Fréttablaðið - 17.10.2015, Qupperneq 72
| ATVINNA | 17. október 2015 LAUGARDAGUR24
Auglýsing um skipulagsmál í
Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 21. júlí 2015 breytingu á aðalskipulagi sveitar-
félagsins 2012-2030.
Aðalskipulagsbreyting Hof Öræfum
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 felur í sér að;
Stækka a.vinnusvæði, um 15 ha. svæði fyrir verslun og
þjónustu.
Gert er ráð fyrir að afmarka íbúðarsvæði norðan Hringvegar
ofan við félagsheimilið Hofgarð, um 7 ha. að stærð.
Breytingartillagan er ekki matsskyld og því ekki háð lögum
um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Hins vegar verður
gerð almenn grein fyrir helstu umhverfisáhrifum breytingar-
tillögu á umhverfið í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Umrætt svæði er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í
aðalskipulagi sveitarfélagsins. Sveitarfélagið óskaði eftir því
að landbúnaðarráðherra staðfesti breytingu á landnotkun
að Hofi. Staðfesting frá ráðherra barst sveitarfélaginu
14. október þar sem hann heimilar breytingu á landnotkun á
tveimur landspildum A og B að Hofi Öræfum.
Deiliskipulag Hof Öræfum
Bæjarstjórn samþykkti tillögu að nýju deiliskipulagi á fundi
sínum 3. september 2015.
Markmið með gerð deiliskipulagsins eru fyrirhugaðar
framkvæmdir á uppbyggingu mannvirkja í tengslum við
landbúnaðarstarfsemi og auka ferðaþjónustu á jörðinni.
Skipulagssvæðið skiptist í tvö meginsvæði A og B þar sem
byggja á upp á áður óbyggðu landi. Að auki er fyrirhuguð
stækkun og endurnýjun íbúðar og útihúsa við Hof.
Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða breytingu á
aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Aðalskipulagstillagan ásamt greinargerð verður til
kynningar hjá Skipulagstofnun.
Aðal-og deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verða
einnig til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnar-
braut 27, 270 Höfn frá 16. október til 28. nóvember 2015 og á
heimasíðu sveitarfélagsins wwww/hornafjordur.is/
stjórnsýsla – skipulag í kynningu.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðal- og deili-
skipulagstillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. nóvember
2015 og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar
Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið
skipulag@hornafjordur.is.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Skipulags- og byggingafulltrúi
Útboð – Matur
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í framleiðslu og
framreiðslu á mat fyrir mötuneyti eldri borgara við
Hjallabraut og Sólvangsveg sem og heimsendan mat.
Samningstími er fjögur ár auk ákvæða um framlengingu.
Útboðsgögn er hægt að nálgast endurgjaldslaust á
heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar, www.hafnarfjordur.is.
Tilboðum skal skila eigi síðar en kl. 11:00 þann
10. nóvember 2015, í Þjónustuver Hafnarfjarðar, við
Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði.
Spennandi tækifæri í Kringlunni
Rótgróin og glæsileg verslun
á besta stað í Kringlunni til sölu
Einfaldur og góður rekstur. Góð viðskiptasambönd,
þekkt merki og eigin innflutningur að mestu en gott rými
til að bæta nýjum merkjum eða vörulínu við.
Verslunin sérhæfir sig í sölu á töskum, fylgihlutum og
kvenfatnaði en einnig tilvalið fyrir þá sem vilja koma á
framfæri öðrum vörum eða nýjum hugmyndum.
Jólin eru handan við hornið og því
spennandi og góðir tímar framundan
Þægileg og auðveld kaup
Áhugasamir geta óskað eftir frekari upplýsingum með
því að senda tölvupóst á; kringlanverslun@gmail.com
Útboð SR2-01
Eskifjörður
132 kV jarðstrengir
Jarðvinna og lagning
Landsnet óskar eftir tilboðum í verk sem lýst er í útboðsgögnum
SR2-01.
Verkið felur í sér jarðvinnu og lagningu 132 kV háspennustrengja,
sem samanstanda af þremur einleiðurum. Annars vegar um að
ræða um 1200 m leið frá tengivirki á Eskifirði að endastæðu
sunnan Eskifjarðar og hins vegar um 270 m leið frá sama tengivirki
að endastæðu norðan Eskifjarðar.
