Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 87
Mikil eftirspurn er eftir gjafa-
körfum Nóa Síríus fyrir hver jól.
Fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum fá þessar fallegu körf-
ur til gjafa til bæði starfsmanna
sinna og viðskiptavina ár eftir
ár. „Sömu fyrirtækin fá gjafa-
körfur hjá okkur fyrir hver jól og
svo bætast ný fyrirtæki í hópinn
á hverju ári. Við finnum fyrir því
að fólk er alltaf sátt við það sem
það fær frá okkur enda er vöru-
merkið partur af Íslandssögunni
þannig að það er alltaf gaman að
vera með Nóa Síríus uppi á borð-
um,“ segir Símon Gísli Símonar-
son, hjá fyrirtækjadeild Nóa Sír-
íusar.
Persónulegar gjafakörfur
Gjafakörfurnar eru af mismun-
andi stærðum og gerðum og
auðvelt er að gera þær persónu-
legar. „Fyrirtæki sem vilja gera
sérstaklega vel við starfsfólk sitt
hafa fengið körfur frá okkur og
sett gjafir með þeim, til dæmis
skartgripi eða gjafavöru. Svo er
sérmerkta konfektið okkar mikið
notað til að setja með í körfurn-
ar,“ útskýrir Símon en hjá Nóa
Síríusi er hægt að láta prenta
sérmerktar slífar utan um flesta
konfektkassana þeirra, sér-
merkja kassa og heilar öskjur.
Símon segir þetta vera skemmti-
lega og fágaða leið til að koma
skilaboðum áleiðis.
Hægt er að fá þrjár mismun-
andi hefðbundnar gjafakörfur
frá Nóa Síríusi; blandaða körfu
og tvær stærðir af konfektkörf-
um. „Í blönduðu körfunni okkar
er ýmislegt góðgæti, oftast má
þar finna fallegan konfektkassa,
vörur úr Síríuslínunni, Ópal,
Tópas, súkkulaðirúsínur, Nóa
kropp og vinsælustu nýjung-
arnar hverju sinni. Það má svo
alveg leika sér með innihaldið
í körfunum. Konfektkörfurnar
eru svo annars vegar eitt kíló og
hins vegar tvö kíló. Þessi bland-
aða hentar fyrir alla og konfekt-
körfurnar eru meira svona full-
orðins,“ segir Símon og brosir.
Íslenskt landslag á umbúðum
Það er nýjung hjá Nóa Síríusi að
nota svokallaðar Traditional Ice-
landic vörur í gjafakörfurnar.
Traditional Icelandic vörurnar
eru sérvaldar vörur frá Nóa Sírí-
usi sem fólk þekkir í fallegum um-
búðum, með myndum af
íslensku landslagi,
það er að segja rjómakúlur, súkk-
ulaðiperlur, lakkrísperlur, fjór-
ar bragðtegundir af rjómasúkk-
ulaði – hreint rjómasúkkulaði,
rjómasúkkulaði með hnetum
og rúsínum og rjómasúkkulaði
með toffí og íslensku sjávarsalti
og svo dökka súkkulaðið okkar
45%. Einnig eru past illur í boði í
þessari línu eða það sem Íslend-
ingar þekkja betur sem Tópas og
eru þær með einstaklega falleg-
um myndum til dæmis af lund-
anum okkar. „Það er mikið verið
að senda körfur til Íslendinga sem
eru búsettir erlendis og einnig er
verið að gefa þessar körfur til er-
lendra viðskiptavina. Það er því
gaman að blanda þessu inn í því
þetta eru fallegar vörur og á þeim
eru landslagsmyndir og upplýs-
ingar um hvar myndin er tekin.
Þær koma vel út í gjafakörfu og
svo henta þær líka vel fyrir þá sem
eru ekki mikið fyrir konfekt.“
Símon bætir við að það sé um
að gera fyrir viðskiptavini
að senda fyrirspurn-
ir um sérlausnir á
fyrirtækjadeild
á net fa ng ið
simon@noi.
is. „Okkur
finnst ein-
staklega
gaman að
taka þátt í
skemmtileg-
um sérverkefn-
um.“
Gómsæt gjöf sem gleður
Gjafakörfurnar frá Nóa Síríusi hafa lengi verið vinsælar fyrir jólin. Þær eru sniðug og hentug gjöf frá fyrirtækjum til starfsmanna
sem og viðskiptavina sinna. Gjafakörfurnar eru af nokkrum stærðum og gerðum og auðvelt að gera þær persónulegar.
Gjafakörfurnar frá Nóa Síríusi hafa verið vinsælar í gegnum tíðina.
Hægt er að fá þrjár mismunandi hefðbundnar gjafakörfur frá Nóa Síríusi; blandaða körfu og tvær stærðir af konfektkörfum. „Þessi blandaða hentar fyrir alla og konfektkörfurnar eru
meira svona fullorðins,“ segir Símon og brosir. MYND/GVA
7Kynning − auglýsing Fyrirtækjagjafir