Fréttablaðið - 17.10.2015, Qupperneq 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Það hriktir í stoðum vinasambands Íslands og Bandaríkjanna. Í síðustu viku sendi Barack Obama okkur Íslendingum diplómatískan löðrung yfir Atl-
antshafið. Nei, ég er ekki að tala um hótanir um refsiað-
gerðir vegna hvalveiða Íslendinga. Ég er að tala um Leif
Eiríksson. Barack Obama eignaði Leif heppna – okkar
Leif – Norðmönnum! (Er einhver búinn að láta Sigmund
Davíð vita?) Orð sín um Leif lét Obama falla á degi Leifs
Eiríkssonar sem fagnað er 9. október í Bandaríkjunum
ár hvert. Fréttum af deginum fylgdu þær skýringar að
dagurinn væri hálfgerð hátíðarlufsa, dagur sem fáir vissu
af og flestum stæði á sama um. Aðeins fjórum dögum
síðar, þann 12. október, héldu Bandaríkjamenn upp á
annan hátíðisdag, alvöru tyllidag með skrúðgöngum,
blöðrum og fríi í vinnunni: Dag Kristófers Kólumbusar.
Á Kólumbusardegi er fundi Ameríku árið 1492 fagnað.
Dagurinn var gerður að opinberum frídegi árið 1937. Á
þeim tíma voru siglingar norrænna manna til Ameríku
að fornu einungis sögusagnir sem engar haldbærar
sannanir fundust fyrir. Það má því fyrirgefa Bandaríkja-
mönnum að hafa veitt Kólumbusi titilinn „gaurinn sem
fann Ameríku“. En nú vitum við betur.
Hvað var þetta Vínland?
Árið 1926 ákvað ungur Norðmaður, Helge Ingstad, að
nafni, að selja lögfræðiskrifstofuna sína, leggjast í ferða-
lög og skrifa bækur um það sem bar fyrir augu. Einn dag-
inn fékk Helge aðdáendabréf frá lesanda. Fyrsta skrefið
var stigið. Senn yrði ein mesta ráðgáta þjóðveldisaldar
leyst. Lesandinn hét Anne Stine Moe og þau Helge tóku
að skiptast á bréfum. Þótt Anne Stine væri tuttugu árum
yngri en Helge urðu þau skotin hvort í öðru. Anne Stine
var fornleifafræðingur og þegar þau giftu sig árið 1941
urðu þau ekki aðeins hjón heldur líka samstarfsfélagar.
Helge hafði lengi haft áhuga á Íslendingasögunum.
Eiríks saga rauða var í sérstöku uppáhaldi, einkum
frásögnin af Leifi, syni Eiríks, sem fann land vestan við
Grænland sem hann kallaði Vínland. Helge Ingstad fékk
Vínland á heilann. Gat verið að Vínland væri Norður-
Ameríka? Margir létu sig dreyma um að sú væri raunin;
að það sem stóð í Eiríks sögu rauða væri satt. En enginn
gat sýnt fram á það.
Dularfulla kortið
Árið 1957 vöknuðu vonir um að sönnunin væri fundin.
Heimsbyggðin stóð á öndinni. Ástæðan var landakort.
Kortið var dularfullt. Það var teiknað á skinn og var sagt
vera frá árinu 1440. Kortið fannst í Sviss en enginn vissi
hvar það hafði verið niðurkomið öll árhundruðin áður
en það fannst. Kortið var kallað Vínlandskortið. Í nafn-
giftinni fólst ástæða þess að kortið var merkilegt: Á því
mátti sjá Ameríku – en á kortinu var hún kölluð Vínland.
Ef kortið var í alvörunni frá árinu 1440 þýddi það aðeins
eitt: Evrópubúar vissu af Ameríku mörgum áratugum
áður en Kólumbus átti að hafa fundið hana. En kortið
hafði ekki fyrr verið afhjúpað en fræðimenn fóru að ríf-
ast um hvort það væri ósvikið. Rannsóknir voru gerðar á
blekinu sem kortið var teiknað með og þóttu þær benda
til þess að það væri ekki frá 1440 heldur miklu yngra.
Draumurinn um að hægt væri að sanna að Leifur heppni
hefði fundið Ameríku var við það að verða að engu.
En þá komu Helge og Anne Stine til bjargar.
Helge var sannfærður um að Eiríks saga rauða væri
sönn. Hann ferðaðist um strendur Nýfundnalands, Nova
Scotia og Quebec fótgangandi, á bátum og með þyrlum
í leit að sönnunargögnum. Árið 1960 benti hópur sjó-
manna þeim Anne Stine á grasi vaxnar rústir á stað sem
kallaðist L’Anse aux Meadows á norðurodda Nýfundna-
lands. Anne Stine hafði umsjón með að grafa upp forn-
minjarnar. Tóftirnar voru íslenskar í útliti. Kólumbus var
ekki fyrstur Evrópumanna til að finna Ameríku.
Afturganga eða Sigmundur Davíð
Á degi Kólumbusar síðastliðinn mánudag brá íbúum
Detroit í Bandaríkjunum í brún er þeir gengu fram hjá ráð-
húsi borgarinnar. Í höfði styttu af Kólumbusi var öxi. Ósagt
skal látið hvort þar hafi verið á ferð afturganga Leifs Eiríks-
sonar að krefjast vegtyllu sinnar – já, eða Sigmundur Davíð.
Með öxi í höfðinu
AÐVENTUFERÐ TIL KOBLENZ
10. TIL 13. DESEMBER 2015
Í desember eru flestar þýskar borgir baðaðar
jólaljósum og einstök jólastemming svífur
yfir vötnum. Í aðventuferðum Orlofsnefndar
húsmæðra í Reykjavík er hægt að upplifa
jólamarkaðsstemningu í Koblenz og Rüdesheim.
Vegna fjölda umsókna, í aðventuferðir Orlofs-
nefndar húsmæðra í Reykjavík, í ár var ákveðið
að bæta við þriðju aðventuferðinni. Ferðin verður
farin þann 10. til 13. desember 2015 til Koblenz
eins og kemur fram hér að ofan.
Bókun er hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar í síma 511-1515
Einnig er hægt að bóka hjá formanni orlofsnefndarinnar Huldu Ólafsdóttur
sími: 896-0677 eða gjaldkera Hönnu Dóru Þórisdóttur sími: 867-8697
Innifalið: Flug, gisting í tvíbýli, morgun-og kvöldverður, allur akstur og
íslensk fararstjórn.
AÐVENTUFERÐ
TIL KOBLENZ
10. - 13.
DESEMBER
2015
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Síminn var formlega skráður á markað í liðinni viku eftir hlutafjárútboð. Nú síðast fór fram almennt útboð þar sem hlutir í félaginu fóru á genginu 3,3. Áður höfðu vildarviðskiptavinir Arion banka fengið að kaupa á genginu 2,8. Í ágúst keypti svo hópur kringum stjórnendur
félagsins um fimm prósenta hlut á genginu 2,5.
Ljóst er að þeir hópar sem þjófstörtuðu hafa fengið í
sinn hlut mikinn pappírshagnað. Þegar þetta er skrifað
er gengi Símans um 3,5 krónur á hlut. Samkvæmt því
hefur ágústhópurinn fengið um fjörutíu prósenta
ávöxtun á fjárfestingu sína og hefur virði hlutarins í
krónum aukist um rúmar 500 milljónir.
Af umræðu á Alþingi og í samfélaginu að dæma mætti
halda að óafsakanlegt sé að hleypa hópi fólks í hlut-
hafahópinn á afslætti. Það geta hins vegar verið ríkar
ástæður til að lokka tiltekna fjárfesta að borðinu. Í
tilviki Símans hefði átt að vera nokkuð óumdeilt að fjár-
festing stórs alþjóðlegs fjarskiptafyrirtækis eins og BT
í Bretlandi eða skandinavíska risans Teliasonera hefði
styrkt bæði ásýnd og innviði Símans og veitt aðgang að
verðmætri sérþekkingu.
Þetta voru einmitt rök Halldórs Bjarkars Lúðvígsson-
ar hjá fyrirtækjaráðgjöf Arion. Hann að sagði það myndi
styrkja félagið og útboðið að fá „alþjóðlega fjárfesta með
reynslu af fjárfestingum og fjarskiptum í fjölda landa“.
Við skoðun á hópnum sem keypti fimm prósentin
kemur í ljós að þar kennir ýmissa grasa. Þar er meðal
annars hollenski fjarskiptasérfræðingurinn Bertrand
Kan sem hefur að baki reynslu í fjarskiptabransanum,
en önnur erlend nöfn í hópnum virðast koma úr bæði
fjarskipta- og bankageiranum.
Hitt er óljósara hvers vegna nöfn Árna Haukssonar og
viðskiptafélaga hans Hallbjörns Karlssonar og Sigur-
björns Þorkelssonar blandast í málið. Hingað til hafa
þeir fremur látið til sín taka í smásölu eða bankastarf-
semi en fjarskiptarekstri. Hlutur þessara þriggja vegur
þyngst í hópi þeirra sem fengu að kaupa í ágúst, og gerir
lítið úr þeirri áherslu sem lögð var á erlendan vinkil í
hópnum.
Við einkavæðingu bankanna í upphafi aldarinnar
var sömuleiðis mikil áhersla lögð á aðkomu erlendra
fjárfesta. Sú varð þó ekki raunin þótt mikið væri gert úr
aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhauser að kaupum
á Búnaðarbankanum. Frá þeim banka heyrðist síðan
hvorki hósti né stuna.
Ekki nema von að sporin hræði.
Fólk getur haft skoðanir á því hvort þetta mannval
réttlæti afsláttarkjör af Símahlutnum. Eitt er víst að
stjórn Símans samþykkti þennan ráðahag, þar á meðal
fulltrúar sem þar sitja í skjóli lífeyrissjóðanna.
Vonandi lá þar að baki nákvæm skoðun á samsetn-
ingu hluthafahópsins og málefnalegt mat á því sem þeir
höfðu fram að færa.
Íslenskur hlutabréfamarkaður þarf á slíkum vinnu-
brögðum að halda.
Erlend
sérþekking?
Fólk getur
haft skoðanir
á því hvort
þetta mann
val réttlæti
afsláttarkjör
af Símahlutn
um. Eitt er
víst að stjórn
Símans
samþykkti
þennan
ráðahag,
þar á meðal
fulltrúar, sem
þar sitja í
skjóli lífeyris
sjóðanna.
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ðSKOÐUN