Fréttablaðið - 22.12.2014, Qupperneq 74
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 66
Væri ég kominn í
Evrópumótaröðina ef ég
væri enn að vippa með
báðum höndum? Ekki
möguleiki.
Jason Palmer
GOLF Saga Englendingsins Jasons
Palmer er engri lík. Þúsundir kylf-
inga berjast ár eftir ár til þess að
komast inn á Evrópumótaröðina en
þar er Palmer þótt hann slái eins
og einhentur maður inn á flatirn-
ar. Hann er fyrsti maðurinn í sögu
mótaraðarinnar sem notar aðeins
aðra höndina í stutta spilinu.
Þessi þrítugi kylfingur frá Lei-
cester vann sér á dögunum full-
an þátttökurétt í Evrópumótaröð-
inni þar sem nokkrir Íslendingar
reyndu meðal annars fyrir sér.
Palmer þótti snemma vera
gríðar mikið efni og komst í enska
landsliðið er hann var rúmlega
tvítugur. Hann spilar ekki svona
vegna líkamlegrar fötlunar.
Vandamálið er andlegt.
Stutta spilið var frábært
Kaldhæðnin í þessu öllu saman
er sú að stutta spilið var lengi vel
hans styrkleiki í golfinu. Þá vipp-
aði hann með báðum höndum.
„Ég byrjaði seint í golfi eða
þegar ég var 14 ára gamall. Á einu
ári fór forgjöfin hjá mér úr 26 í 15.
Ári síðar var ég kominn með fimm
í forgjöf,“ segir Palmer.
„Ég tók alveg ótrúlega hröðum
framförum. Stutta spilið var alltaf
best hjá mér. Ég var lítill og linur
þannig að upphafshöggin mín voru
stutt og léleg. Ég bætti það alltaf
upp með stutta spilinu.“
Æfingar Palmer í kjölfarið fóru í
að laga upphafshöggin og það hafði
sín áhrif.
„Stutta spilið var mitt vopn.
Ástæðan fyrir því að stutta spil-
ið hjá mér hrundi gæti verið að ég
var farinn að leggja allt of mikla
áherslu á aðra hluti golfsins.“
Hrunið í spilamennskunni hjá
Palmer var hratt enda var þetta
farið að leggjast á sálina hjá
honum.
„Þetta byrjaði allt með einu
lélegu vippi. Svo kom annað og
áður en ég vissi af var þetta komið
í hausinn á mér. Maður á að spila
golf með tæran huga. Ég var far-
inn að hugsa um tækni og ekkert
annað. Því meira sem ég hugsaði
um þetta þeim mun verra varð
stutta spilið hjá mér. Staðan var
orðin þannig að ég var orðinn skít-
hræddur ef ég hitti ekki inn á flöt.
Ég vissi nefnilega að ég myndi
klúðra vippinu,“ sagði Palmer og
rifjar upp sögu frá því að hann var
að keppa í Ástralíu með landslið-
inu.
Höggin minntu á tennis
„Ég var á tveimur eða þremur
höggum undir pari og hitti ekki
flötina. Það sem fylgdi í kjölfarið
minnti á tennisleik þar sem ég sló
boltann fram og til baka yfir flöt-
ina. Ég bara gat ekki fengið bolt-
ann til þess að stoppa á flötinni og
endaði holuna á átta eða níu högg-
um,“ sagði Palmer en raunum hans
var ekki lokið þar.
„Á móti skömmu síðar var ég á
fleygiferð og að vinna með þrem-
ur höggum þegar fimm holur voru
eftir. Ég átti 64 metra eftir í næstu
holu en næsta högg með fleyg-
járninu fór einn metra. Ég endur-
tók svo leikinn. Þetta voru erfiðir
tímar og árið 2009 var ég orðinn
ansi þunglyndur. Ég sat heima hjá
mér og grét. Ég sagði við pabba
minn að ég gæti þetta ekki lengur.
Hann tók þá utan um mig og sagð-
ist hafa trú á mér. Bað mig um að
gefast ekki upp.“
Prófaði í örvæntingu sinni
Ári síðar fylltist síðan mælirinn.
Þá beið hans stutt vippa og boltinn
lá illa. Í örvæntingu sinni ákvað
hann að slá kúluna með annarri
hendinni og viti menn. Hún stopp-
aði rétt við holuna.
„Viku síðar er ég að keppa í
Austurríki og að æfa mig með
góðum vini. Ég fór í vippkeppni
við hann, notaði aðra höndina og
vann. Þetta var að virka fyrir mig.
Þá sagði hann að þetta væri leik-
ur þar sem skorið skipti öllu. Ég
ætti ekki að pæla í því þótt ég væri
eins og kjáni að slá svona. Næstu
vikur spilaði ég besta golf sem ég
hef spilað.“
Í upphafi þessa árs var hann
kominn inn í áskorendamótaröð-
ina og nú er hann kominn alla leið
með nýja stílnum.
„Fólk horfir oft á mig og ég býst
við því að þetta líti hálfvitalega út.
Væri ég kominn í Evrópumótaröð-
ina ef ég væri enn að vippa með
báðum höndum? Ekki möguleiki.
Fólk má hlæja eins og það vill að
mér, en ég er enn að klípa mig því
ég trúi því ekki að ég sé kominn
inn á mótaröðina.“ henry@frettabladid.is
VIPPAR VILJANDI
MEÐ ANNARRI HENDI
Jason Palmer er líklega sérstakasti kylfi ngur heims. Hann er búinn að tryggja
sig inn á Evrópumótaröðina þó að hann sé eini atvinnukylfi ngurinn sem vippar
viljandi með annarri hendi. Honum er alveg sama hvernig þetta lítur út.
Í SANDINUM Palmer slær líka upp úr
sandinum með annarri og gerir það vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SILKISLAKUR Önnur höndin í vasanum og vippað inn að pinna með hinni. Ekkert mál fyrir Palmer. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Real Madrid tryggði
sér um helgina heimsmeistara-
titil félagsliða er liðið vann Suður-
Ameríkumeistara San Lorenzo,
2-0, í úrslitaleik í Marokkó. Sergio
Ramos og Gareth Bale skoruðu
mörk Real í leiknum.
Fyrr á árinu var Real búið að
vinna Meistaradeildina, spænska
Konungsbikarinn og Ofurbikar
Evrópu.
Viðureign liðanna var frekar
ójöfn og Real hefði hæglega getað
unnið enn stærri sigur. Þetta var
22. sigur liðsins í röð. - hbg
Real heimsmeistari
Ótrúlegu ári að ljúka hjá Real með fj órða titlinum.
SÆTT Ronaldo kyssir bikarinn góða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY