Fréttablaðið - 17.10.2015, Síða 4
Tölur vikunnar 12.10.2015 - 18.10.2015
4 Íslendingar
voru handteknir á
Spáni en þeir tengj-
ast stórtækri ræktun
á kannabis.
74.000
laxar
um það bil veiddust
á þessu gjöfula laxveiðisumri.
lögregluþjónum
þarf að bæta við liðið til að
lágmarksfjölda sé náð – þeir
eru 640 í dag.
230
milljónir
vill kirkjan fá frá ríkinu –
biskup vísar í samninga
um hærri framlög.
11 ára
fangelSiSdóm
fékk „burðardýr“ fyrir fíkniefna-
smygl í vikunni sem vakti spurn-
ingar um vegferð þjóðarinnar í
þessum málaflokki.25
%
h
æ
k
ku
n
hú
sn
æ
ði
sv
er
ðs
ti
l
ár
sin
s 2
01
7 e
r s
pá
Ísl
an
ds
ba
nk
a.
6.000
ríkisstarfsmenn
lögðu niður vinnu í
vikunni í enn einni
verkfallshrinunni á
árinu.
meira!
220
Samfélag Fjölskyldan komst í frétt-
irnar fyrir þremur vikum síðan því
börnin þrjú höfðu ekki enn fengið
skólavist þrátt fyrir að hafa verið
hér frá því í júní. Því máli lauk
með besta móti og hafa börnin nú
stundað skólana í Laugarneshverf-
inu síðustu tvær vikur. Þau eru öll
þrjú ánægð í skólanum og hafa
kynnst mörgum vinum. Það var því
mikið áfall að fá synjun frá Útlend-
ingastofnun í gær.
„Mig langar aldrei aftur til Alban-
íu. Mér líður svo vel hér og það er
svo gaman í skólanum,“ segir Laura
Telati, sem er í 10. bekk í Lauga-
lækjarskóla. „Mig langar að búa á
Íslandi. Ég er búin að eignast frá-
bæra vini.“
Það er þungt yfir fjölskyldunni
þegar blaðamaður hittir hana enda
nýkomin frá Útlendingastofnun og
hefur fimm úrskurði í höndunum.
Synjun fyrir hvern fjölskyldumeð-
lim.
Aleka Telati, móðirin, segir að
það hafi verið sagt frá byrjun að erf-
itt yrði að fá hæli. En síðustu daga
hefur vonin vaxið í brjósti hennar.
„Það hefur gengið svo vel og
við héldum að við gætum eignast
gott líf hér. Við viljum gjarnan
vinna hörðum höndum og sjá um
okkur sjálf. Við þurfum ekki endi-
lega hæli eða styrk frá ríkinu, bara
tækifæri til að búa okkur sjálf til líf
á landinu.“
Aleka hefur unnið sem aðstoðar-
maður í eldhúsi og Hasan Telati,
maðurinn hennar, er kokkur og
málari. Ástæða þess að þau flúðu frá
Albaníu síðastliðið vor eru árásir og
mismunun í landinu.
„Pabbi minn var foringi í komm-
únistaflokknum,“ segir Hasan. „Og
við erum útilokuð í samfélaginu. Ég
varð fyrir skotárás vegna deilna um
húsið okkar. Allt í einu voru komnir
pappírar um að annar maður, sem
er valdamikill maður í landinu, ætti
húsið. Og við vorum bara rekin í
burtu og hótað lífláti ef við myndum
fara með málið lengra.“
Aleka segist hafa fundið fyrir mis-
munun um leið og hún giftist Hasan.
„Fólk sér eftirnafnið okkar og neitar
okkur um þjónustu, húsnæði, skóla-
vist fyrir börnin og við förum aftast
í röðina á heilsugæslunni. Forsætis-
ráðherra Albaníu hefur meira að
segja hvatt til mismununar gagnvart
fólki tengdu kommúnistaflokknum
og lögreglan aðstoðar okkur ekki.
Það er engin leið að eiga eðlilegt líf
í Albaníu.“
Í synjun frá Útlendingastofnun
kemur fram að fjölskyldan sé ekki
álitin flóttafólk því hún sé ekki talin
í lífshættu í heimalandi sínu og eigi
ekki ofsóknir á hættu. Á þeim for-
sendum er þeim synjað um hæli.
„Við munum áfrýja en okkur er
sagt að það sé lítil von fyrir okkur.
Það gæti tekið tvo mánuði að fá
úrskurð og þá munum við þurfa að
fara strax úr landi. Við verðum send
aftur til Albaníu og auðvitað eru þau
að fara eftir lögum og reglum enda
ekki stríð í Albaníu og landið ekki
talið það hættulegt,“ segir Aleka.
