Fréttablaðið - 17.10.2015, Side 12
VW Golf GTD
A7 2.0
4.950.0002014
12
Skoda Octavia III
1.4 G-TEC
VW Caravelle
2.0 TDI 4Motion
MM Pajero
Instyle 3.8
Renault Clio IV
1500 Dynamic
3.390.000
5.490.000
3.150.000
2.550.000
2015
2013
2007
2014
4
97
57
75
VW Up
1,0 Take up
1.450.0002012
36
Skoda Citigo
Active
Skoda Octavia
Terno 1.9 TDI
MM Outlander
Intense 2.0 4x4
Ford Ka
Trend plus
1.520.000
1.390.000
4.750.000
1.490.000
2014
2008
2014
2015
22
155
6
5
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
Haustlægð með
krappri beygju
Hlýtt inni*
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30
*Nýr, hlýr sýningasalur á Kletthálsinum
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
reykjAvíkUrborG Endurskoða á deili-
skipulag Úlfarsárdals til að samræma
það forsendum aðalskipulags Reykja-
víkur um fjölgun íbúða og uppbygg-
ingu og stækkun Úlfarsárdalshverfis.
Borgarráð samþykkti tillögu þessa
efnis á fimmtudag.
Tillagan var breytingartillaga meiri-
hlutans við tillögu borgarfulltrúa
Framsóknar og flugvallarvina, sem
sögðu jákvætt að meirihlutinn væri í
raun að samþykkja þeirra tillögu. Með
því væri verið að sýna því skilning að í
Reykjavík vantaði litlar, ódýrar íbúðir
fyrir ákveðna hópa, til dæmis ungt
fólk sem ætti lítið eða ekkert eigið fé,
kæmist ekki í gegnum greiðslumat
og leigði langt umfram greiðslugetu.
Einnig fyrir eldra fólk sem hefði margt
misst húsnæði sitt.
„Þetta eru hópar sem eru algerlega
hornreka í húsnæðisstefnu borgar-
innar og biðlund þeirra eftir ódýru
húsnæði í miðborginni, sem fyllist
óðum af ferðamannaíbúðum og
hótel rýmum, er komin að þolmörk-
um,“ bókuðu fulltrúar Framsóknar og
flugvallarvina.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins studdu breytinguna og
sögðust ítrekað hafa bent á þörfina
fyrir stærra Úlfarsárdalshverfi.
„Núverandi íbúar hverfisins gerðu
ráð fyrir stærra hverfi þegar þeir fjár-
festu í húsnæði. Stærra hverfi styður
við öflugra íþróttafélag, meiri mögu-
leika á allri þjónustu og það kemur
til móts við mikla þörf fyrir ódýrara
íbúðarhúsnæði í borginni. Stækkun
hverfisins er því mikilvægur þáttur
í því að gera ungu fólki auðveldara
fyrir að koma sér þaki yfir höfuðið,“
bókuðu sjálfstæðismenn sem fyrr
á borgarráðsfundinum höfðu gert
aðstæður Knattspyrnufélagsins Fram
að umræðuefni.
„Sjónarmið Fram vegna flutnings
félagsins og uppbyggingar á nýju
félagssvæði þess eru réttmæt,“ bók-
uðu sjálfstæðismenn sem gagnrýndu
meirihlutann fyrir að bregðast ekki
nógu hratt við bréfi Fram um upp-
byggingu íþróttaaðstöðu í Grafarholti-
Úlfarsárdal.
„Borgarstjórn ber að standa við
þau fyrirheit um íbúafjölda, sem
gefin voru þegar framkvæmdir hófust
við íþróttasvæði Fram í Grafarholti-
Úlfarsárdal árið 2008. Félagið hefur
ásamt íbúum þessara hverfa sýnt
borginni ríkulegan samstarfsvilja og
biðlund vegna seinkunar, sem varð á
uppbyggingu vegna efnahagsáfalla í
þjóðfélaginu á sínum tíma,“ bókuðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokks.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna svör-
uðu því til að ljóst væri að upphaflegar
áætlanir um uppbyggingu í Úlfarsár-
dal myndu ekki koma til framkvæmda
fyrir 2030 þar sem skipulagsáætlanir
byggðu á markmiðum um sjálfbæra
þróun og hagkvæma uppbyggingu
borgarinnar.
„Í öllum viðræðum við forsvars-
menn íþróttafélagsins Fram hefur
þessu verið haldið til haga. Ljóst er
að ekki er vilji fyrir því að breyta
forsendum aðalskipulags til þess
að koma til móts við óskir forsvars-
manna Fram um íbúafjölda í Úlfars-
árdal, enda stendur stærð hverfisins
miðað við núverandi áætlanir fylli-
lega undir því að geta haldið uppi öfl-
ugu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir
börn og ungmenni,“ bókuðu fulltrúar
Samfylkingar, Besta flokksins, VG og
Pírata. gar@frettabladid.is
Gera ráð fyrir fleiri
íbúðum í skipulagi
Borgarráð samþykkti samhljóma að fjölga íbúðum í Úlfarsárdal. Framsóknar-
menn og flugvallarvinir segja þetta jákvætt enda hafi þeir átt tillöguna. Sjálf-
stæðismenn gagnrýna að loforð við Knattspyrnufélagið Fram séu svikin.
Dýraverndarsinnar hópuðust saman fyrir utan japanska sendiráðið í Lundúnum, höfuðborg Bretlands, og
mótmæltu árlegum höfrungaveiðum Japana í gær. Árlega halda Japanar til veiða og landa höfrungum og
hvölum í japanska bænum Taiji. Fréttablaðið/EPa
Mótmæla höfrungavertíð
Sjónarmið Fram
vegna flutnings-
félagsins og uppbyggingar á
nýju félagssvæði þess eru
réttmæt.
Borgaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks