Fréttablaðið - 22.12.2014, Page 56

Fréttablaðið - 22.12.2014, Page 56
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 48 1 Aphex TwinSyro 18 stig 2 The War on DrugsLost in the Dream18 stig 3 St. VincentSt. Vincent17 stig 4 FKA TwigsLP112 stig 5 Royal BloodRoyal Blood11 stig BESTU ERLENDU PLÖTUR ÁRSINS 2014 6 Jack WhiteLazaretto10 stig 7 Perfume GeniusToo Bright9 stig 8 Mac DeMarcoSalad Days9 stig 9 Ariel Pinkpom pom8 stig 10 Riff RaffNeon Icon7 stig ROYAL BLOOD THE WAR ON DRUGS ST. VINCENT FKA TWIGS Erlendar plötur 2014 Syro með breska raftónlistar-manninum Aphex Twin er besta erlenda plata ársins að mati álitsgjafa Fréttablaðsins. Platan fékk jafnmörg stig og Lost in the Dream með The War on Drugs en reglurnar eru þannig að platan sem er með fleiri tilnefning- ar fær hærra sæti á heildarlistanum. Syro hlaut fimm tilnefningar en Lost in the Dream hlaut fjórar og því fellur sigurinn í skaut Aphex Twin í ár. Skammt undan, í þriðja sæti listans, er bandaríska tónlistarkonan St. Vin- cent með sína fjórðu hljóðversplötu, samnefnda henni. Fréttablaðið leitaði til valinna sér- fræðinga til þess að ganga úr skugga um það hverjar væru bestu plötur árs- ins 2014. Átján manns skiluðu inn list- um yfir bestu erlendu plöturnar, gagn- rýnendur, fjölmiðlafólk og nafntogaðir tónlistaráhugamenn. Platan sem er í efsta sæti á lista hvers og eins fær 5 stig, platan í öðru sæti 4 stig og þannig koll af kolli. Syro með Aphex Twin er sjötta hljóðversplata raftónlistarmannsins sérvitra og sú fyrsta í þrettán ár. Plat- an hlaut fyrirtaks dóma í hinum ýmsu tónlistarmiðlum þegar hún kom út, þar á meðal 10/10 í Drowned in Sound, 8/10 í Clash, 4/5 í Q Magazine, 9/10 í NME og 8,7/10 á Pitchfork Media. Þriðja plata bandarísku indírokksveitarinnar The War on Drugs hlaut einnig frábæra dóma víða um heim en sveitin steig meðal annars á svið á Ice- land Airwaves-hátíðinni í Vodafonehöllinni í haust við góðar undirtektir. Þrír flytjendur kom- ust á topp tíu með sínar fyrstu plötur, eða enska tónlistarkonan Tahliah Debrett Barnett, betur þekkt sem FKA Twigs, breska rokkdúóið Royal Blood og bandaríski rapparinn Riff Raff. Annars vekur athygli að 59 plötur fengu atkvæði hjá álits- gjöfunum í ár og skiptust stigin því á ansi margar hendur. APHEX TWIN MEÐ BESTU ERLENDU PLÖTUNA 2014 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR NORDICPHOTOS/GETTY NORDICPHOTOS/GETTY N O RD ICPH O TO S/G ETTY APHEX TWIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.