í Rúmeníu
Hjálparstarf kirkjunnar hefur tekið
við 100 eintökum af bókinni Jólin
hans Hallgríms. Jóhannes Pálmason,
formaður sóknarnefndar Hallgríms-
kirkju, afhenti Bjarna Gíslasyni, fram-
kvæmdastjóra hjálparstarfsins, gjöf-
ina.
Á vef Kirkjunnar segir að bókinni
verður stungið í gjafapoka barnafjöl-
skyldna fyrir jólin.
Steinunn Jóhannesdóttir er höfundur
bókarinnar sem segir frá aðventunni í
Gröf á Höfðaströnd árið 1621. Þá var
Hallgrímur Pétursson sjö ára gamall.
Margt hefur breyst á fjórum öldum
en þó er jólahald heimilisfólksins í
Gröf kunnuglegt. Ljós kviknar í hjört-
um mannanna þótt myrkrið grúfi
yfir. Steinunn hefur skrifað söguleg-
ar skáldsögur um Hallgrím Pétursson
og Guðríði konu hans. En í Jólin hans
Hallgríms segir hún frá skáldjöfrinum
ungum. Myndirnar gerði Anna Cynthia
Leplar.
Hjálparstarf kirkjunnar fékk hundrað bækur eftir Steinunni Jóhannesdóttur:
Jólin hans Hallgríms í gjafapoka
„Þetta er með merkustu áföngum
Íslandssögunnar,“ segir Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir um aldarafmæli
kosningaréttar og kjörgengis kvenna til
Alþingis.
„Þetta var fyrsti áfanginn að jöfn-
um möguleikum kvenna til þess að
hafa áhrif á samfélagið og löggjöf-
ina. Auk þess eru þetta auðvitað sjálf-
sögð mannréttindi kvenna,“ segir Ásta
Ragn heiður sem er framkvæmdastjóri
afmælisnefndarinnar.
Fjöldi viðburða verður á næsta ári
vegna afmælisins. Ásta segir að mikið
og spennandi verk standi nú yfir. „Kven-
félög og kvennasamtök eru að vinna
alveg magnaða vinnu við að undir búa
frábæra dagskrá, hvert á sínum stað.“
segir Ásta sem telur að helst standi upp
úr fögnuður á Austurvelli þann 19. júní.
Þá verður ein öld, upp á dag, liðin
frá því að Kristján tíundi Danakon-
ungur staðfesti stjórnarskrárbreyt-
ingu þar sem allar konur og karlkyns
vinnumenn 40 ára og eldri að undan-
skildum þeim sem þegið hefðu sveitar-
styrk fengu kosningarétt. Í heild fengu
tólf þúsund konur og 1.300 karlar þá
tækifæri til að kjósa í fyrsta sinn til
Alþingis. Í kjölfarið átti kosningaaldur
að lækka um eitt ár, ár hvert, þar til
bæði konur og karlar fengju að kjósa
við 25 ára aldur. „Það ákvæði var sér-
íslenskt,“ segir Ásta.
Hátíðarhöldin hefjast þann 30. des-
ember næstkomandi þegar sjö leik-
konur koma fram í Iðnó og leiklesa
ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá
árinu 1887 sem talin er marka upphaf
kvenréttindabaráttunnar á Íslandi.
Þá verða haldnar sýningar á fjöl-
mörgum söfnum um land allt. „Þjóð-
minjasafnið er að fara yfir alla grunn-
sýningu sína með kynjagleraugum.
Það hefur verið gert í nágrannalöndum
okkur af því það voru yfirleitt karlar
sem settu upp þessar sýningar út frá
sínum sjónarhóli,“ segir Ásta.
Ritun bókaflokks um 100 ára afmæli
kosningarréttar kvenna hefst á næsta
ári en stefnt er að útgáfu hans árið
2020. Þá verður öld liðin síðan aldurs-
ákvæðið var afnumið og konur fengu
jafnan kosningarétt á við karla.
Ríkissjóður leggur hátíðarhöld-
unum til 98 milljónir sem dreifast til
helminga á þetta ár og það næsta auk
þess sem sveitarfélög og félagasamtök
styrkja hátíðina, sem verður sennilega
áberandi næsta árið. ingvar@frettabladid.is
Öld er síðan konur
fengu kosningarétt
Mikil hátíðarhöld verða á næsta ári vegna þess að þá verða 100 ár liðin frá því konur
fengi kosningarétt til Alþingis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri
afmælisnefndarinnar, segir áfangann einn þann merkasta í Íslandssögunni.
STENDUR Í STRÖNGU
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri afmælis-
nefndarinnar, segir
spennandi vinnu standa
yfir þessa dagana við að
skipuleggja hátíðar-
höldin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hátíðarhöldin hefjast
þann 30. desember næst-
komandi þegar sjö leik-
konur koma fram í Iðnó og
leiklesa ræðu Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur frá árinu 1887.