Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 122

Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 122
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2016. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember kl. 17:00 2015. Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is Í apríl á næsta ári verður auglýst eftir umsóknum vegna verkefna seinni hluta ársins 2016. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga, sími 515 5838, tonlistarsjodur@rannis.is Styrkir úr Tónlistarsjóði 2016 Umsóknarfrestur til 16. nóvember Maður gerir bara það sem þarf, og það þarf að hafa bein í nefinu í svona keppnum,“ segir Tanja Ýr Ást- þórsdóttir, sem nú er í óðaönn við að undirbúa sig fyrir keppnina Miss Supranational sem haldin verður í Póllandi í næsta mánuði. Um ræðir eina af þessum stóru keppnum á borð við Miss International og Miss World, en sjálf tók Tanja einmitt þátt í Miss World í desember í fyrra í tengslum við Ungfrú Ísland sem gekk brösuglega, en nú er annað og meira uppi á teningunum. „Ég fer reynslunni ríkari inn í þessa keppni núna, en ég vissi ekkert út í hvað ég var að fara í fyrra og var bara ekkert undirbúin, þar sem á þeim tímapunkti áttu sér stað eigenda- skipti í Ungfrú Ísland svo ég stóð ein og bar hitann og þungann af þessu ein.“ Svo fór að Tanja lét það ekki á sig fá, og greiddi þá ferð að fullu með hjálp fjölskyldunnar. „Ég átti ekkert að fá að fara út fyrst en Dísa, einn núverandi eigendanna, var svo góð að hjálpa mér,“ segir Tanja og skýtur að, að sem betur fer hafi hún farið því í þeirri ferð kynntist hún Peter, sem stundum hefur verið kallaður draugurinn á meðal bransa- fólksins, en hann er afar áhrifamikill í heimi fegurðarsamkeppna og á til að mynda keppnina Ungfrú Svíþjóð og þar með hafi margar dyr opnast. „Ég settist bara við hliðina á þess- um manni á lokakvöldinu þar sem við vorum að borða, og við fórum að spjalla. Það var mikil heppni, því þannig kynntumst við og það er honum að þakka að ég er að fara að taka þátt núna úti í Póllandi og svo aftur í desember í Malasíu,“ útskýrir Tanja og bætir við: „Hann hefur til að mynda leyfið fyrir aðkomu íslenskra stelpna að þessari keppni sem ég er að fara í núna og sömuleiðis er það honum að þakka að ég fékk tækifæri til að vera einn kynnanna í Ungfrú Svíþjóð 2015.“ Segir Tanja það heilmikið maus að gera sig klára fyrir svona keppni, Miss Supranational er þriggja vikna verkefni sem krefst gríðarlega mikils af keppendum, og ekki hvað síst sé horft í krónur og aura. „Núna er allur kostnaður greiddur fyrir mig eins og eðlilegt þykir. Sjálf sé ég reyndar um kjólakaupin, en þau eru talsverð,“ segir Tanja og skellir upp úr. Aðspurð um gangverð á fegurðardrottninga- kjólum segist hún sjaldan finna sér kjóla undir fimmtíu þúsund krónum, og yfirleitt kosti þeir sem henni líki við á bilinu hundrað til tvö hundruð þúsund krónur. „Svo er auðvitað allt skartið og skórnir. Þetta er heljarinnar tilstand og krefst þess að maður leggi sig fram við að finna sponsa og svoleiðis.“ Ef kjólaskápurinn yrði verðmerktur segir Tanja þá upphæð rosalega háa, án þess að fara nánar út í það og hlær sínum dillandi hlátri. Hefur það verið slagsíða fegurðar- samkeppna að keppendur þurfi að vera í sérstökum málum, og þá er oft slengt fram „90-60-90“ málunum frægu. Tanja blæs hins vegar á þær úreltu tölur og segist sannarlega vera hjá einkaþjálfara en það sé gert til að stuðla að heilsusamlegu útliti „og svo ég geti staðið mig vel í íþrótta- keppnunum sem fylgja þessu“. Hún segir jafnframt mikilvægt að kepp- endur hafi orku til að standa í þessu, þar sem það sé heilmikið baks. „Sú sem verður valin Miss Supra national kemur til með að ferðast um allan heim í heilt ár að sinna góðgerðar- störfum, og þú gerir það ekkert mátt- laus.“ Þá er Tanja bókstaflega á hvolfi við að undirbúa atriði sitt fyrir hæfileika- keppnina, en hún hyggst þar bregða fyrir sig loftfimleikum. „Ég á ekki von á að einhver önnur verði með svoleiðis, en ef það gerist þá skiptir það ekki öllu. Við erum allar mismunandi. Það skiptir bara miklu máli að vera með atriði og vekja þannig á sér athygli meðal dóm- nefndarinnar. Ég elska loftfimleikana, þó að ég sé lofthrædd,“ útskýrir hún og skýtur að, að hún ætli sér einmitt að koma fram í fjallkonubúningi þar sem það á við. „Hann er dálítið poppaður, og sennilega á einhver eftir að móðgast,“ segir Tanja að lokum. gudrun@frettabladid.is Tanja Ýr undirbýr sig með loftfimleikum og glæsikjólum Settist við hliðina á ókunnugum manni úti í heimi sem reyndist hennar stærsta tækifæri til þessa en hún hitti svokallaðan fegurðardrottningadraug sem dró hana aftur af stað. Í nægu er að snúast hjá Tönju, en hér sést hún æfa atriðið sem hún hyggst sýna á hæfileikakvöldinu í Póllandi. mynd/úr einkasafni „Þetta byrjaði bara sem grín á Gauknum til þess að borga bjór- skuldir en er í dag ein af okkar stærstu hljómsveitum og tekju- lind,“ segir tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson um hljóm- sveitina Dúndurfréttir sem fagnar um þessar mundir tuttugu ára afmæli sínu. Hljómsveitin hefur undanfarin ár vakið athygli fyrir að flytja lög hljómsveita á borð við Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. Dúndurfréttir hefur síðustu ár haldið stóra tónleika í Eldborgarsal Hörpu þar sem fluttar hafa verið í heild sinni plötur Pink Floyd, Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall. The Wall var flutt fjórum sinnum fyrir fullu húsi með sinfóníuhljómsveit og voru tónleikarnir gefnir út á DVD. „Þetta var svolítið mikið öðru- vísi fyrir tuttugu árum. Þá vorum við búnir að skrifa talsvert magn af bjór á okkur og svo var komið að skuldadögum. Þá spiluðum við upp í skuldina undir nafninu Dúndurfréttir,“ útskýrir Matthías og hlær. Til þess að fagna afmælinu er fjöldi tónleika fyrirhugaður hjá sveitinni. „Við förum út um allt land og förum meira að segja til Græn- lands. Við erum búnir að gera ákaf- lega skemmtilegan skiptipakka við grænlensku hljómsveitina Nanook. Við hittum þá hljómsveit á flug- vellinum í Nuuk og tökum smá djammsessjón með þeim þar en svo fara þeir til Íslands að spila og við tökum tónleika á Grænlandi sama kvöld.“ Tónleikarnir á Grænlandi fara fram þann 14. nóvember. gunnarleo@frettabladid.is Byrjaði allt sem grín á Gauknum Hljómsveitin dúndurfréttir heldur meðal annars upp á tuttugu ára afmælið á Grænlandi. Tanja segir kjólaskápinn sinn ansi verðmætan, en hún klæðist gjarnan keppniskjólum sem kosta á bilinu hundrað til tvö hundruð þúsund krónur. 66 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.