Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 94

Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 94
V ið Björn Thoroddsen, listflugkappi og fyrr-verandi flugstjóri, mælum okkur mót í Geirfugli á Reykjavík-urflugvelli. „Geirfugl er bæði flugskóli og flugklúbbur,“ segir Björn en tekur fram að hann sé þar ekki meðlimur. „Þetta er svona okkar samkomustaður sem erum í einkaflugi,“ útskýrir hann. Þarna sitja nokkrir herramenn að spjalli í heimilislegu rými með sófum og kaffikrók, já, og meira að segja hljóð- færahorni, en við Björn tyllum okkur í rólegri sal þar inn af með kaffikrúsir í hönd. Ert þú bara að fara í eitthvert stjörnuviðtal? er kallað á eftir Birni. „Já, af því að ég er að gerast pírati,“ svarar hann kankvís. Björn á um 60 ár að baki í fluginu og þó að hann nálgist áttunda tuginn í aldri er hann enn að fljúga. „Ég fór í loftið síðast í gær. Ég held að fólk megi fljúga meðan læknarnir leyfa og fer í skoðun á sex mánaða fresti en hætti sem atvinnuflugmaður 65 ára, eins og reglur segja til um. Þá fór ég bara að leika mér í listflugi og smíð- aði flugvél á ellefu árum, Pitts Mons- ter heitir hún. Var reyndar búinn að smíða aðra áður og sú þriðja er í píp- unum. Hann hét Pitts sá sem hannaði þessar vélar og smíðaði upphaflega, það eru 70 ár síðan hann lauk við þá fyrstu. Ég þurfti bara teikningar og efni – spýtu, stál og ál. Fékk plank- ana frá Ameríku, sérstakan við, þann sama og notaður er í fiðlusmíði. Svo snikkar maður þetta til.“ Fleira á 70 ára afmæli en fyrsta vélin hans Pitts. Björn hélt upp á það í sumar, ásamt nokkrum sam- herjum, að 70 ár eru síðan fyrsta millilandaflugið var farið frá Íslandi á Katalínu-flugbát og lent var rétt hjá Glasgow í Skotlandi. „Okkur fannst sjálfsagt að halda upp á þetta. Við ákváðum að fara á flugsýningar bæði í Bretlandi og Frakklandi og bara á heimasmíðuðum eins hreyfils flug- vélum, tveimur sem ég smíðaði og þremur eftir Árna Sigurbergsson. Vorum heppin með veður og flugum sjónflug í fylkingu alla leiðina, þétt saman. Það var virkilegur stíll yfir því ferðalagi og við vöktum heldur betur Dreymdi „Ég lauk við vélina 2007 og skírði hana Blunose eftir uppáhalds Zippó- kveikjaranum mínum,“ segir Björn. FrÉttaBlaðið/Vilhelm Björn Thoroddsen flugmaður fær fólk oft til að taka andköf er hann leikur listir í loftinu á sinni heimasmíðuðu flugvél. Hann á að baki langan atvinnuflugmannsferil en kveðst aldrei hafa verið í lífsháska nema þegar Palestínuskæruliðar reyndu að drepa hann í Dúbaí.   athygli. Ferðin tók hálfan mánuð og þetta er eitt skemmtilegasta flug sem ég hef farið í því úr svona vélum  sér maður  allt svo greini- lega á jörðu niðri, fólk að vinna á ökrum, kastala og  kálfa.  Þetta sér maður ekki úr háloftunum úr þotum og varla úr bílum heldur því þá byrgja tré sýn.“ Björn flaug að sjálfsögðu sinni mögnuðu listflugvél í þessari ferð. Hún er tvíþekja, níu sílindra og 360 hestöfl. Rosaleg maskína að sögn eigandans. „Það er engin sem slær hana út í Bretlandi – og þó, kannski ein þýsk týpa sem slagar upp í hana.“ Varla lærðir þú í flugskólanum að smíða þér farartæki. Hvernig byrja menn á því? „Maður bara les sér til. Það er mesti misskilningur að menn þurfi í skóla til að læra alla hluti. Amerík- anar eru stærstir í að smíða einka- flugvélar en þar er enginn lærður flugvélasmiður.“ En listflugið – líka sjálflært? „Ég æfði það sjálfur til að byrja með en svo endaði með að ég fór til kennara í Bandaríkjunum og líka á Krímskaga í Rússlandi. Listflugið er svakalega skemmtilegt, þá fer maður alveg út að ystu mörkum í því hvernig hægt er að fljúga og lærir heilmikið á flug.“ Hvenær fékkst þú flugbakteríuna? „Strax á unga aldri. Þegar ég var lítill dreymdi mig um að verða orrustuflugmaður. Ég átti heima í Hafnarfirði og á sunnudögum fór pabbi með okkur krakkana í bíltúr á flugvöllinn. Þá var hægt að keyra út um allt þar, innan um flugvélarnar. Kannski hefur pabbi verið með bakteríuna líka en hann var samt ekkert hrifinn af að ég yrði flugmað- ur, vildi að ég færi í verkfræðina eins og hann. Ég var nú að spekúlera í að fara í hana líka en af því varð ekki.“ Björn kveðst hafa lært flug á Reykjavíkurflugvelli. „Það hafa verið flugskólar á Íslandi frá stríðslokum, góðir skólar. Þegar ég var nýbúinn að ljúka námi var erfitt að fá vinnu svo ég fór til Englands og tók ensk réttindi. Kom svo heim og fékk fljót- lega vinnu hjá Loftleiðum í milli- landaflugi og var lánaður þaðan til Flugfélagsins í innanlandsflug sumrin 1962 og 1963, á Douglas DC 3. Þá var flogið á miklu fleiri staði en í dag.“ Hann kveðst hafa verið lán- samur á sínum ferli og varla hafa lent í neinu. „Ég komst jú í lífshættu þegar Palestínuskæruliðar reyndu að drepa mig niðri í Dúbaí. Vélin var í fragtflugi fyrir Cargolux og var bara á stæði. Dagfinnur Stefánsson var flug- stjóri. Skæruliðarnir ætluðu að ræna flugvél og skutu á okkar vél í staðinn fyrir British Airwaves-vél sem var fyrir aftan okkur. Þeir drápu einn Pakistana við hliðina á mér og ein bresk flugfreyja fékk skot í magann en lifði af. Vélin var öll í skotgötum. Þetta er í eina skiptið sem mér hefur verið sýnt í tvo heimana í flugi.“ Aldrei af völdum náttúrunnar? „Nei, þótt ég sé gamall í hettunni þá voru menn hættir að taka sénsa í fluginu þegar ég byrjaði, eins og gerðist kannski fyrst þegar menn voru kaldari og öll umgjörðin um flugið frumstæðari. Í dag er allt planað. Nú eru það bara tölur sem segja til um hvort fært sé að fljúga eða ekki. Það er engin spurning um þor – til allrar hamingju.“ Einhverjar sögur hlýturðu samt að kunna úr bransanum. „Ég flaug landgræðsluvélinni, Páli Sveinssyni, á tímabili. Hún er Douglas DC3, traust vél en dálítið hæg. Ég var nýbúinn að taka á loft á Reykjavíkurflugvelli í svaka fínu veðri með  þrjú tonn  af lausum áburði þegar annar hreyfillinn missti afl og vélin hætti að klifra. Á stýrinu var takki sem opnaði botn- inn þannig að hægt var að sleppa öllum farminum. Þegar ég leit niður var ég yfir Alþingishúsinu og þarna þurfti ég að vera fljótur að hugsa. Mér tókst að skríða yfir Hafnar- strætið en um leið og ég kom út á höfnina varð ég að láta farminn gossa. Stundum koma upp aðstæð- ur  eins og í fótboltanum, menn verða að taka ákvörðun í hvelli.“ Flugmenn verða sem sagt að vera dálitlir töffarar. „Við þykjumst vera það en ég veit ekki hvort það sé eitthvað betra.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is um að verða orustuflugmaður Skjaldarmerki listflugvélarinnar „Snákarnir eru fólkið sem vill flugvöllinn í burtu. Stelpan á hestinum er að drepa það. Svo verður alltaf að vera eitthvað á latínu. Þessi áletrun, PER ASPERA AD ASTRA, þýðir Frá þyrnum til stjarnanna,“ útskýrir Björn. 1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r38 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.