Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 12

Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 12
VW Golf GTD A7 2.0 4.950.0002014 12 Skoda Octavia III 1.4 G-TEC VW Caravelle 2.0 TDI 4Motion MM Pajero Instyle 3.8 Renault Clio IV 1500 Dynamic 3.390.000 5.490.000 3.150.000 2.550.000 2015 2013 2007 2014 4 97 57 75 VW Up 1,0 Take up 1.450.0002012 36 Skoda Citigo Active Skoda Octavia Terno 1.9 TDI MM Outlander Intense 2.0 4x4 Ford Ka Trend plus 1.520.000 1.390.000 4.750.000 1.490.000 2014 2008 2014 2015 22 155 6 5 Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040 Haustlægð með krappri beygju Hlýtt inni* Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll 30 *Nýr, hlýr sýningasalur á Kletthálsinum 1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð reykjAvíkUrborG Endurskoða á deili- skipulag Úlfarsárdals til að samræma það forsendum aðalskipulags Reykja- víkur um fjölgun íbúða og uppbygg- ingu og stækkun Úlfarsárdalshverfis. Borgarráð samþykkti tillögu þessa efnis á fimmtudag. Tillagan var breytingartillaga meiri- hlutans við tillögu borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina, sem sögðu jákvætt að meirihlutinn væri í raun að samþykkja þeirra tillögu. Með því væri verið að sýna því skilning að í Reykjavík vantaði litlar, ódýrar íbúðir fyrir ákveðna hópa, til dæmis ungt fólk sem ætti lítið eða ekkert eigið fé, kæmist ekki í gegnum greiðslumat og leigði langt umfram greiðslugetu. Einnig fyrir eldra fólk sem hefði margt misst húsnæði sitt. „Þetta eru hópar sem eru algerlega hornreka í húsnæðisstefnu borgar- innar og biðlund þeirra eftir ódýru húsnæði í miðborginni, sem fyllist óðum af ferðamannaíbúðum og hótel rýmum, er komin að þolmörk- um,“ bókuðu fulltrúar Framsóknar og flugvallarvina. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins studdu breytinguna og sögðust ítrekað hafa bent á þörfina fyrir stærra Úlfarsárdalshverfi. „Núverandi íbúar hverfisins gerðu ráð fyrir stærra hverfi þegar þeir fjár- festu í húsnæði. Stærra hverfi styður við öflugra íþróttafélag, meiri mögu- leika á allri þjónustu og það kemur til móts við mikla þörf fyrir ódýrara íbúðarhúsnæði í borginni. Stækkun hverfisins er því mikilvægur þáttur í því að gera ungu fólki auðveldara fyrir að koma sér þaki yfir höfuðið,“ bókuðu sjálfstæðismenn sem fyrr á borgarráðsfundinum höfðu gert aðstæður Knattspyrnufélagsins Fram að umræðuefni. „Sjónarmið Fram vegna flutnings félagsins og uppbyggingar á nýju félagssvæði þess eru réttmæt,“ bók- uðu sjálfstæðismenn sem gagnrýndu meirihlutann fyrir að bregðast ekki nógu hratt við bréfi Fram um upp- byggingu íþróttaaðstöðu í Grafarholti- Úlfarsárdal. „Borgarstjórn ber að standa við þau fyrirheit um íbúafjölda, sem gefin voru þegar framkvæmdir hófust við íþróttasvæði Fram í Grafarholti- Úlfarsárdal árið 2008. Félagið hefur ásamt íbúum þessara hverfa sýnt borginni ríkulegan samstarfsvilja og biðlund vegna seinkunar, sem varð á uppbyggingu vegna efnahagsáfalla í þjóðfélaginu á sínum tíma,“ bókuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks. Fulltrúar meirihlutaflokkanna svör- uðu því til að ljóst væri að upphaflegar áætlanir um uppbyggingu í Úlfarsár- dal myndu ekki koma til framkvæmda fyrir 2030 þar sem skipulagsáætlanir byggðu á markmiðum um sjálfbæra þróun og hagkvæma uppbyggingu borgarinnar. „Í öllum viðræðum við forsvars- menn íþróttafélagsins Fram hefur þessu verið haldið til haga. Ljóst er að ekki er vilji fyrir því að breyta forsendum aðalskipulags til þess að koma til móts við óskir forsvars- manna Fram um íbúafjölda í Úlfars- árdal, enda stendur stærð hverfisins miðað við núverandi áætlanir fylli- lega undir því að geta haldið uppi öfl- ugu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni,“ bókuðu fulltrúar Samfylkingar, Besta flokksins, VG og Pírata. gar@frettabladid.is Gera ráð fyrir fleiri íbúðum í skipulagi Borgarráð samþykkti samhljóma að fjölga íbúðum í Úlfarsárdal. Framsóknar- menn og flugvallarvinir segja þetta jákvætt enda hafi þeir átt tillöguna. Sjálf- stæðismenn gagnrýna að loforð við Knattspyrnufélagið Fram séu svikin. Dýraverndarsinnar hópuðust saman fyrir utan japanska sendiráðið í Lundúnum, höfuðborg Bretlands, og mótmæltu árlegum höfrungaveiðum Japana í gær. Árlega halda Japanar til veiða og landa höfrungum og hvölum í japanska bænum Taiji. Fréttablaðið/EPa Mótmæla höfrungavertíð Sjónarmið Fram vegna flutnings- félagsins og uppbyggingar á nýju félagssvæði þess eru réttmæt. Borgaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.