Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 120
Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið
Skrímslið litla systir mín
Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds
Aðeins örfáar sýningar:
Sun. 18. okt . kl . 13.00
Sun. 1. nóv. kl . 13.00
Sun. 15. nóv. kl . 13.00
Sun. 22. nóv. kl . 13.00
Barnasýning ársins
Sproti ársins
Gríman 2015
- DV
- S.J. Fréttablaðið
Save the Children á Íslandi
Ég leikstýrði og Snjólaug Lúðvíksdóttir skrifaði handritið. Við tókum myndina upp í London í fyrra,“ segir Þóra Hilmars-dóttir sem leikstýrði stutt-
myndinni Sub Rosa sem á dögunum
hlaut aðalverðlaun í flokki stuttmynda
á kvikmyndahátíðinni í San Diego.
Þóra útskrifaðist úr Central Saint
Martins árið 2012 og hóf störf hjá RSA
Films, kvikmynda- og auglýsingafram-
leiðslufyrirtæki í eigu Ridleys og Tonys
Scott. Einnig hefur hún gert tónlistar-
myndbönd, nú síðast við lagið Breathe
með tónlistarkonunni Mr. Silla en þar
má sjá hana slást við leikkonuna Sögu
Garðarsdóttur.
Myndin var meðal annars tekin upp í
London vegna tengslanetsins sem Þóra
og Snjólaug höfðu fyrir búninga og um
leikmynd sá Júlíana Lára Steingríms-
dóttir, sem var einnig búsett í borginni.
En einnig fannst þeim sagan betur passa
inn í veruleika stórborgarinnar. „Efnið
sem við vorum að fjalla um á ekki við á
Íslandi,“ segir hún en myndin segir sög-
una af Tildu sem er átta ára stelpa sem
elst upp í blómabúð þar sem óviðeig-
andi athæfi á sér stað á bak við tjöldin.
Tilda hnýsist inn í undirheima blóma-
búðarinnar og sjálfsmynd hennar mót-
ast á ógnarhraða.
Hugmyndin að handritinu kviknaði
í borginni. „Við bjuggum allar í sama
hverfi og þar var blómabúð sem var
opin allan sólarhringinn. Þetta var í
Hackney sem var á þessum tíma frekar
skuggalegt hverfi. Snjólaug var einhvern
tímann að labba þarna fram hjá og pæla
í hvað væri eiginlega að gerast þarna á
nóttunni. Hvort fólk væri að kaupa
blóm um miðja nótt og svo framvegis.
Þá fæddist þessi hugmynd,“ segir hún.
Líkt og áður sagði hlaut myndin
aðalverðlaun í stuttmyndaflokki
hátíðarinnar en Þóra var ekki viðstödd
og tók þakkarræðuna upp og var hún
spiluð við afhendingu verðlaunanna.
„Ég fékk að vita að við hefðum
unnið og mátti náttúrulega ekki segja
neinum frá. Júlíana tók mig upp að
flytja þakkar ræðuna á vinnustofunni
okkar og svo var þetta bara einhver
brjáluð stjörnuhátíð. Adrien Brody var
næstur á svið að fá verðlaun,“ segir hún
og hlær. „Ég vildi óska að ég hefði getað
verið á staðnum en það varð því miður
ekki.“ Hún segir afskaplega gaman að fá
verðlaun á við þessi og að það sé ekki
síst hvatning til þess að halda áfram.
Og það er einmitt það sem þær
hyggjast gera en þær stöllur eru með
aðra stuttmynd í bígerð. „Núna ætlum
við aðeins að snúa blaðinu við og
ætlum að gera mynd hérna á Íslandi,
með íslenskum leikurum og á íslensku.
Ég og Snjólaug erum að skrifa hana og
Eva Sigurðardóttir hjá Askja Films
framleiðir.“ Stuttmyndin sem þær
vinna að ber nafnið Frelsi. Það er þó
ekki eina verkefnið sem þær vinna að
því stefnan er sett á kvikmynd í fullri
lengd. „Við Snjólaug erum líka að skrifa
handrit að mynd í fullri lengd sem
verður líka á íslensku og erum bara að
fara af stað í umsóknarferli og annað,“
segir hún glöð í bragði.
Þóra segir að kvikmyndaáhuginn
hafi komið fram frekar snemma þó að
hún hafi um stund þráast við og ákvað
að skella sér í bóklegt nám í háskóla.
„Ég fór í lögfræði og var þar í eitt og hálft
ár en þegar ég var að lesa dóma var ég
bara að gera bíómyndir í hausnum,“
segir hún glöð í bragði. „Ég hef mikinn
áhuga á listrænum hliðum kvikmynda-
gerðar. Sub Rosa er með sterkan stíl og
listræn. Það er eitthvað sem kveikir í
mér,“ segir hún glöð í bragði. Sub Rosa
verður sýnd á Northern Wave Festival
sem fram fer á Grundarfirði um helgina
og einnig á San Francisco Shorts. Einn-
ig er myndin tilnefnd fyrir besta hand-
ritið á Underwire-hátíðinni í Bretlandi
sem sýnir einungis myndir eftir konur í
kvikmyndagerð.
Í lögfræðitíma með
bíómyndir á heilanum
Þóra Hilmarsdóttir leikstýrði myndinni Sub Rosa sem hlaut aðal-
verðlaun í stuttmyndaflokki á kvikmyndahátíðinni í San Diego. Hún
byrjaði í lögfræði en áttaði sig á að kvikmyndir áttu hug hennar allan.
Stilla úr stuttmyndinni Sub Rosa sem segir söguna af hinni átta ára gömlu Trinu.
Þóra Hilmarsdóttir kvikmyndagerðarkona er að vonum ánægð með verðlaunin. FRéTTablaðið/anTon bRink
Gyða Lóa Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
Við bjuggum allar Í
sama hVerfi og þar
Var blómabúð sem Var opin
allan sólarhringinn. þetta
Var Í hackney sem Var á
þessum tÍma frekar skugga-
legt hVerfi. snjólaug Var
einhVern tÍmann að labba
þarna fram hjá og pæla Í
hVað Væri eiginlega að
gerast þarna á nóttunni.
hVort fólk Væri að kaupa
blóm um miðja nótt og sVo
framVegis. þá fæddist þessi
hugmynd.
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r64 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ðLífið