Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 70
| ATVINNA | 17. október 2015 LAUGARDAGUR22
Sölumaður - Löggiltur fasteignasali
Góðmenn fasteignasala óskar eftir löggiltum
fasteignasala til sölustarfa.
Fyrirtækið er traust og framsækið skipað frábæru
starfsfólki með áratuga reynslu.
Tekjumöguleikar eru góðir fyrir duglegan starfskraft.
Reynslu ekki krafist.
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn á box@frett.is
merkt „Fasteignasali“
Flóaskóli leitar að kennara með góða færni í lestarkennslu
til að vinna með nemendum með námsörðugleika.
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Starf í Flóaskóla grundvallast af því lífsviðhorfi að mæta
hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur svo hann fái
tækifæri til þess að vaxa og dafna og vera besta útgáfan
af sjálfum sér. Skólinn starfar eftir uppbyggingarstefnunni
og Olweus áætlun gegn einelti. Í skólanum er góður starf-
sandi og starfsfólk vinnur markvisst að skólaþróun og því er
Flóaskóli góður staður fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að
vinna metnaðarfullt starf með nemendum.
Í Flóaskóla eru 93 nemendur í 1.-10. bekk. Flóaskóli er
staðsettur á Villingaholti í Flóahreppi, sem er í 10 - 15 mín.
akstursfjarlægð frá Selfossi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfisbréf til að starfa sem grunnskólakennari skilyrði
• Reynsla af starfi með nemendum með námsörðugleika
æskileg
• Góð færni í lestarkennslu skilyrði
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Jákvæðni og áhugi
• Þekking á Uppbyggingastefnunni og Olweus kostur og
vilji til að vinna samkvæmt þeirri hugmyndafræði skilyrði
• Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands
vegna Félags grunnskólakennara.
Starfið er laust frá og með 1. nóvember en hægt er að
semja um að hefja störf síðar ef þörf krefur.
Ráðningarform.: Ótímabundin ráðning.
Umsóknarfrestur: Til 30. október 2015.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri í síma 859-3460.
Umsóknir skal senda á netfangið annagreta@floaskoli.is
Blue Water Shipping er alþjóðleg flutningsmiðlun með höfuðstöðvar í Esbjerg í
Danmörku. Blue Water Shipping opnaði skrifstofu sína í Reykjavík árið 2012.
Sölumaður
Umfang starfseminnar hefur aukist jafnt og þétt og því
auglýsum við eftir sölumanni til starfa
Starfið felur í sér:
» Ábyrgð á sölu
» Heimsóknir til viðskiptavina, eftirfylgni, gerð söluskýrsl-
na og önnur samskipti við viðskiptavini
» Vinnu við tilboðsgerð og samninga, og þátttöku í upp-
byggingu á sölu og þróun
Blue Water býður þér:
» Áhugavert og óformlegt starfsumhverfi þar sem þú hefur
mikil áhrif á daglega starfsemi.
» Fyrirtækjamenningu sem við erum stolt af.
» Að vera hluti af kraftmiklu starfsliði með mikla reynslu
» Kost á að skapa og virkja þitt framtak innan fyrirtækisins
Hæfniskröfur
» Reynsla af sölu- og markaðsstörfum
» Almenn góð þekking á flutningsmiðlun
» Geta til að vinna í alþjóðlegu umhverfi
» Dugnaður og áhugi, hæfni og öryggi
» Geta talað, lesið og skrifað á íslensku og ensku
» Góð tölvukunnátta og bílpróf
Umsóknir óskast sendar ásamt starfsferilsskrá merktar:
Blue Water Shipping EHF
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Berist til: Magnusar Joensen
Eða á tölvupóstfangið mag@bws.dk
merktar: Sölumaður
Frekari upplýsingar um starfið veitir
framkvæmdastjóri, Magnus Joensen í síma
510 4489
Umsóknarfrestur er til 26/10-2015
Blue Water Shipping A/S | www.bws.dk
Frekari upplýsingar um fyrirtækið og starfið má nál-
gast á heimasíðu okkar www.bws.dk og þar er einnig
hægt að senda inn umsókn um starfið.
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.