Helstu magntölur eru:
Aðkomuleiðir 900 m
Gröftur, söndun og yfirfylling 1.470 m
Losun klappar 150 m
Útdráttur strengs og ljósleiðara í skurð og rör 1.470 m
Ídráttarrör 510 m
Frágangur yfirborðs 1.470 m
Strengleiðin þverar m.a. lagnir, skurði og vegi, ásamt Eskifjarðará.
Útlögn og frágangi strengja skal lokið 20. desember 2015 og
yfirborðsfrágangi 31. maí 2016.
Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets,
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með miðvikudeginum 14. október
2015.
Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
fyrir kl. 10:00 föstudaginn 30. október 2015 þar sem þau verða
opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboð GRU-02
Tengivirki Grundarfirði,
jarðvinna
Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna tengivirkis í
Grundarfirði.
Verkið felur í sér gerð aðkomuvegs að fyrirhuguðu
tengivirki auk jarðvinnu undir steyptar undirstöður og
bílaplan. Tengivirkið verður staðsett á Lambakróarholti við
Grundarfjörð.
Helstu verkliðir eru:
• Gröftur fyrir aðkomuvegi, húsgrunni og bílaplani
• Losun á föstum jarðlögum í húsgrunni, bílaplani
og aðkomuvegi
• Vegfylling auk fyllingar undir sökkla og bílaplan
• Yfirborðsfrágangur aðkomuvegs
Verkinu skal að fullu lokið 29. mars 2016.
Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Lands-
nets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík, frá og með mánudeginum
19. október 2015.
Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112
Reykjavík, fyrir kl. 10:30 föstudaginn 30. október 2015, þar
sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Deildarstjóri fræðslu-
frístunda og menningarmála.
Fjallabyggð óskar eftir að ráða drífandi
og metnaðarfullan einstakling til starfa.
Megin viðfangsefnið er fræðslu- frístunda- og menningarmál,
stefnumörkun í kynningar- og markaðsmálum, upplýsinga- og
almannatengslum sem og á sviði ferða- og atvinnumála.
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun á sviði menntamála og
stjórnsýslu. Reynsla og góð kunnátta í stjórnsýslulegri meðferð mála
er æskileg. Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir þekkingu og
hæfni í stefnumótun og þróun, fjármálum og áætlanagerð, stjórnun
starfsmanna og umsjón með verkefnum. Sjálfstæð vinnubrögð,
frumkvæði, leiðtogahæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum eru
nauðsynlegir kostir. Næsti yfirmaður deildarstjóra er bæjarstjóri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitar-
félaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknir skulu hafa borist bæjarskrifstofum Fjallabyggðar að
Gránugötu 24, Siglufirði 580, eigi síðar en mánudaginn 2. nóvember
2015.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Þór Ólafsson, deildarstjóri
stjórnsýslu- og fjármála, netfang olafur@fjallabyggd.is sími 464 -9100
eða Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, netfang gunnarb@fjallabyggd.is
Húsvörður
Húsfélagið að Boðagranda 7 í Reykjavík vill ráða húsvörð,
í húsinu eru 60 íbúðir. Verkefni húsvarðar eru:
• Þrif á sameign
• Almenn umhirða húss, lóða og bílastæða.
• Auk almenns viðhalds og endurbóta.
Húsvörður þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og skal hafa
auga fyrir því sem betur má fara. Gert er ráð fyrir að kalla megi
húsvörð til þegar nauðsyn krefur utan vinnutíma. Hluti af kjörum
húsvarðar er afnot af húsvarðaríbúð. Lögð er áhersla að húsvörður
sé jákvæður að eðlisfari og jákvæður í samskiptum.
Starfshlutfall er 50%
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælum
berist til: Blokkir.is, Álfabakka 12, 109 Reykjavík
Umsóknafrestur er til og með 2. nóvember 2015
Leitum að frábærum starfsmanni til
útkeyrslu og sölustarfa.
Þarf að vera þægilegur í samskiptum og
samviskusamur. Þarf að geta byrjað fljótlega.
Vinsamlega sendið umsóknir á: core@core.is
Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogur | sími 898 8872 | www.motx.is
Vanur kranamaður
óskast sem fyrst
MótX óskar eftir því að ráða vanan kranamann til
starfa sem fyrst. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Hægt er að senda inn umsókn á
tölvupóstfangið motx@motx.is
eða hafa samband við Þröst
í síma 696-4644