Fréttablaðið - 17.10.2015, Síða 115
son ásamt öðrum verkum hans. Hvort
sem er höggvin í stein eða tálguð í
tré og tekur hin kvenlega ímynd á sig
mynd gyðjunnar. Sýningin er sett upp
hönd í hönd við 100 ára kosningaaf-
mæli kvenna sem fagnað hefur verið
það sem af er ári og verður út árið
2015.
Hvað? Opnun sýningarinnar Með
mínum augum
Hvenær? 16.00
Hvar? Gallery Orange
Guðrún Anna Magnúsdóttir opnar
sýninguna Með mínum augum í dag
við mikið húllumhæ. Mun Elín Ósk
Óskarsdóttir óperusöngkona ásamt
Kjartani Ólafssyni á hljómborð verða
með tónlistaratriði. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvað? Opnun Gáttir/
Landslag hugarfarsins
Hvenær? 15.00
Hvar? Anarkía, listasalur í Kópavogi
Í neðri salnum opnar Sólrún Hall-
dórsdóttir sýninguna Landslag hugar-
farsins og í efri sal er sýning Kristínar
Tryggvadóttur, Gáttir. Standa báðar
sýningarnar til 8. nóvember. Allir vel-
komnir.
Hvað? Síðustu sýningardagar á Erró og
listasagan og Bangsavættum
Hvenær? 10.00-17.00
Hvar? Hafnarhúsið, Listasafni Reykja-
víkur
Síðustu forvöð að sjá sýningarnar, en
þær eru opnar í dag laugardag og á
morgun, sunnudag, sem er lokadagur
sýninganna.
Hvað? Opnun sýningarinnar Frum-
drættir og fyrirmyndir
Hvenær? 15.00
Hvar? Bókasafn Mosfellsbæjar
Sýningin Frumdrættir og fyrirmyndir
dregur heiti sitt af teikningunum sem
tjáningarmiðli. Sýningin er samstarfs-
verkefni og stefnumót listamannanna
Guðbjargar Lindu, Jean Larson, Krist-
ínar Geirsdóttur og Ólafar Oddgeirs-
dóttur. Allir velkomnir.
Fyrirlestur
Hvað? Flóttamannasprengingin – or-
sakir og afleiðingar
Hvenær? 14.00
Hvar? Friðarhúsið, Njálsgötu 87.
Þórarinn Hjartarson mun meðal
annars velta upp eftirfarandi spurn-
ingum í framsögu sinni: Tengist flótta-
mannastraumurinn til Evrópu endur-
nýjaðri vestrænni hernaðarstefnu í
Miðausturlöndum og víðar? Hvaða
afleiðingar mun þetta hafa á afdrif
Schengen og „opinna landamæra“ í
Evrópu? Hvaða afleiðingar gæti flótt-
inn mikli haft fyrir friðarhreyfingu
Evrópu? Fyrirspurnir og umræður.
Aðgangur er ókeypis.
Hvað? Leiðsögn; Spegilmynd
Hvenær? 16.00
Hvar? Safn Ásgríms Jónssonar
Eyrún Óskarsdóttir mun leiða gesti í
gegnum verk Ásgríms Jónssonar og
fjalla um feril listamannsins.
Listir
Hvað? SHIT
Hvenær? 15.00
Hvar? Gallerí Gestur í Iðnó, Vonar-
stræti 3
Verkin í Galleríi Gesti, sem er
taska sem Dr. Magnús Gestsson
hefur með sér og opnar þar sem
hann drepur niður fæti, eru eftir
Margréti Jónsdóttur og tjá tilfinn-
ingar hennar til stöðu sinnar
sem myndlistarkonu í
íslensku samfélagi í
dag.
Hvað? Lista-
mannaspjall
Brynhildar Þor-
geirsdóttur
Hvenær? 15.00
Hvar? Listasafn
ASÍ, Ásmundarsal
Samkoma nefnist
sýning Brynhildar
Þorgeirsdóttur mynd-
höggvara sem nú stendur
yfir. Mun Brynhildur spjalla um
listaverkin og vinnuferlið og eru
allir velkomnir.
Ljósmyndir
Hvað? Undra-
börn Mary Ellen
Mark
Hvenær? 12.00
Hvar? Nesstofa
Í tilefni Menn-
ingarhátíðar
Seltjarnarness
stendur Þjóðminja-
safnið fyrir sýningu í
Nesstofu á ljósmyndum
Mary Ellen Mark. Sýnt er úrval
ljósmynda af sýningunni Undra-
börn sem var í Þjóðminjasafninu
árið 2007. Myndirnar tók Mary
Ellen af nemendum Öskjuhlíðar-
skóla haustið 2005 þar sem hún
varpar ljósi á aðstæður fatlaðra
barna.
Dansleikur
Hvað? Dansleikur
Hvenær? 20.00
Hvar? Ásgarður, Stangarhyl
Félag eldri borgara stendur fyrir
dansleik í kvöld, og mun hljóm-
sveit hússins leika fyrir dansi.
Aðgangseyrir óbreyttur.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
18. október
Leiðsagnir
Hvað? Leiðsögn; Nína Tryggvadóttir
Hvenær? 14.00
Hvar? Listasafn Íslands
Í dag verður boðið upp á sunnudags-
leiðsögn um sýninguna Nína Tryggva-
dóttir – Ljóðvarp, og fellur það í skaut
Ólafs Inga Jónssonar, annars sýningar-
stjóra sýningarinnar, að fylgja gestum
í gegn. Á sýningunni er lífsferli lista-
konunnar Nínu Tryggvadóttur gerð
góð skil í gegnum fjölda listaverka.
Verk Nínu á safninu eru áttatíu talsins
og þar á meðal eru verk sem ekki hafa
verið sýnd áður á Íslandi.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L Að i ð 59L A Ug A R D AgU R 1 7 . o k Tó B e R 2 0 1 5