Fréttablaðið - 22.12.2014, Side 52

Fréttablaðið - 22.12.2014, Side 52
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 44 Klassísk tónlist 2014 Fyrir tíu árum skrifaði ég nokkuð umdeilda opnu-grein sem bar fyrirsögnina „Er Íslenska óperan dauða-dæmd?“ Þar gagnrýndi ég stofnunina og fann að því að eingöngu vinsælar óperur væru settar upp, en nýjar íslenskar óperur van- ræktar. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Óper- an fékk einn á lúðurinn. Í Reykjavíkur- bréfi í Morgunblaðinu tveimur árum áður hafði verið stungið upp á að hún fetaði í fótspor Íslenska dansflokks- ins og skapaði sér sérstöðu með því að einbeita sér að nýbreytni í óperuupp- færslum. Þáverandi óperustjóri, Bjarni Daní- elsson, mótmælti þessu og benti á að ekki væri mikil gróska í ritun íslenskra ópera sem næðu hylli almennings. Það var að einhverju leyti rétt hjá honum. En ekki lengur. Á árinu sem er að líða náðu nefnilega bæði sígildar og nýjar íslensk- ar óperur miklum vinsældum. Don Carlo eftir Verdi í haust þótti sér- lega skemmtileg, sviðsmyndin var frá- bær og tónlistarflutningurinn magn- aður. Einhver flottasti sviðseffekt sem hefur sést á Íslandi var þegar rann- sóknar rétturinn brenndi nokkra saka- menn á báli. Eins og allir vita er Eld- borgin í Hörpu rauð, og þegar gervieldi var varpað á sviðið var það svo rautt að það var hreinlega eins og maður væri kominn til helvítis! Ekkasog og snýtingar Áhorfendur grenjuðu af hrifningu. En þeir voru líka djúpt snortnir á upp- færslu óperunnar Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson við texta eftir Frið- rik Erlingsson. Ragnheiður kom veru- lega á óvart. Það voru ekkasog og snýt- ingar allt kringum mig þegar líða tók á sýninguna. Sjálfur þóttist ég vera með ofnæmi. Óperan var rómantísk eins og gömlu óperurnar, en samt ekki klisju- kennd. Tónlistin, þótt hún væri þægilega lagræn, var aldrei fyrirsjáanleg. Svo var bara eitthvað sjarmerandi íslenskt við hana. Önnur íslensk ópera var frumflutt í konsertuppfærslu á árinu. Það var barnaóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson. Hún leit fyrst dagsins ljós á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði í sumar, en var flutt í Langholtskirkju nokkrum dögum síðar. Rétt eins og ópera Gunnars var hún alþýðleg og grípandi. Hún var af og til skreytt þjóðlögum, og húmor- inn sveif yfir vötnunum. Þegar ég gekk út að tónleikum loknum heyrði ég fólk vera að blístra stef úr óperunni. Það eru sko meðmæli! Íslenskar óperur eru því í sókn um þessar mundir. En nokkur önnur íslensk tónverk voru frumflutt á árinu sem voru afburðagóð. Hér er ekki hægt að minn- ast á þau öll, en nefna verður klarinettu- konsert eftir Svein Lúðvík Björnsson og sellókonsert eftir John A. Speight. Errata collective var jafnframt með stórsniðuga tónleika í sumar; The Isle Is Full of Noises eftir Daníel Bjarna- son á Myrkum músíkdögum var sömu- leiðis hrífandi. Einnig Scape of Grace eftir Hallvarð Ásgeirsson og Sögu Sig- urðardóttur. Það síðastnefnda var bæði dans- og tónverk, rétt eins og svo margt í heimi nútímadansins. Afmælisveislur og dræm aðsókn Tvö 40 ára afmæli voru áberandi á árinu. Sumartónleikar í Skálholti fögn- uðu þessum áfanga, sem og Kammer- sveit Reykjavíkur. Upphafstónleikarnir í Skálholti í sumar voru einstaklega veg- legir. Þar var boðið upp á sjaldheyrða barokktónlist frá Suður-Ameríku. Það var meira að segja dansað við hana í sjálfri Skálholtskirkju sem þó sökk ekki! Kammersveitin bauð líka til afmælis- veislu með því að endurskapa fyrstu tónleika sveitarinnar á Kjarvalsstöð- um. Það var góð hugmynd. En nú er maður orðinn spilltur af eftirlæti eftir að Harpan reis, svo tónleikar á Kjarvals- stöðum eru ekkert sérstaklega aðlaðandi lengur. Húsið er auðvitað skemmtilegt, en hljómburðurinn er ekkert til að hrópa húrra fyrir. Húrrahrópunum rigndi ekki heldur yfir Listahátíð í vor. Eitthvað virtist hún illa sótt, a.m.k. fékk ég nokkra dreifi- pósta þar sem mér voru boðnir tveir miðar fyrir einn á mismunandi við- burði hátíðarinnar. Það var ekki góðs viti. Enda ollu sumir tónleikar á hátíð- inni vonbrigðum. Þó stóð 3. sinfónía Mahlers undir stjórn Osmo Vänskä upp úr – og vel það. Hún var svo voldug og tignarleg að það hlýtur að teljast með betri tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árinu. Kissin og Megas Talandi um sinfóníutónleika þá held ég að ég hafi aldrei upplifað önnur eins fagnaðarlæti á klassískum tónleikum og þegar Évgení Kissin lék einleikinn í 2. píanókonsert Rakmaninoffs. Það var hreinlega geggjað. Fólk stökk á fætur og gargaði. Ekki varð betur séð en að Kissin sjálfur yrði hálf hvumsa. Það var komið fram við hann eins og rokk- stjörnu. Margt fleira gerðist á árinu, Sinfóníu- hljómsveitin í Toronto var t.d. með ein- dæmum glæsileg og sömu sögu er að segja um Fílharmóníusveitina í London, þótt hún væri kannski ekki alveg eins góð. Svo verður lokum að nefna stór- fenglega tónleika í Grafarvogskirkju með tónlist Megasar við Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Það var einstak- ur listviðburður. Passíusálmarnir eru auðvitað grafalvarlegur kveð skapur, en tónlist Megasar er full af gleði. Sjálfsagt vakti hún einhverja hneykslun af þeim sökum, en hún á eftir að lifa! Hægt er að horfa á Jesú og líf hans út frá svo mörg- um sjónarhólum, og tónlist Megasar er nýr vinkill á þá sögu. Í það heila var 2014 gott ár í tónlistar- lífinu á Íslandi og óhætt er að hlakka til þess næsta. Ég óska lesendum mínum gleðilegs árs og þakka þeim samfylgd- ina á árinu sem er að líða. Jónas Sen Frábær íslensk tónverk frumfl utt Tónlistarárið 2014 var í það heila gott ár í klassískri tónlist að mati Jónasar Sen. Frábær íslensk ópera frumfl utt, góðir gestir sóttu landið heim, haldið var upp á afmæli Sumartónleika í Skálholti og Kammersveitar Reykjavíkur og er þá fátt eitt talið. RAGNHEIÐUR MEGAS ÉVGENÍ KISSIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.