Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 106
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
Brandarahornið
Baldur Tumi, hvernig bókum
hefur þú mest gaman af? Bók-
unum um spæjarastofu Lalla
og Maju sem ég á á sænsku af
því að ég átti einu sinni heima
í Svíþjóð. Svo finnst mér bókin
Nesti og nýir skór skemmtileg,
ég var að fá hana að gjöf frá
Ibby, eins og öll önnur sex ára
börn á Íslandi. Til dæmis finnst
mér sagan um tröllskessurnar
Fóu og Fóu feykirófu skemmti-
leg og saga um stelpu sem hélt
að tunglið væri að elta sig, mér
finnst það svolítið skrýtið. Það
er líka vísa þar um einn ótrú-
lega óþekkan strák sem heitir
Gutti.
Er einhver sérstök söguper-
sóna í uppáhaldi í Nesti og
nýir skór? Gamli kóngurinn í
sögunni um Áslaugu í hörpunni
af því að hann er svo flottur á
myndinni.
Í hvernig ævintýri myndir þú
vilja lenda ef þú værir í sögu?
Ég myndi vilja að ég breyttist í
uglu.
Hver eru helstu áhugamál
þín önnur en bækur? Klifra,
föndra, leira, skrifa og búa til
skapalón og nota þau svo til að
teikna á annað blað.
Í hvaða skóla ertu og hvað
finnst þér skemmtilegast að
gera þar? Ég er í Vesturbæjar-
skóla og mér finnst skemmti-
legast að gera renning. Þá á
maður að halda endalaust
áfram að skrifa tölur.
En þegar þú ert ekki í skól-
anum? Vera heima að gera
heimavinnu.
Hvaða dýrum hefur þú mest
gaman af? Mér finnst uglur
vera rosa skemmtilegar og mör-
gæsir. Ég á ekki gæludýr en mig
langar í páfagauk.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Mér finnst leiðinlegt
að horfa á trjágrein í langan
tíma.
Ef ég væri í ævintýri
vildi ég breytast í uglu
Baldur Tumi Einarsson er sex ára og á heima í Vestur-
bænum í Reykjavík. Hann er dálítill bókaormur og
honum finnst líka skemmtilegt að klifra, föndra og leira.
Það verður teflt af kappi í Rimaskóla í
Grafarvogi nú um helgina því þar taka
hátt í hundrað krakkar þátt í Íslands-
móti ungmenna 2015.
Mótið byrjar í dag. Þar er teflt um tíu
Íslandsmeistaratitla. Strákar og stelpur
tefla saman í fimm aldursflokkum. Átta
ára og yngri krakkar eru í yngsta hópn-
um, þar er umhugsunartími í hverjum
leik sjö mínútur. Fimmtán til sextán
ára eru í elsta hópnum, hámarksum-
hugsunartími hjá þeim er fimmtán
mínútur í hverjum leik.
Þegar að krýningu Íslandsmeistar-
anna kemur verða það efsti
strákur og efsta stelpa í
hverjum flokki sem hljóta
þá titla.
Sigurvegari í flokki
níu til tíu ára tryggir sér
sæti á Norðurlanda-
mótinu í skák sem
fer fram í febrúar
2016 í Svíþjóð.
Sigurvegarar í
elstu flokkunum
þremur tryggja sér sæti á Unglinga-
meistaramóti Íslands.
Auk titlanna eru glæsilegir vinningar
í boði á Íslandsmótinu og happdrætti
verður að því loknu.
Skák og mát í Rimaskóla um helgina
Baldur Tumi er alsæll með nýju bókina sína. FréTTaBlaðið/Vilhelm
Bragi Halldórsson
170
„Er þetta ekki talnavölundarhúsið þar sem við eigum að byrja
á bláu tölunni neðst og með því að fylgja bara sléttum tölum
lárétt og lóðrétt en ekki á ská, finna leið upp á topp
teningsins, bláu tölunnar átta?,“ spurði Kata. „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að fylgja sléttu tölunum 2, 4, 6, og 8.“
„Mig minnti það,“ sagði Kata. „Mér gekk nú ekkert of vel síðast
þegar við glímdum við svona þraut en nú skal það ganga betur,“
sagði hún ákveðin og keppnisskapið leyndi sér ekki.
Getur þú fundið leiðina í gegnum teninginn með því að fylgja
sléttu tölunum lárétt og lóðrétt?
8 6 2 5 3 7 8 6 2 5 7 9
2 5 2 4 1 8 4 3 7 8 3 2
6 8 5 6 4 2 5 4 2 6 7 6
5 4 8 1 7 4 5 9 3 8 2 4
2 5 2 2 6 5 2 3 6 3 5 6
3 4 2 3 5 1 2 6 4 2 8 4
4 6 4 2 5 2 9 1 3 6 2 9
7 6 7 3 1 3 7 3 2 8 7 8
5 8 9 4 8 4 2 5 4 3 9 2
6 8 5 2 1 3 6 8 6 4 2 6
2 1 6 4 3 7 3 2 8 2 7 2
2 6 4 7 8 6 8 4 5 1 5 6
„Palli, þú ættir að þvo þér í framan. Það sést á andlitinu á þér hvað þú
varst að borða í hádeginu.“
„Jæja, og hvað borðaði ég í hádeginu?“
„Spagettí.“
„Nei, það var í gær.“
Ferðamaðurinn: „Er húsið þarna sumarbústaður?“
Bóndinn: „Já, ef einhver vill leigja það. Annars verður það svínahús áfram.“
„Ég vil ekki segja að maðurinn minn sé grindhoraður en þegar hann fór
með dóttur okkar niður að Tjörn á laugardaginn hentu endurnar brauði
til hans.“
Spurt í strætó: „Bílstjóri! Stoppar þessi vagn við höfnina?“
„Ja, ef hann gerir það ekki verður aldeilis gusugangur.“
Nú er eins gott að vanda sig, gæti þessi ungi
maður verið að hugsa.
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r50 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð