Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 110

Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 110
Listamennirnir Baldur Geir Bragason og Habby Osk eru að leggja lokahönd á frágang listaverka, hvort í sínum sal á efri hæð Gerðar- safns í Kópavogi þegar Fréttablaðs- fólk stormar inn. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, stjórnandi safnsins, kemur hlaupandi upp stigann af neðri hæðinni, heilsar og útskýrir hvað er að gerast. „Við erum að opna sýning- una Skúlptúr Skúlptúr og vísum þar í sýningu með samtíma höggmynda- list sem haldin var á Kjarvalsstöðum 1994, sama ár og Gerðarsafn var opnað til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara (1928-1975).“ Kristín Dagmar tók við sem list- rænn stjórnandi Gerðarsafns  á síðasta ári. „Ég vil vera trú upp- runa  safnsins og draga fram sér- stöðu þess en líka tengja það sam- tíma okkar,“ segir hún. „Baldur og Habby Osk fengu það hlutverk að fjalla um hugmyndina um skúlp- túrinn, hvernig hann er í dag.  Bæði eru þau listamenn sem vinna með höndunum en sitja ekki bara við tölvu og framkvæma svo eitt- hvað sem þau hafa ákveðið þar. Það er mikil natni í handverki þeirra, þó svo virðist kannski ekki, fljótt á litið. Þau eru bæði að glíma við söguna og eðli skúlptúrsins sem er að hann er yfirleitt umfangs- mikill og tekur sitt pláss. Oft vaknar spurningin hjá listamönnum þegar sýningu lýkur: Hvað á ég að gera við þetta?“ Á síðustu sýningu var hér verk með sjÁlflýsandi þörungum. þÁ komu krakkar hingað og skoðuðu listaverkið og fóru svo inn í nÁttúrufræðistofuna og fengu að heyra fróðleik um  þörunga. þessu ætlum við að gera meira af í vetur. A ð a l f u n d u r H l a ð v a r p a n s e h f . , menningar- og styrktarsjóðs kvenna, verður haldinn á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 2. hæð, fimmtudaginn 29. október 2015, klukkan 17. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Slit félagsins samkvæmt 24. gr. samþykkta fyrir Hlaðvarpann ehf. 3. Kosning skilanefndar vegna slita á félaginu skv. ákvæðum laga um einkahlutafélög nr. 138/1994. Þær sem hlut eiga í Hlaðvarpanum eru hvattar til að nýta rétt sinn til að mæta á fundinn og kynna sér starfsemi sjóðsins. Stjórnin Leikhús Vegbúar HHHHH eftir Kristján Kristjánsson og Jón Gunnar Þórðarson Flytjandi: Kristján Kristjánsson Leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson Leikmynd og búningar: Móeiður Helga- dóttir Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson Tónlist og útsetningar: KK Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson Myndvinnsla: Roland Hamilton Fyrst var þögn og síðan tónn, þögnin tók aftur við en tónninn stelur allt- af augnablikinu og gæðir það lífi. Tónlistar maðurinn Kristján Kristjáns- son, eða KK eins og flestir þekkja hann, flytur sín þekktustu lög í bland við töku- lög í Vegbúar sem frumsýnd var síðast- liðinn fimmtudag í Borgarleikhúsinu. KK og Jón Gunnar Þórðarson, sem bæði leikstýrir og kemur að handritinu, skoða líf tónlistarmannsins út frá sam- bandi hans við þá gítara sem honum hafa áskotnast í gegnum tíðina. Hann rekur sögu sína frá barnæsku þegar hann fékk sinn fyrsta gítar, sem að hans sögn bjargaði lífi hans, og hvernig þessi hljóðfæri endurspegla þróun hans sem tónlistarmanns og manneskju. Hann talar einnig um áhrifavalda í lífi sínu; drengi sem missa föður sinn og jafnvel móður á unga aldri og vaxa úr grasi og verða tónlistarmenn. Robert Johnson sem seldi sálu sína djöfl- inum til að geta spilað á gítar eins og engill. Sister Rosetta Tharpe sem hafði ómælan leg áhrif á tónlist tuttugustu aldarinnar þó að fáir viti endilega hver hún var. John Lennon og Paul McCart- ney sem umbyltu hinum vestræna menningarheimi og Victor Jara sem umbylti hinum suðræna. KK hefur þann einstaka hæfileika að fylla þögnina með nærveru sinni, afslappaðri framkomu og einlægni. En KK gleymir sér ekki í sögum af sjálfum sér heldur endurvarpar boðskap þessa tónlistarfólks um mannkærleik og frið. Eftir hlé þyngist leikurinn töluvert þegar frekari áhersla er lögð á hin ýmsu áföll sem KK hefur gengið í gegnum en ávallt er stutt í húmorinn. Sviðsetningin er kannski fábrotin en virkilega áhrifarík í einfaldleika sínum. Móeiður Helgadóttir sér bæði um búninga og leikmynd. Henni ferst það verkefni vel úr hendi og er öll umgjörð lágstemmd líkt og KK sjálfur. Einnig er lýsing Magnúsar Helga Kristjánssonar falleg, sérstaklega notkun hans á ljós- kösturunum, og myndvinnsla Roland Hamilton góð án þess að vera yfir- þyrmandi. Aftur á móti verður að undirstrika þá staðreynd að Vegbúar er ekki leik- sýning heldur frekar sviðsetning á frá- sögnum KK, ekki ósvipað þeirri list sem söngvaskáld stunda. Grunnhugmynd handritsins er góð en framsetningin heldur óöguð og frekar endaslepp þar sem frásögn KK endar mjög snögglega um miðbik tíunda áratugarins. En tónlistin og flutningur KK var óneitanlega áhrifamikill og stundum virkilega hjartnæmur. Ekki var þurrt auga í húsinu þegar KK söng óðinn til látinnar systur sinnar „When I Think of Angels“ og greinilegt var að áhorf- endur voru vel með á nótunum. KK er tónlistarmaður sem hefur snert hjarta- strengi ótal margra á sínum langa ferli og Vegbúar er enn ein skrautfjöðrin í hans hatt. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða Magnaðir tónleikar sem hefðu þurft markvissara handrit. Þögnin og tónninn sem bjargar lífi Vil vera trú  uppruna safnsins og tengja það samtímanum í gerðarsafni í kópavogi verða tvær einka- sýningar opnaðar í dag undir heitinu skúlp- túr skúlptúr og veitingastaðurinn garð- skálinn tekur til starfa. kristín dagmar jóhannesdóttir er listrænn stjórnandi í hús- inu og hún vill draga fram sérkenni safnsins.  „Ég hef gaman af að skoða eitthvað sem ég þekki ekki og gera eitthvað úr því,“ segir Kristín Dagmar. FrÉTTabLaðið/GVa Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is „Við ætlum líka að sýna heim- ildarmynd um Gerði Helgadóttur, hún fór til Flórens og lærði þar að höggva í stein og móta í leir á klass- ískan máta. En þegar hún síðan fór til Parísar breytti hún algerlega um efni og efnistök. Þá fór hún að gera járnskúlptúrana sem hún varð síðan þekkt fyrir.“ Nú trítlum við niður stigann, þar er Ægir Friðriksson að undir- búa opnun veitingastaðarins Garð- skálans. Kaffihúsið hefur ekki verið í notkun síðustu þrjú ár. „Fólki finnst alltaf gaman að koma á sýningar og tylla sér niður í kaffi, eða fá sér létt- an málsverð í hádeginu og kíkja á sýningar í leiðinni.“ „Hér verður gott kaffi og gott brauð,“ segir Ægir brosandi. Þegar hugað er að því sem fram undan er  kveðst Kristín  ætla að bjóða fleiri samtímalistamönnum að sýna en líka kafa í safnkostinn og gefa fólki kost á að fylgjast með for- verði meta ástand verka þar. Einnig að auka tengslin milli þeirra ágætu menningarstofnana sem starfa í miklu návígi í Kópavogi; listasafns- ins, bókasafnsins, náttúrufræðistof- unnar, tónlistarhússins og tónlistar- safnsins. „Á síðustu sýningu var hér verk með sjálflýsandi þörungum. Þá komu krakkar hingað og skoðuðu listaverkið og fóru svo inn í náttúru- fræðistofuna og fengu að heyra fróð- leik um þörunga. Þessu ætlum við að gera meira af í vetur.“ Kristín lærði samtímalistfræði í Skotlandi og er safnaheiminum á Íslandi kunnug eftir störf bæði við Listasafn Reykjavíkur og Lista- safn Íslands. Hún hefur líka unnið í sjálfstæðum verkefnum sem sýningarstjóri og ritstýrt bók með ljósmyndaverkum Sigurðar Guð- mundssonar. Spurð um menn- ingarlegt uppeldi hlær hún við og kveðst aðallega hafa verið dregin á fótboltaleiki sem barn. „En ég hafði gaman af að teikna og það er mikil handavinna iðkuð í fjölskyldu minni.  Ég hef gaman af að skoða eitthvað sem ég þekki ekki og gera eitthvað úr því.“ Kristín getur þess að sýningin Skúlptúr Skúlptúr verði opnuð klukkan 15 í dag, laugardag, og standi fram í byrjun janúar en að ári verði önnur opnuð undir sama nafni. 1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L au G arDaG u r54 M e N N i N G ∙ F r É t ta b L að i ðmenning
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.