Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 62
Hjúkrunarheimilið Skógarbær - Eldhús
Matartækni/starfsmann vantar í hluta starf í eldhús/matsal
Skógarbæjar. Um er að ræða vaktavinnu. Störf í eldhúsi og matsal
eru fjölbreytt og krefjast sjálfstæðra vinnubragða.Við leitum eftir
einstaklingi sem hefur reynslu af bakstri og eldamennsku, talar
íslensku, er heilsuhraustur, jákvæður, með góða framkomu og
samskiptahæfileika.
Upplýsingar um Hjúkrunarheimilið Skógarbæ
heimsíða: skogar.is.
Ef nánari upplýsinga er óskað
þá sendið tölvupóst til olga@skogar.is
Umsóknir sendist með tölvupósti
til olga@skogar.is fyrir 26.okt.2015
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Skógarbær er hjúkrunarheimili fyrir eldri og yngri
einstaklinga sem þarfnast hjúkrunar allan sólarhringinn.
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki
→ Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir
→ Ófeimin/n að tala við fólk í gegnum síma
→ Reynsla af svipuðum störfum er kostur
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.
Staða skólastjóra við Klettaskóla
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Klettaskóla.
Klettaskóli við Suðurhlíð er sérskóli á grunnskólastigi fyrir nemendur með þroskahömlun. Í skólanum eru nú um 120 nemendur í
1.-10. bekk af öllu höfuðborgarsvæðinu og verið er að byggja við húsnæði skólans til að bæta aðstöðu nemenda. Klettaskóli er
Grænfánaskóli og einkunnarorð hans eru Menntun fyrir lífið. Áhersla er m.a. lögð á fullgilda þátttöku allra nemenda í skólasam-
félaginu, einstaklingsmiðað nám, námsleiðir sem taka mið af styrkleikum nemenda, markvissa styrkingu sjálfsmyndar, félags- og
samskiptafærni, list- og verkgreinar og hreyfi- og skynnám. Við skólann starfar öflugur hópur starfsmanna og mikil áhersla er
lögð á þverfaglegt samstarf og teymisvinnu. Þátttökubekkur frá Klettaskóla er starfræktur í Árbæjarskóla og starfsfólk skólans
veitir öðrum grunnskólum á landinu ráðgjöf vegna nemenda með þroskahömlun. Náið samstarf er við foreldra og öflugt for-
eldrafélag er starfandi við skólann. Gott samstarf er einnig við frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðina Öskju.
Gildi Klettaskóla eru virðing, samvinna, árangur.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og áhuga á að leiða
metnaðarfullt skólastarf fyrir nemendur með fjölbreyttar námsþarfir.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutil-
högun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Viðbótarmenntun í sérkennslu og/eða reynsla af sérkennslu.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2016. Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Sölufulltrúar
Við leitum eftir hressu, ungu og umfram allt
öflugu sölufólki í góð verkefni.
Í boði eru krefjandi og áhugaverð verkefni bæði í
prentuðum og rafrænum miðlum.
Góð vinnuaðstaða með skemmtilegu fólki og árangurs-
tengdar greiðslur í byrjun fyrir dugmikla einstaklinga.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
umsokn@sagaz.is fyrir 24. október nk.
Lækjarskóli óskar eftir að ráða
grunnskólakennara og stuðningsfulltrúa
í móttökudeild fyrir erlenda nemendur
Lækjarskóli er almennur, heildstæður, grunnskóli með 530
nemendur. Við skólann er m.a. starfrækt móttökudeild sem
sérhæfir sig í móttöku og kennslu erlendra nemenda.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Arna B. Arnardóttir
aðstoðarskólastjóri í síma 6645865 eða Kristrún Sigurjóns-
dóttir deildarstjóri móttökudeildar í síma 8919195.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um
störfin á vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem
konur hvattir til að sækja um starfið.
Staða skólastjóra við Foldaskóla
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Foldaskóla.
Foldaskóli er elsti hverfisskólinn í Grafarvogi, stofnaður árið 1985. Í skólanum eru um 480 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er
safnskóli unglingadeilda í Hamra-, Húsa- og Foldahverfi og er um helmingur nemenda á því skólastigi. Við skólann er starfrækt
einhverfudeild og sérstök ráðgjafardeild (fardeild) vegna nemenda með atferlis- og geðraskanir sem þjónar grunnskólunum í
Grafarvogi og á Kjalarnesi. Skólinn er Grænfánaskóli og tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi skóli. Einkunnarorð skólans eru
siðprýði, menntun og sálarheill. Meðal áhersluþátta skólans er nýsköpunarkennsla í 4.-6. bekk og enskukennsla frá 2. bekk, auk
þess sem skólinn vinnur í anda uppeldis til ábyrgðar og Olweusaráætlunar gegn einelti. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu
starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og mikið samstarf er við félagsmiðstöðina
Fjörgyn og nærsamfélagið.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2016. Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið
á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.