„Það breytir því ekki að við eigum
ekki möguleika á eðlilegu lífi í land-
inu okkar.“
Fjölskyldan talar fallega um
Ísland og Íslendinga. Þau segja
nágrannana hafa gefið sér húsgögn
og verið til staðar fyrir þau síðustu
vikurnar. „Þegar við förum út í búð
tala allir við okkur og spyrja um
hagi okkar. Bjóða okkur velkomin
í hverfið og segjast ekki trúa öðru
en að við fáum að vera hér. Það var
tekið mjög vel á móti börnunum og
Petrit litli er meira að segja farinn
að æfa fótbolta og er í skýjunum
með það,“ segir Hasan. Aleka bætir
við að hverfið sé yndislegt og þeim
líði eins og þau séu heima hjá sér.
„Það er kalt á Íslandi en Íslendingar
eru svo sannarlega ekki með kalt
hjarta,“ segir hún.
Hasan er hræddur við að fara
aftur til Albaníu. „Ég hræddur um
framtíð barna minna. Við eigum í
höggi við mjög valdamikið fólk og
börnin mín eiga litla möguleika í
framtíðinni.“ erlabjorg@frettabladid.is
Fjölskyldan fékk synjun um hæli
Albönsk fjölskylda þarf að fara úr landi sem fyrst. Börnin eru nýbyrjuð í skóla í Laugarneshverfinu og eru alsæl. Foreldrarnir segjast
ekki þurfa fjárhagsaðstoð, bara leyfi til að vinna og búa á Íslandi. Fjölskyldufaðirinn segist hræddur við að snúa aftur til Albaníu.
Laura 15 ára, Hasan, Aleka, Janie 13 ára og Petrit 9 ára skoða bréf frá Útlendingastofnun þar sem þeim er synjað um hæli og
dvalarleyfi á Íslandi. Þau þurfa að fara úr landi eins fljótt og auðið er. FréttAbLAðið/GVA
Fólk sér eftirnafnið okkar og neitar okkur um
þjónustu, húsnæði, skólavist fyrir börnin og við
förum aftast í röðina á heilsugæslunni. Forsætisráðherra
albaníu hefur meira að segja hvatt til mismununar gagnvart
fólki tengdu kommúnistaflokknum og lögreglan aðstoðar
okkur ekki. Það er engin leið að eiga eðlilegt líf í albaníu.
aleka Telati
viðSkipTi Hjónin Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir og Guðmundur Þórðar-
son, sem eitt sinn áttu Skeljung, hafa
óskað eftir aukahluthafafundi í VÍS
þar sem kosið verði um nýja stjórn
félagsins.
SNV Holding og Hedda eignar-
haldsfélag ehf., sem eru bæði í eigu
hjónanna, hafa aukið við eignarhlut
sinn um 2,8 prósent á síðustu dögum
og eiga nú 5,05 prósent í VÍS. Eigendur
5 prósenta hlutar í VÍS geta kallað
eftir hluthafafundi í félaginu.
Guðmundur segir þau munu sækjast
eftir stjórnarmanni í stjórn VÍS á hlut-
hafafundinum. „Við vorum að bæta við
okkur hlut og höfum áhuga á að koma
að stjórn félagsins,“ segir hann.
Þá séu bara fjórir stjórnarmenn í
VÍS en Steinar Þór Guðgeirsson lög-
maður hætti í stjórninni í ágúst. „Það
er alveg eðlilegt að það séu fimm í
stjórn í svona stóru félagi,“ segir Guð-
mundur. Talsverð hreyfing hefur
verið á hlutabréfum á síðustu dögum.
Kvika, sem áður hét MP banki, hefur
aukið við eignarhlut sinn í VÍS um 4,4
prósent í þessum mánuði og á nú 6,2
prósent í félaginu.
Auk þess kom fram í flöggunartil-
kynningu til Kauphallar Íslands að
Arion banki hefði selt 1,5 prósenta
hlut í VÍS og ætti nú undir 5 prósenta
hlut í félaginu.
Yfirleitt er kosið um stjórn félaga á
aðalfundi en síðasti aðalfundur VÍS
fór fram þann 12. mars. Þá urðu breyt-
ingar á stjórn VÍS í kjölfar þess að
Hallbjörn Karlsson fjárfestir gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi stjórnar-
formennsku í félaginu. Maríanna
Jónasdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
skattamála í fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu, dró einnig framboð sitt
til stjórnarsetu til baka. – ih
Vilja fá fulltrúa sinn í stjórn VÍS
Sigrún ragna Ólafsdóttir hringdi VÍS inn í Kauphöllina árið 2013. Mikil hreyfing
hefur verið á hlutabréfum í félaginu að undanförnu. FréttAbLAðið/VALLi
1 7 . o k T ó b e r 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð